Stjarnan - 01.03.1945, Side 3
Ö T J A R N A N
19
ai' Guð trúmensku og áhuga fjölda leik-
nianna, sem starfa endurgjaldslaust meðal
nágranna sinna.
1 öðru ríki í Suður-Mexico var einn af
trúbræðrum vorum svo hamingjusamur og
glaður yfir því að hafa meðtekið frelsar-
ann, að hann ásetti sér að leiða aðra til
hans. Árangurinn varð sá að þessi tvö
síðastliðnu ár hefir hann stofnað fjóra
hvíldardagaskóla með 120 nemendum. Ný-
lega þegar hann heimsótti þorp þar sem
ibúarnir voru mjög æstir á móti honum
reyndu menn að svifta hann lífi. Hann var
a gangi með blaðaveski sitt undir hend-
inni þegar tveir menn réðust á hann. Annar
þeirra ætlaði að stinga hann með löngum
hníf, en til allrar bamingju var það þeim
megin, sem blaðaveskið var. Hnífurinn fór
gegn um blöðin og hálfa leið gegn um
Biblíuna. Þegar fólkið heyrði hve dásam-
legahann hefði verið varðveittur frá dauða,
varð það svo hrifið og vildi fá að heyra
boðskap þann er hann flutti.
Annar auðmjúkur Mecican bróðir hefir
starfað óþreytandi þótt honum hafi verið
hótað hörðu og jafnvel verið skotið á
hann af mönnurn sem óvin-urinn hafði af-
vegaleitt. Þessi bróðir hefir undirbúið und-
ir skírn 208 manns, 125 í einum stað, 51 á
öðrum, og 32 í hinum þriðja. Alt þetta fólk
hefir nýlega verið skírt og gengið í söfnuð.
í einu landi Mið-Ameríku þar sem fólkið
var mjög æst á móti Guðs orði fór inn-
fæddur maður að prédika fyrir löndum
sínum. Aftur og aftur var ráðist á sam-
komustaðinn með grjótkasti. Loks kom stór
hópur af skríl með háttstandandi borgar-
búa í broddi fylkingar. Þeir ruddust inn
í samkomusalinn, slöktu ljósin, byltu um
bekkjunum og brutu þá og hrópuðu: “Nið-
ur með Aðventista.” Það voru tvískiptar
skoðanir manna í þessari borg. Margir
fyitu flokk skrílsins, en aðrir þráðu að
heyra meira af Guðs orði. Þriðja kvöldið
sem árásin var gjörð á samkomuhúsið kom
skyndiboð ffrá konu foringjans um það að
húsið þeirra hristist svo mikið að það væri
ómögulegt að haldast við í því. Maðurinn
varð reiður mjög, sagði ríkiskirkjuprestin-
um að Aðventista villutrúarmennirnir
væru orsök í hristingi hússins, og bað
hann prestinn koma og blessa heimili sitt
og losa það við hin illu áhrif. Hann borg-
aði prestinum 5 dollara fyrir, og húsið hélt
áfram að hristast eftir sem áður. Þetta
var í ágúst 1943 og samkvæmt skýrslum,
'sem vér fengum í febrúar 1944 þá hélt það
áfram að íhristast, og það var eina húsið i
borginni, sem hristist. Þetta atvik hefir
leitt til andlegrar vakningar í borginni.
Margir í héraðinu umhverfis hafa meðtek-
ið Guðs orð og áhugi fyrir því hefir vaknað
hjá mörgum fleiri.
Bókin talar.
1 Venezuela fann kona nokkur í rusla-
haug eina af litlu bókunum okkar, það var
fyrir 17 árum síðan. Hún las hana aftur og
aftur, og langaði til að fá meiri þekkingu
á málefninu, en af því ystu blöðin vantaði
á bókina, þá gat hún ekki vitað hverjir
útgefendurnir væru til að senda eftir
meiru. Fyrir skömmu síðan dreymdi hana
að kona kom að dyrum hennar með sams-
konar bók og hún hafði fundið mörgum
árum áður. Morguninn eftir kom ein af
trúsystrum vor.um, sem bjó í sömu borg,
með samskonar bók og konan hafði. “Ó,
þetta er bókin, sem eg hefi verið að bíða
eftir í öll þessi ár,” sagði konan hrifin
þegar hún sá bókina. Hún tók með gleði
móti fagnaðarboðskapnum, og fjölskylda
hennar hafir einnig fengið áhuga fyrir
Guðs orði. Þannig er það að sendiboðar
Guðs finna.hin einlægu börn hans.
í einu af lýðveldum Mið-Ameríku var
kaþólsk kona, sem átti myndastyttu af
Maríu mey, sem hún tilbað á hverjum
degi. Einn dag meðan hún bað, leit hún
upp á myndastyttuna, en sá hana ekki. I
stað hennar var þar opin bók, Biblía, og
á blaðsíðunni þar sem hún var opin stóðu
þessi orð með skínandi letri: “Hann skaltu
láta heita Jesús því hann mun frelsa sitt
fólk frá þess syndum”.
Hún varð svo hrifin af þessu, að litlu
seinna þegar bóksölumaður kom, keypti
hún strax Biblíu og pantaði árgang af
spánska blaðinu “E1 Sentinela”, þessi kona
sameinaðist söfnuði vorum litlu seinna.
Blindi prédikarinn.
Fyrir hér um bil 10 árum síðan varð
maður í San Jose, Costa Rica, fyrir slysi,
sem hafði þær afleiðingar að hann smám-