Stjarnan - 01.10.1946, Blaðsíða 8
80
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontaxio.
Ritstjórn og afgreiðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar^ Man, Can.
hefði pantað bækur hjá. Bókasölumaður-
inn kvaðst vera sá sem hann leitaði að, en
hann fyndi ekki lykilinn, svo hann ætlaði
að ná í húsbóndann. Hann reyndi það en
hepnaðist ekki að vekja hann, svo hann
snéri aftur til dyra við svo búið og bað
manninn mæta sér á vagnstöðinni klukkan
hálf sex um morguninn. Kaupmaður svar-
aði að hann gæti ekki sofnað fyr en hann
fengi bækurnar og bað því bóksalann að
fara upp á flata þakið og láta bækurnar
eina eftir aðra detta niður til hans. Pilt-
urinn fór upp á þakið. Þá var glaða tungl-
skin og þess vegna vel bjart. Hann fann
snæri, batt saman ibækurnar og rendi þeim
niður vegginn, sá sem niðri var tók á rnóti
þeim opnum örmum, svo festi hann pen-
ingana í snærið og bókasölumaðurinn dró
þá upp. Það eru margir í Perú og öðrum
ríkjum Suður Ameríku, sem bíða með þrá
og löngun eftir að heyra fagnaðarboðskap
frelsisins.
C. O. G.
Nákvæm rannsókn hefir sýnt að fæðu-
tegundir sem hafa verið frystar á stutt-
um tíma hafa meira næringargildi heldur
en fæða sem geymd er á annan hátt. Mat-
vara sem geymd er frosin þarf minni suðu
heldur en sú nýja af sömu tegund, og hefir
því hér um bil sama næringargiidi eins og
fersk-soðin.
+ ♦ ♦
Drykkjuskapar venjur 400 fanga í Clin-
ton fangelsinu í New York voru rannsak-
aðar, og kom það þá í ljós að einn af
hundraði hafði fyrst bragðað áfengi á
aldrinum milli 5 og 9 ára, 61 hundruðustu
frá 10. til 19. árs, 31 af hundaði á aldrinum
milli 20 og 29 ára, 6 hundruðustu frá 30
til 39, en aðeins einn af hundraði eftir 40
ára aldur.
Mamma veit hvað bezt et
Drengirnir 1 þorpinu höfðu sundlaug
skamt ifrá ánni, en þeim var alvarlega
bannað að synda í 'ánni, því nokkrum árum
áður hafði fólk drukknað, sem synti þar.
Einn idag þegar hiti var mikill, stakk
fyrirliði drengjanna upp á að þeir skyldu
fara að synda. Þeir stefndu allir að sund-
lauginni, en nú sagði formaður þeirra:
“Við skulum fara og synda í ánni.”
“Eg fer ekki þangað; mamma hefrr
bannað mér það,“ svaraði Frank. Þá sagði
hinn, með fyrirlitningu: “Frank er huglaus,
hann hangir ennþá í svuntu móður sinnar.”
Frank geðjaðist ekki vel að þessu, en hann
var vanur að hlýða móður sinni svo hann
sagði: “Mamma veit hvað best er og eg fer
ekki út í ána.” Frank fór með minni dreng-
junum í sundlaugina en 'hinir fóru út í ána,
og hvað heldur þú hafi komið fyrir? Þeir
bara skemtu sér vel og enginn þeirra druk-
naði. Stærri drengirnir fóru nú út í ána dag
eftir idag án þess að láta foreldra sína vita
það, en Frank fór með yngri drengjunum
í sundlaugina. Þeir héldu áfram að stríða
honum, en hannsvaraði einungis: “Mamma
veit hvað best er.” *
En svo einn daginn kom nokkuð fyrir,
það var síðari hluta sumars þegar sund-
tímaibilið var nærri liðið, þá var jarðarför
í þorpinu. Ókunnur maður sem spurði hvað
um væri að vera frétti þá að þó öllum
drengjunum hefði verið bannað að synda í
ánni þá hefðu þeir eldri gjört það langan
tíma, og nú hafði einn þeirra druknað. Móð-
ir látna drengsins sagði: “Eg vildi hann
:hefði hlýtt mér, eg vissi ekki að þeir fóru
út í þessa hættu.” Eftir þetta var Frank
aldrei strítt með Iþví að kalla hann hug-
leysingja.
Einu sinni var móðir George Washing-
tons spurð hvernig hún hefði getað alið
upp slíkan fyrirmyndar mann, svaraði
hún: “Eg kendi honum að hlýða.”
1 fyrra alheimsstríðinu mistu 17 þús-
undir manna lim eða limi. Á sama tímabili
voru 120 þúsundir manna sem mistu limi
af slysum heima fyrir. Það er líka sorg-
lega alvarlegt að 350 þúsundir í Banda-
ríkjunum verða árlega fyrir slysum svo
þeir verða ekki vinnufærir aftur.