Stjarnan - 01.02.1936, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.02.1936, Blaðsíða 6
14 STJARNAN Chambers bræÖur meÖal hinna fremstu bóka- útgefenda austan Atlantshafsins. Tvö hlið standa opin, sitt í hvora áttina. AnnaÖ leiðir inn á veg til sjálfstæðis og vel- megunar, hitt inn á veg til eymidar og niÖurlæg- ingar. Iiverja leiÖina velur þú? Mr. LPadaver selur gólfdúka. Þegar kreppan kom minkaÖi salan og tekjur hans um leið, svo hann sá nauðsynlegt að taka ráð sín saman. Þannig atvikaðist það, að hann gjörði kaup- mann einn frá sér numinn af undrun. Kaup- maðurinn ætlaði að gjöra ýmsar umbætur á sýningaherberginu í búð sinni, og pantaði nýj- an gólfdúk frá L. Padaver. Hinn tiltekna dag, sem gólfdúkurinn átti að komia, gekk vel búinn maður inn í búðina með nýjan hatt á höfði og blóm í hnappagatinu á kápunni. Þetta leit út fyrir að vera háttstand- andi maður, svo kaupmaður flýtti sér til að af- greiða hann sjálfur. En er hann heilsaði að- komumanni, rétti þessi honum nafnspjald sitt: Dr. Jekyll og Mr. Hyde Linoleums Því næst, kaupmanni til mestu undrunar, tók aðkomumaður af sér hattinn og smeygði sér úr kápunni um leið og hann sagði: “Eg kem inn sem Dr. Jekyll, verzlunarmaður. Skifti svo fötum.” Svo fór hann úr fallegu vel pressuðu buxunum og sagði: “Nú stend eg fyrir þér sem Mr. Hyde í verkamannabúningi, reiðubúinn að leggja gólfdúkinn fyrir þig, og það skal líka verða vel gjört.” Svo fór hann og lagði dúkinn. Þetta var þá Mr.Padaver, afbragðs verzl- unarmaður og æfður verkamaður. Tveir ungir menn útskrifuðust frá háskól- anum í Wisconsin. Þeir gátu ekki fengið þá vinnu, sem þeir höfðu sérstaklega búið sig und. ir, svo þeir gengu í félag saman í borginni MiL waukee og auglýstu: “Alls konar vinna.” Þeir buðust til að mála, líma veggjapappir, þvo glugga, keyra bíla, passa börn, temja hunda, flytja mold, hreinsa kjallara, flytja húsgögn, kenna frönsku og fullgjöra myndir. Þeir fengu vinnu, og meira en þeir gátu afkastað, svo að tveimi vikum liðnum höfðu þeir vinnu fyrir fleiri af skólafélögum sínum, og nokkrar stúlkur. Þeir eru ekki dýrir á vinnu sinni, enda hafa þeir mikla aðsókn. Auðvitað ætla þeir ekki að hafa þetta fyrir aðai lífsstarf sitt, en meðan þeir eru að bíða eftir öðru betra eru þeir þó að minsta kosti sjálfstæðir og þurfa ekki að liggja á annara liði. Nellie Hayden er 21 árs að aldri. Hún hafði ætlað sér að vinna við auglýsingar. En hún vinnur í búð. Þegar hún var spurð hvort henni geðjaðist sú vinna svaraði hún: “Auðvitað geðjast mér að þessari vinnu. En eg verð að kannast við að eg var óánægð með hana fyrst, en það var af því eg sá ekki hvernig hún gat hjálpað mér að ná takmarkinu með það, sem eg ætlaði að vinna við.” “Og hvað er það ?” , “Að auglýsa, eg hefi alls ekki slept því á- formi. En þetta er eitt sporið í áttina, áfram- hald af undirbúnings námi mínu. Hér hefi eg bezta tækifæri til að læra það, sem mest er um vert við auglýsingar. H'vað það er sem hvetur fólk til að kaupa. Eg er einmitt að finna það út, og það verður mér mikils virði. “Eg ætlaði að verða vélfræðingur,” sagði John brosandi. “En eg varð að fá vinnu, svo þegar tækifærið bauðst að keyra bíl, þá tók eg það. Eg ætla á skóla aftur svo fljótt sem eg get. En þangað til þá vinn eg fyrir mér og hjálpa til mieð heimilisþarfirnar og eg veit eg mun meta mentunina því meira þegar eg get fengið hana.” Elvin hafði lært til þess að verða yfirskoð- ari reikninga. Hann var vel fær um þá stöðu. En alt, sem hann gat fengið að vinna til að byrja með, var að vinna í búð nokkuð af deg- inum. Brátt fékk hann fullan vinnutima í búð- inni, og hann virtist vel ánægður þar sem hann stóð bak við búðarborðið. “Þér geðjast þessi vinna?” spurði vinur hans, sem kom inn til að kaupa eitthvað. “Já, vissulega. Eg hafði aldrei gaman af að mæta fólki fyr. Verzlun er reglulega skemti leg.” “En hvað líður reikninga yfirskoðuninni hjá þér ?” “Eg skal segja þér það,” og nú varð ungi maðurinn alt i einu alvarlegur. “Eg hafði alt af ætlað mér að hafa það fyrir lífsstarf, en síð. an eg kom hingað hefir það breyst, ef til vill hefi eg lært að þekkja sjálfan mig betur. Þeg- ar á alt er litið þá hefi eg sannfærst um, að eg

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.