Stjarnan - 01.03.1936, Qupperneq 1
STJARNAN
MARZ 1936 LUNDAR, MAN.
Vakið, verið viðbúnir
Mikilvægasta spurningin, sem vér getum
lagt fyrir sjálfa oss er þessi: “Er eg viðbúinn
endurkomu frelsarans? Hefi eg olíu á lampa
mínum? Er eg í þeim f-lokki, sem Jesús fyrir_
myndar með vitru meyjunum?”
Enginn getur svarað þessari spurningu nema
vér sjálfir. Vér viturn, eða að minsta kosti
ættum að vita, hvort vér erum viðbúnir, eða
ekki. Ef vér erum óviðbúnir, J>á er ekkert i
heiminum eins nauðsynlegt eins og það að búá
sig undir komu hans.
í þessum heimi finst varla dýpri og inni-
legri gleði heldur en sú að mæta ástfólgnum,
jarðneskum vin. Hve eftirvæntingarfullir vér
bíðum komu hans. Vér þráum lcomu hans, alt
annað sýnist minna um vert, vort eina umhugs-
unarefni er koma hans, sem vér elskum. Alt
er undirbúið til ð taka á móti honum. Vér
klæðum oss í beztu fötin og bíðum með fögn-
uði hinnar þráðu stundar.
Jóhannes postuli virðist hafa haft þetta í
huga er hann skrifaði: “Þér elskuðu, nú erum
vér Guðs börn, og það er ennþá ekki orðið bert
hvað vér munum verða. Vér vitum að þegar
hann birtist, þá munum vér verða honum líkir,
þvi að vér munum sjá hann eins og hann er.
Og hver sem hefir þessa von til hans hreinsar
sjálfan sig eins og hann er hreinn.” I. Jóh.
3:2,3.
Postulinn virðist -hafa skilið fögnuð þann,
sem Guðs börn munu njóta, er þau sjá Drott-
inn sinn koma í skýjum hirnins. Endurkoma
Krists var veruleiki, sem hinn elskaði lærisveinn
þráði og hlakkaði til. í Opinberunarbókinni
segir hann: “Sjá, hann kemur í skýjunum og
hvert auga mun sjá hann, jafnvel þeir, sem
stungu hann, og allar kynkvíslir jarðarinnar
munu kveina yfir honum. Op. 1 :ý. Síðast i
Opinberunarbókinni segir Jesús: “Sjá eg kem
skjótt,” og postulinn tekur þá undir og segir:
“Amen, kom þú Drottinn Jesú.” Þetta er bæn
og þrá allra sannra Guðs barna, sem eru þreytt
af syndinni og afleiðingum hennar en langar
eftir nálægð frelsara síns.
Jesús lofar að koma aftur.
Síðustu dagana sem Jesús var hér á jörðunni,
þá talaði hann oft um burtför sína og endur-
komu. Það er ekkert hik eða efi á því sem
hann segir um endurkomu sína. Hann talar
um hana svo ákveðið og fullvissandi, að vér
getum öruggir reitt oss á að hann mun vissu-
lega koma aftur. “Manns sonurinn mun koma
í dýrð föðursins með englum sínum, og þá
mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni
hans.” Matt. 16:17. “Þá mun tákn manns
sonarins sjást á himninum, og þá munu allar
kynkvíslir jarðarinnar kveina, og þær munu sjá
manns soninn komandi á skýjum himins með
mætti og mikilli dýrð.” Matt. 24:30. “Hjarta
yðar skelfist ekki, trúið á Guð og trúið á mig.
í húsi föður míns eru mörg híbýli, væri ekki
svo rnundi eg þá hafa sagt yður að eg færi buri
að búa yður stað. Og þegar eg er farinn burt
og hefi búið yður stað, kem eg aftur og mun
taka yður til mín, til þess að þér séuð og þar
sem eg er. Jóh. 14:13.
Þegar Jesús var upphafinn frá jörðu og
lærisveinarnir horfðu á eftir honum þá stóðu
hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum, er sögðu
við þá: “Galíleumenn, hví standið þér og horf_
ið til himins? Þessi Jesús, sem var uppnuminn
frá yður til hirnins, mun koma á sama hátt og
þér sáuð hann fara til himins.” Post. 1 :ii.
Allir rithöfundar Nýja Testamentisins
trúðu á endurkomu Krists. Pétur postuli skrif.
aði um hana: “Til þess að trúarstaðfesta yðar,
langt um dýrmætari en forgengilegt gull, sem
þá stenzt eldraunina, geti orðið yður til lofs og
dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists.”
I. Pét. 1 :"j. “En dagur Drottins mun koma