Stjarnan - 01.03.1949, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.03.1949, Qupperneq 1
STJARNAN MARZ, 1949 LUNDAR, MANITOBA Einkaréttindi Guðs barna Ef það var nokkurn tíma þörf að leggja áherslu á hve nauðsynlegt það er að sýna Guði fullkomna, skilyrðislausa‘hlýðni þá er það nú. Á síðastliðnum árum hafa menn fótum troðið grundvallar reglur Guðs Ríkis, afsakað synd og tekið skoðanir og reglur manna fram yfir Guðs orð. Nú erum vér að uppskera ávöxtinn af því sem þannig hefir verið sáð. Uppskeran er flóðalda glæpa sem gengur yfir heiminn. Kenningin um Guðs náð í Jesú Kristi hefir verið svo afbökuð að undrum sætir. Margir halda því fram að Jesús hafi komið til að leysa oss frá hlýðiiisskyld- unni við Guðs boðorð, en sannleikurinn er sá að hann kom til að frelsa oss frá að brjóta og fótumtroða Guðs boðorð. Sumir halda því fram að trúin komi í stað hlýðninnar við lögmál Guðs. Vér þurfum að hafa það hugfast að hlýðni við Guð er fullkomnasti vitnisburð- urinn um að vér elskum Guð og erum Jesú lærisveinar. Jesús segir sjálfur: “Ef þér elskið mig þá haldið þér mínjboðorð.” 1 Jóh. 5:3 lesum vér: “í því sýnir sig elsk- an til Guðs að vér höldum hans boðorð, og hans boðorð eru ekki þung.” Gleymum því ekki að Jesús er “öllum þeim er honum hlýðnast undirrót ævarandi farsældar.” Hebr. 5:9. Náð Guðs á að leiða oss til hlýðni. Sönn trú sýnir sig í hlýðni við Guð. “Trúin er dauð án verkanna,” og dauð trú er gagns- laus. “Nú segir einhver: þú hefir trú, en ég hef verk, sýn mér þá trú þína án verka þinna, og ég skal sýna þér trúna af verk- um mínum.” Jak. 2:18. Leyndardómur fagnaðar erindisins er “eftir skipun hins eilífa Guðs, kunngjörður öllum þjóðum til að vekja hlýðni við trúna.” I fjallræðunni tekur Jesús það skýrt fram hvað hlýðnin er nauðsynleg. “Ekki munu allir sem til mín segja Herra, Herra, koma í himnaríki heldur þeir einir, sem gjöra vilja míns himneska Föður.” Matt 7:21. Fyrst verðum vér að læra Guðs vilja, og þar næst hlýða honum hvað sem það kostar. I Sálm 40:8 lærum vér að Jesús hafði löngun til að gjöra Föðursins vilja af því lögmál Föðursins vor í hjarta hans. þú “veist hans vilja . . . uppíæddur af lögmálinu.” Vilji Guðs er látinn í ljósi í lögmáli hans eins og vilji landstjórnar- innar er innifalinn í lögum landsins. Brot á mannlegum lögum er glæpur, brot á Guðs lögmáli er synd. Guðs sonur kom í heiminn til að frelsa menn frá synd, frelsa menn frá því að syndga. Hann kom ekki einugis til að deyja fyrir syndír vorar, heldur einnig til að veita oss kraft til að sigra yfir synd og lifa syndlausu lífi. Hann sagði: “Syndir þínar eru þér fyrirgefnar,” en hann sagði líka: “Syndga ekki framar.” “Syndin er lagabrot.” I Jóh. 3:4. Svo þegar Jesús segir: “Syndga ekki framar,” þá er sama sem hann segi: “Haltu boðorð- in,” eða “Gjörðu vilja Föður míns.” En í stað þess fljótt og fúslega að hlýða Guðs boðorðum þá hlustum vér á afsakanir, sem óvinurinn freistar vor með. Venjulegasta afsökunin er að Guð sé ekki svo smámuna- samur. Hann meini það ekki alveg eins og hann segir. Þetta var það sem feldi Evu. Að smakka bara einn ávöxt gat varla verið svo hættulegt. En allar þær skelfingar sem dunið hafa yfir heiminn eru afleiðing þeirr- ar fyrstu syndar. Sál, fyrsti konungur Israelsmanna ó- hlýðnaðist í einu einasta atriði en fyrir það misti hann ríki sitt. Þegar Samúel ávítaði hann fyrir óhlýðnina, þá reyndi hann að koma sökinni á fólkið. I Sam. 15. kap.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.