Stjarnan - 01.08.1941, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.08.1941, Qupperneq 1
STJARNAN ÁGÚST, 1941 LUNDAR, MAN. Lækning við böli mannkynsins Hvað ráðleggur Guðs orð til að bæta úr vandræðum verkalýðsins? Þar er ekkert talað um verkamannafélög, sem heiniti réttindi sín, eða verkföll og aðrar aðferðir sem menn stinga upp á til að koma ástand- inu i betra horf. Vonin um viðreisn og endurbót er bundin við endurkomu Krists. Athugum nú hvað Guðs orð segir: “Þreyið, bræður mínir, þangað til Drottinn kemur. Sjáið, akuryrkjumaðurinn væntir jarðarinnar dýrmæta ávaxtar og þreyir þar til hann fengið hefir haustregnið og vorregnið, Þreyið og' þér styrkið yðar hjörtu, því til- koma Drottins nálægist. Kvartið ekki hver yfir öðrum bræður mínir, svo þér ekki verðið dæmdir. Sjá, dómarinn stend- ur fyrir dyrunum.” Jak. 5:7-9. Hvers vegna er bent á endurkomu Krists sem hina einu von um viðreisn fyrir hina undirokuðu? Það er vegna þess að þá byrjar ný lífsstefna, sem gjörbreytir nú- verandi fyrirkomulagi. Nú kemur Jesús ekki á sama hátt og hið fyrra skiftið. Þá fæddist hann í fátækt, sem hjálparþurf- andi barn og var lagður í jötu. Nú kemur hann sem konungur konunganna og Drott- inn drotnanna, til að stjórna jörðunni. Þá voni aðeins fáeinir fjárhirðar sem söfnuð- ust saman til að veita honum lotningu, og englarnir einir sungu yfir Betlehem sléttunum, en nú mun hann koma í skýj- unum og hvert auga mun sjá hann, líka þeir sem hann gegnumstungu.” Op. 1:7. Þá kom hann sem auðmjúkur, fátækur maður, nú mun hann koma sem dómari alls holds, svo Jakob segir: “Dómarinn stendur fyrir dyrunum.” Þá verður algjör breyting á kjörum manna. Mismunur sá, sem nú á sér stað milli fátælcra og ríkra, mentaðra og ó- mentaðra, og öll stéttaskifting fellur úr gildi. Þá verða aðeins tveir flokkar manna. Annar sem er reiðubúinn að mæta Jesú, sem hefir vænt hans og þjónað honum hér, hinn, sem hefir snúið sér frá honum, og ekki látið stjórnast af hans kærleika eða leiðst af hans anda. Jesús lofaði lærisveinum sínum fyrir löngu síðan að hann skyldi koma aftur: “Hjörtu yðar skelfist ekki, trúið á Guð og trúið á mig. í húsi föður míns eru mörg hibýli, væri ekki svo hefði eg sagt yður það. Eg fer burt til að tilbúa yður stað, og þegar eg er burt farinn og hefi tilbúið yður stað, þá mun eg koma aftur og taka yður til mín svo þér séuð þar sem eg er.” Jóh. 14:1-3. Þegar hann kemur þá er það til að taka okkur til sín. Það eru ekki einungis þeir, sem þá verða lifandi, sem hann tekur til sín. Jafn- vel þeir, sem hafa lokað augum sínum í dauðanum og hvíla í dufti jarðar, ef þeir fylgdu honum í lifanda lífi, þá munu þeir einnig fá að sameinast honum. Þetta er skýrt tekið fram hjá Páli postula: “Ekki vil eg, bræður, láta yður vera ókunnugt um hina burtsofnuðu, svo að þér séuð ekki hryggir, eins og hinir, sem vonar- lausir eru. Því ef vér trúum því, að Jesús sé dáinn og upp aftur risinn, þá mun Guð sömuleiðis fyrir Jesúm ásamt honum leiða til sín þá sem sofnaðir eru. Því það segi eg yður í Drottins orða stað, að vér, sem eftir verðum lífs við tilkomu Drottins, munurn ekki fyrri verða en hinir burt- sofnuðu; því sjálfur Drottinn mun með ákalli, með höfuðengilsraust og með Guðs lúðri af himni niður stíga; og þeir sem í Kristi eru dánir munu fyrst upp rísa. Síðan munum vér, sem eftir erum lifandi, verða hrifnir til skýja ásamt þeim til fundar við Drottinn í loftinu og munum vér siðan með Drotni vera alla tíma. Huggið því

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.