Stjarnan - 01.08.1945, Qupperneq 2
58
STJARNAN
fremur, þegar lögfræðingur einn spurði
Jesúm hvert væri hið æðsta og helsta boð-
orð, svraði hann: “Þú skalt elska Drott-
inn Guð þinn af öllu hjarta þínu og af
allri sálu þinni og af öllum huga þínum.
Þetta er hið mikla og fyrsta boðorð, en
hið annað er líkt. Elska skaltu náunga
þinn, sem sjálfan þig. Á þessum tveimur
boðorðum tayggist alt lögmálið og spá-
mennirnir.” Matt. 22:36—40.
Þannig sýndi Jesús að aðalefnið í öllum
boðorðunum er kærleikur, elska til Guðs
og manna. Sá, sem elskar Guð heldur nátt-
úrlega öll fjögur fyrstu boðorðin, og sá,
sem elskar meðbræður sína finnur það
létt að hlýða þeim boðorðum, sem ákveða
afstöðu hans gagnvart öðrum mönnum. Sá,
sem elskar foreldra sína, heiðrar og virðir
þá. Sá, sem elskar nágranna sína mun
hvorki gjöra þeim líkamlegan áverka, van-
virða þá, stela frá þeim eða tala illa um
þá, heldur ekki girnast eigur þeirra. Sá,
sem í sannleika elskar Guð mun ekki hafa
neina tilhneigingu til að hafa aðra guði,
tilbiðja líkneski né leggja Guðs nafn við
hégóma. Og hann hefir innilega gleði af
því að halda Guðs heilaga hvíldardag.
Jesús sýndi ljóslega að Guðs lögmál er
kærleikur eins og hann sjálfur er kær-
leikur. Sá, sem lifir í samræmi við grund-
vallar reglur kærleikans mun einnig lifa
í samræmi við kærleikans lögmál.
Enginn má draga sjálfan sig á tálar við-
víkjandi eðli Guðs boðorða. Grundvallar
atriði þeirra eru eilíf, og ef þau voru
nokkurn tíma bindandi fyrir menn þá eru
þau og verða það ávalt. Ef það var nokkurn
tíma synd að drepa, stela, ljúga og girn-
ast, brúka Guðs nafn gálauslega og van-
helga það, sem honum er helgað, þá er það
synd ennþá og verður synd framvegis.
Enginn maður eða menn geta numið kær
leika og réttlæti úr lögum, þess vegna
getur heldur enginn maður afnumið eitt
einasta af Guðs heilögu boðorðum. Rétt
verður altaf rétt og rangt verður altaf
rangt. Guðs lögmál er eilíft og óumbreyt-
anlegt. Það er jafnt í fullu gildi nú eins
og þegar það var gefið í fyrstu.
Sálmaskáldið segir: “Verkin hans handa
eru sannleiki og réttindi. Réttsýn eru öll
hans boðorð, þau eru óbifanleg um aldur
og eilífð, gjörð með sannleika og einlægni.”
“Réttvísi þinna skipana er eilíf.” “Fyrir
löngu síðan vissi eg það um þín réttindi
að þú hefir þau eilíflega grundvallað.”
“Alt þitt orð er sannleiki, og að eilífu vara
allir þínir réttlátu dómar.” Sálm. 111:7.8.
Sálm. 119:144.152.160.
Ef Guðs lögmál ætti nokkurn tíma að
vera umbreytt eða afnumið, þá yrði að
vera einhver ástæða fyrir því. Og hvaða
ástæðu væri hægt að tilfæra? Viðvíkjandi
lögmáli Guðs lesum vér: “Drottins lög
eru fullkomin og endurnæra sálina. Drott-
ins vftnisburður er áreiðanlegur, hann
gjörir hinn fávísa hygginn Drottins boð-
orð eru rétt, þau gleðja hjartað. Drottins
skipun er ljós, hún upplýsir augun. Drott-
in dómar eru sannleiki, þeir eru allir
saman réttvísir. Þeir eru dýrmætari en
gull, já, heldur en hið skýrasta gull, og
sætari en hunang og hunangseimur, þeir
bentu þínum þjóni, sá sem þá varðveitir
hefir mikil laun.” Sálm. 19:7.11.
Hver mundi óska að afnema slíkt lög-
mál? Davíð segir um það: “Hversu mjög
elska eg þitt lögmál. Það er mitt dag-
legt umhugsunarefni. Þín boðorð gjöra mig
hygnari en mínir óvinir eru.” “Láttu mig
ekki villast frá þínum boðorðum.” Sálm.
119.97.98.10. Salómon segir: “Son minn,
gleym ekki mínum lærdómi. Þitt hjarta
varðveiti mín boðorð þau munu auka þér
langlífisár, og frið.” Orðskv. 3:1.2.
Jesajas sjámaður flutti Guðsorð viðvíkj-
andi lögmáli hans: “Bitt þú saman vitnis-
burðinn og innsigla lærdóminn í viður-
vist minna lærisveina.” Gætið lærdómsins
og vitnisburðarins. Ef þeir tala ekki sam-
kvæmt honum, þá vitið að fólkið hefir
enga birtu.” Jes. 8:16.20.
“Á því vitum vér að vér þekkjum hann,
ef vér varðveitum hans orð. Hver sem
segir eg þekki hann og varðveitir ekki hans
boðorð, er lygari og í slíkum er ekki sann-
leikur.” lJóh. 2:3.4.
Jakob postuli segir: “Ef þér gjörið fulln-
ustu því konunglega boðorði samkvæmt
Ritningunni: “Elska skaltu náunga þinn,
sem sjálfan þig”, þá gjörið þér vel, en ef
þér farið í manngreinarálit þá drýgið þér
synd og lögmálið færir yður heim sanninn
að þér séuð yfirtroðslumenn. Því þó ein-
hver héldi alt lögmálið, ef hann verður
brotlegur í einu boðorði þá er hann orð-