Stjarnan - 01.03.1945, Síða 4

Stjarnan - 01.03.1945, Síða 4
20 STJARNAN saman misti sjónina. Bestu læknar voru fengnir fyrir hann, en alt árangurslaust. Maður iþessi hét C'halo Gonzalez. Allar eigur hans fóru í læknakostnað. Hann misti kjarkinn og ásetti sér að enda líf sitt svo hann yrði ekki konu sinni og börnum til byrði. Einn dag lét hann litla drenginn sinn leiða sig yfir að járnbrautar- teinunum, svo fékk hann honum peninga til að fara með í búðina og kaupa eitthvað fyrir sig. Á meðan beið hann eftir lestinni, sem hann ætlaði að láta renna yfir sig, þá kom gamall kunningi hans, sem nýlega hafði orðið Aðventisti, hann fór strax að segja iblinda manninum frá frelsaranum og kærleika hans til vor. Meðan þeir voru að tala saman fór lestin framhjá, svo líf hans var frelsað þennan daginn. En hann ætl- aði að framkvæma áform sitt daginn eftir. En aftur kom trúbróðir vor þangað á sama tíma og hélt áfram að segja blinda mann- inum frá hinum dýrmætu fyrirheitum Guðs orðs, þeir mættu þarna dag eftir dag þar til loksins ljós fagnaðarerindisins náði að skína inn í sál blinda mannsins. Hann varð áhugasamur lærisveinn Krists og er nú einn af áhrifamestu leikprédikurum vorum í Costa Rica. Bróðir Gonzalez er myndarlegur maður og ihefir ágætan framburð er hann pré- dikar. Þótt hann aldrei hafi séð Biblíu, þá hefir hann lært hinn dýrðlega boðskap sáluhjálparinnar gegnum konu sína og börn, sem lesa fyrir hann. Guð hefir notað hann til að stofna fleiri söfnuði. Eg hafði tækifæri til að vera á samkomu hjá hon- um einn hvíldardag er hann sagði frá reynslu sinni og varð eg djúpt snortinn af að heyra hann. Hann tilfærir stundum alt að 50 texta úr Biblíunni og fer alveg orð- rétt með þá. Stundum ferðast hann alla nóttina á hestbaki og lætur börnin fylgja sér til þess daginn eftir að mæta söfnuðum sem hann hefir reist upp. Óvinurinn hefir oft reynt að svifta þennan blinda prédik- ara lífinu, en englar Guðs hafa ætíð varð- veitt hann. Hugrökk skólastúlka. Guð notar jafnvel börnin til að fram- kvæma dásemdarverk sín. Eg ætla að segja ykkur frá Olympíu, sem býr í Guatemala. Hún er aðeins 12 ára gömul. Vér munum ekki vænta mikils af henni. Hún var skírð samtímis og móðir hennar, og rétt á eftir mætti hún reynslu, sem sýndi hvað ein- læglega hún hlýddi Guðs orði. í Guatemala ganga börnin á skóla sex daga vikunnar og þá auðvitað líka á hvíldardaginn, nema þegar stjórnin skipar fyrir sérstakan helgi- dag eða kirkjan hefir hátíð fyrir einhvern dýrðlinginn. Olympía bað um frí á hvdld- ardögum en kennarinn sagði henni í viður- vist allra nemendanna í hennar bekk að hvíldardagsíhald væri vitleysa, skólinn héldi áfram eins og vant var og Olympía yrði að koma eins og öll hin börnin. Nú varð litla sítúlkan að taka mikilsverða á- kvörðun. Næsta hvíldardag var sæti henn- ar autt en 'hún var á hvíldardaga skólanum. Mánudagsmorguninn á eftir kallaði kenn- arinn hana fyrir sig og spurði hvers vegna hún hefði ekki komið á skólann. Hún skýrði frá að það hefði verið hvíldardagur Drottins og hún yrði að halda hann heil- agan. “Hvers vegna verður þú að halda hvíldardaginn heilagann?” spurði kennar- inn, og öll börnin hlustuðu á með eftir- tekt. “Af því Jesús var Sjöunda dags Að- ventisti, og mig langar til að líkjast hon- um svo eg verð líka að vera Sjöunda dags Aðventisti”, sagði Olympía. Svo sagði hún kennaranum og börnunum hvers vegna Aðventistar halda hvíldardaginn. Hún sagði þeim líka um endurkomu Krists. Svo sagði kennarinn henni að hún mætti ekki vera burtu annan laugardag, því þá yrði henni hegnt, en sæti hennar í skólanum var autt næsta hvíldardag. Mánudaginn á eftir skipaði kennarinn henni að standa hreifingarlaus frammi fyr- ir öllum skólasystkinum sínum frá klukk- an 8 til klukkan 10. Þetta var erfitt, sér- staklega vegna þess að skólasystkinin hlógu að henni og gjörðu gys að henni. Hún tók því rólega og kvartaði ekki. Mátti hún ekki búast við þessu? Hafði ekki Jesús sjálfur orðið að líða? hugsaði hún með sér. Vifcu eftir viku fór Olympía á hvíldar- daga skólann og stóð svo tvo klukkutíma til aðhlægis frammi fyrir skólasystkinum sínum á mánudögum. Eftir nokkurn tíma fór kennarinn að veita því eftirtekt hvað Olympía litla var góð stúlka og hvað hún var viljug og áreiðanleg með allar skyldur sínar á skólanum.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.