Stjarnan - 01.07.1942, Síða 15
STJARNAN
6J
og rannsóknarvísindi eru kend þar, og
verklég kensla fyrir útvortis lækningar.
Auk kenslunnar sem fram fer í Los
Angeles deildinni eru sjúklingar einnig
stundaðir á White Memorial sjúkrahúsinu,
sem er viðurkend stofnun og hefir rúm
fyrir 200 sjúklinga. Þar er lika stór lyfja-
búð í horginni, þar sem 120 þúsund sjúkl-
ingar árlega fá hjálp. Þeir sem þangað
koma eru af fátækara fólkinu, sem ekki
getur borgað nema lítið eitt fyrir læknis-
hjálp. Mentastofnunin er langt frá því að
geta borið sig, þess vegna er nauðsynlegl
að leggja fé í fyrirtækið til að verjast
skuldum.
Trúhoðs læknaskólinn var stofnaður
fyrir 36 árum síðan. Á því tímabili hafa
nær því 1500 læknar, menn og konur, út-
skrifast. Yfir 100 þeirra eru nú í öðrum
löndum og stunda trúboðsstarf. Hinir
vinna á stofnunum vorum, eða stunda
lækningar á eigin kostnað 'hér heima. Yfir
1000 hjúkrunarknur hafa útskrifast og
vinna að iðn sinni. Hér um bil 140 hafa
tekið næringar efnafræði, og fáeinir á
seinni árum hafa lært rannsóknarvísindi.
Aðal tilgangur stofnunarinnar er ekki
einungis að gefa nemendum beztu kenslu
í öllum námsgreinum, heldur að hjálpa
mannkyninu bæði í likamlegum og andleg-
um efnum eins og Jesús gjörði þegar hann
var hér á jörðunni. E. H. Isley, M.D.
Skýrsla yfir starf Sjöunda dags Aðventista
Skýrsla yfir starf Sjöunda dags Aðventista
Með!imafjöldi ................................................ 504,752
Söfnuðir ......................................................... 8,924
Lönd og eyjar þar sem þeir starfa ............................. 412
Tungumál notuð ..................................................... 824
Trúboðar sendir út árið 1940 ....................................... 122
Trúboðar sendir út í 40 ár ....................................... 4,693
Prentsmiðjur og forlagshús .......................................... 83
Prentað á tungumálum ............................................... 202
Bókasölumenn ..................................................... 3,062
Lyfsöluhús, sjúkrahús og Sanitaríum................................. 158
Sjúklingar litið eftir yfir árið ............................... 730,937
Fé notað til að veita fátækum læknishjálp ......................$418,711
Mentastofnanir ................................................... 2-877
Starfsfólk ...................................................... 29,816
Tillög að meðaltali ...........................................$ 53.48
Sjálfboða líknarfélög ............................................ 1,400
Fjölskyldur og einstaklingar, sem fengu hjálp................... 911,269
Heimsóknir ................................................... 1,275,055
Körfur með mat og blómum gefnar ................................ 539,547
Flíkur gefnar fátækum mönnum, konum og börnum.................1,144,16!
Einstaklingar sem fengu læknishjálp fyrir litið eða ekkert 327,940
Klukkutímar sem sjálfboðaliðar unnu í sambandi við önnur
líknarfélög ...............................................2,550,617
Hinn mikli prédikari Moody, þegar
hann lagði áherzlu á trúna þá sagði hann
!"rá leikmanni í Glasgow, sem prédikaði
benti á kraft trúarinnar hjá einum af
im ísraels á dögum dómaranna,
Samgar. “Maður koin hlaupandi
, 'ina og hrópaði: Samgár, Samgar,
flýðu og forðaðu lifi þínu; 600 Filistear
koma til að ráðast á þig. Hvi skyldi eg
flýja, þá vantar 400 upp á fulla tölu. Eg
ræð við þá með Guðs hjálp.” Takið eftir.
Hann reididi sig á Guðs loforð, er segir:
“Einn skal reka þúsund á flótta.” Guð
brást ekki trausti hans því orðið segir að
hann feldi 600 Filistea með nautapriki.”
Hann frelsaði líka fsrael. Horfir þú á
framtíðina með sjónauka Guðs barna,
trúnni? Tekur þú Guð á orðinu? Hans
loforð bregðast aldrei. Nei, aldrei.
L. E. C.