Stjarnan - 01.07.1942, Blaðsíða 16

Stjarnan - 01.07.1942, Blaðsíða 16
04 STJARNAN STJARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Con- ference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. Jesús, auk þú oss trúna Amerískur prédikari segir svo frá: “Fyrir nakkru síðan keyrði eg með spor- vagni í Washington. Eg veitti því eftir- tekt að vagnstjórinn gat keyrt hægt eða hart eftir vild. Með þvi aðeins að snerta handfangið gat hann látið vagninn fara hæg't, nærri því stöðvað hann. Næst þeg- ar hann snerti handfangið þaut vagninn af stað á fleygiferð. Eg var forvitinn eftir því hvernig á þessu stæði, svo eg fór til vagnstjórans og sagði: “Má eg leggja fyrir þig eina spurningu viðvikjandi þessari vél?” “Gjörðu svo vel. Hvað fýsir þig að vita?” “Hvernig stendur á að þú getur keyrt hægt og hart eftir vild með því aðeins að snerta handfangið sem hönd þín hvílir á?” “Eg styð á þetta handfang, og þegar eg vil keyra hægt þá lyfti eg því litið eitt svo það aðeins snertir aflstrauminn, en þegar eg vil keyra 'hart sný eg því þannig að það tekur inn allan afilstrauminn. Hið fyrra köllum vér keyrslumenn að “stöðva aflstrauminn.” “Þökk fyrir,” sagði eg og kvaddi. Eg hefi tvö þúsund meðlimi í söfnuði mínum,'sem aðeins “stöðva aflstrauminn,” þeir hafa aldrei gjört annað. Eg óttast fyrir að níu tíundu af safnaðameðlimum vorum “stöðvi aflstrauminn.” Vér höfum ábyggilega aflstöð. Almættiskraftur him- insins stendur oss til boða, ef vér aðeins viljum opna leiðina með því að grípa handfang trúarinnar. En það sorglega er að trú vor er svo veik að hún aðeins “stöðvar afilstrauminn.” Guð gefi oss náð til að öðlast svo mikla trú að vér getum snúið handfangi þannig. að vér hljótum allan þann kraft, sem Guð er reiðubúinn að gefa oss, þann kraft sem postularnir höfðu, svo vér getum enn- þá einu sinni opinberað Guðs kraft fyrir heiminum. Friður hlýtur að vera áhugamál vor kristinna manna, ekki endilega friður á stjórnmálasviði heimsins, heldur í vorum eigin hjörtum. Ef allir snúa 'huga sínum að því sem gott er og fagurt og Guði þókn- anlegt, þá er friðurinn fenginn. En friður milli þjóða kiemur ekki nema þjóðirnar umvendist til Guðs. Það sem vér þurfum er alvarlegt aftur hvarf þjóða og einstakl- inga til Guðs. T. T. Smávegis Álit austurbyggja á siðmenning Vestur- landa er alls ekkert hrós fyrir oss-, en það er vel þess vert að athuga hve mikill sann- leikur felst í því. Það er haft eftir Ghandi að “Frelsun Indlands er undir því komin að menn gleymi því sem þeir hafa lært aí Evrópu í síðastliðin 50 ár. Siðmenning Evrópu hugsar leinungis um ytri hlið mannlífsins en gleymir alveg að menn líka hafa sál. Vesturlandabúar hugsa meir um velferð líkamans heldur en þarfir sálar- innar. Hann hefir engan tíma til að læra að þekkja sjálfan sig. Hann hefir tíma til að lesa fréttablöðin, en ekki til að biðja Guð. Að fara á skemtanir er honum meira áhugamál heldur en að þroska líf sitt í samféilagi við Guð sinn.” ♦ > + Einu sinni 'þegar skrifari George Wash- ingtons kom of seint afsakaði hann sig með því að segja að úrið hans hefði seink- að sér. “Þá verður þú að fá þér nýtt úr, eða eg nýjan skrifara,” svaraði Washing- ton. -t -f -t Walter Raleigh var einu sinni spurður hvernig hann kæmi svo miklu i verk á svo stuttum tíma; hann svaraði: “Þegar eg þarf eitthvað að gjöra, þá geng eg að því og gjöri það strax. + + -t Þegar dagurinn er liðinn, þá er of seint að hugsa hvernig bezt hefði verið að nota hann. Settu þér því takmark strax í byrjun dagsins hvernig þú vilt verja tím.a og kröftum, svo þú þurfir ekki að iðrast eftir og það árangurslaust þegar kvöld er komið.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.