Stjarnan - 01.07.1942, Blaðsíða 14
62
STJARNAN
Nágrannar frá öðrum þjóðum
Þegar Jeisús var hér á jörðunni bauð
hann lærisveinum sínunr að flytja gleði-
boðskapinn til allra þjóða, tungumála og
fólks. Þetta felur í sér að vér verðum að
senda trúboða út til yztu endimarka heims-
ins, og einnig að vér verðum að flytja
fagnaðarerindi Krists nágrönnum vorum,
sem hafa komið hingað frá ýmsum lönd-
um heimsins.
Miljónir manna, sem tala mörg tungu-
mál og hafa útlenda siði hafa komið hing-
að og stofnað iheimili sín út um öll héruð
lands vors. Börn þeirra og barnabörn
munu vera með til þess að ákveða fram-
tíð lands vors og þjóðar.
Á þessum skelfingartimum eru þúsund-
ir manna meðal þessara ýmsu þjóða, sem
þrá sannleikann og leita hans. Daglegir
atburðir og ástand manna í heiminum,
vekur alvarlega hugsun hjá fólki og leiðir
það til að rannsaka Guðs orð til að finna
Ijós og leiðbeiningu. Það er vissulega Guðs
forsjón, sem héfir hagað því þannig að
menn og konur frá þessum ýmsu þjóðum
hafa komið hingað til vor- Þetta fólk
hefir rétt til að öðlast hlutdeild í þeirri
blessun og tryggingu sem fagnaðarerindið
veitir. Sú skylda hvílir á öllum kristnum
mönnum að sýna vináttu og bróðurhug,
bæði í tímanlegum og andlegum efnum,
þessum aðkomnu nágrönnum vorum.
Það er alment viðurkent af þteim, sem
starfa meðal þessa fólks af ýmsu þjóð-
erni í Bandaríkjunum og Canada að það
ber góðan árangur. Þetta starf var lengi
vanrækt en nú eru mörg tækifæri til að
ryðja því braut.
Kirkjudeild vor starfar á yfir 20 tungu-
málum meðal þessara miljóna sem útlenda
tungu tala í Norður-Ameríku, að meðtöld-
um nokkrum málum sem töluð eru meðal
Indíána.
Prédikarar flytja gleðihoðskapinn á
mörgum málum. Bókasölumenn og Biblíu-
kennarar heimsækja fólk á heimilunum og
hjálpa því bæði andlega og líkamlega.
Meðlimir Dorcasfélaganna hafa gjört mikið
til að hjálpa veikum og fátækum.
Vér hvetjum yður til að styðja starf
það, sem gjört er til að leiða innflytjend-
ur til Krists og hjálpa þeim til að verða
góðir borgarar lands vors og undirbúa sig
til að verða erfingjar Guðs eilífa rikis.
Louis Halswick.
Undirbúningur lœknatrúboða
Meðal hinna 150 læknastofnana Sjö-
unda dags Aðventista er einn trúboðs
læknaskóli. Það er ekki aðeins skóli,
heldur er unnið að lækningum bæði í
Sanitaríum, sjúkrahúsum og lyfsöluhúsum.
Yfir 25 þúsundir manna skifta við lyfsölu-
húsið á ári hverju, og þar að auki eru
fleiri þúsundir, sem fá hjálp á Sanitarium
og sjúkrahúss deildinni. Skólinn hefir um
500 nemendur á ári, sem læra læknisfræði,
hjúkrnn, næringargildi fæðutegunda, nudd-
lækningar og rannsóknar vísindi.
Stofnunin er í tveimur deildum, Lóma
Linda deild og Los Angeles deild. f Lóma
Linda taka nemendur fyrstu tvö árin í
læknisfræði. Þar er einnig kend hjúkr-
unarfræði og næringargildi fæðuefna.
Læknadeild skólans í Loma Linda Sani-
taríum veitir líka læknishjálp í lítilli lyfja-
búð, sem þar er ihanda þeim, sem ekki
hafa efni á að hafa prívat læknir. Hér um
hil 6,500 manns njóta hjálpar þar árlega.
f Los Angeles deildinni taka nemendur
tvö síðari árin aif læknisfræði. Þar er
líka fullkominn skóli fyrir hjúkrunarfólk,
Trúboðsskólinn í Lacombe, Alberta.