Stjarnan - 01.03.1949, Page 3

Stjarnan - 01.03.1949, Page 3
STJARNAN 19 umst þess ávalt að vér sem einstaklingar verður að standa Guði reikningskap af gjörðum vorum. Þótt oss sé kent í bæn- inni að segja: “Faðir vor,” þá er skipunin í boðorðunum til vor sem einstaklinga: “Þú skalt ekki.” Hversu oft þegar um Guðs boðorð er að ræða spyrjum vér ekki sjálfa oss. Hef ég efni á því? Kostar það ekki of mikið? Hlýðni Jóhanns Húss kostaði hann lífið á bálinu. Það kostaði Livingstone að deyja í kofa einum í Afríku. Það kostaði marga meðlimi Metódistakirkjunnar ofsóknir hungur og dauða. Vér þurfum að minnast þess að vér eigum að ganga inn í Guðs ríki “gegn um margar þrengingar.” Þegar vér sýngjum: “Vegur krossins leiðir heim,” skiljum vér þá hvað felst í þeim orðum? “Jesús ég minn kross hef tekið.” Sá sálmur var saminn af ungri stúlku, sem var rekin burt úr for- eldra húsum vegna hlýðni sinnar við Krist. Vér ættum að vera fúsir til að hlýða Guðs orði, hvað sem það kostar oss. Eftir borgarastríðið í Ameríku var stofnað lukkuspilafélag í Louisiana ríkinu. Félag- ið vildi fá einhvern mikilsmetinn mann fyr ir formann, svo þeir báðu Róbert Lee hers- höfðingja um leyfi til að nota nafn hans og buðu honum 10,000 dollara fyrir það. En hann áleit að lukkuspil væri ekki heið- arlegt fyrirtæki, svo hann vildi ekki verða við beiðni þeirra, þótt hann væri í þörf fyr- ir peninga, svo hann tók ofan gamla slitna hermanna hattinn sinn og sagði: “Herrar mínir, þessi gamli hattur slitnu, óhreinu hermannafötin sem ég er í og mannorð mitt er alt sem ég á eftir stríð- ið en þetta er ekki til sölu.” Er nokkuð til í heiminum sem getur leitt oss til að vilja selja von vora um eilíft líf? Ef Guð talar til þín gegn um orð sitt og sendir þér boðskap, sem heimtar af þér sjálfsfórn, eða sjálfsafneitun þá grátbæni ég þig, hlýdu hinní himnesku köllun. Gætum vor að vér ekki þegar náðar- tíminn endar finnumst meðal vantrúar- innar sona heldur að vér tilheyrum þeim flokki sem sagt er um: Hér eru “þeir er varðveita boð Guðs og trúna á Jesúm.” “Ef þér eruð auðsveipnir og hlýðnir þá skuluð þér njóta-landsins gæða.” Good News S.P.A. X KAPÍTULI (Framhald) Ef heimsendir kæmi á morgun, yrðir þú viðbúinn? Þetta er hamingjusamt fólk. Fyrir svo lítið innlegg hlýtur það eilífan ágóða. Þeg- ar alt er gleymt sem menn í þessu lífi hafa liðið fyrir Krists sakir, þá halda þeir áfram að njóta óútmálanlegrar sælu um þúsund miljónir ára, um endalausar aldir. Það mun borga sig vel að v-era viðbúinn, að haga sér þannig að vér séum í fullu sam- ræmi við Guð og áætlanir hans fyrir oss. Það er ljóst þegar hugsað er um eilífðina þá er það eina skynsamlega stefnan að læra vilja Guðs og fylgja honum. Með því er engu tapað en mikið grætt. Hvernig er högum þínum háttað í þessu tilliti? Ert þú við því búinn sem væntan- legt er? Ef heimsendir skyldi verða á morg- un, mundir þú þá verða við því búinn að mæta Guði þínum? Hvernig getur maður vitað það. Til þess eru margar aðferðir, en einna best er sú að spyrja sjálfan sig hvort véf óskum að Drottinn komi eða ekki. Ef vér þráum ekki komu hans og viljum heldur halda áfram við núverandi störf og stöðu þá er hætt við að viðbúnaði vorum sé eitt- hvað ábótavant. Það er víst og áreiðanlegt að vér skiljum ekki til fulls hversu ægilega þýðingarmikil er endurkoma hans, sem svo er nálæg. Ef vér aftur á móti þráum hjart- anlega að sjá Jesúm bráðlega augliti til auglitis, “Þannig að vér væntum eftir og flýtum fyrir komu Guðs dags,” þá er það gott merki þess að vér séum að reyna að lifa í samræmi við Guð og boðorð hans. “Hver sem hefir þessa von til hans hreins- ar sjálfan sig eins og hann er hreinn.” I. Jóh. 3:3. Þegar hermenn koma heim frá orustu í öðrum löndum, eftir langa og einmana- lega fjarveru hafa þeir svo mikla heimþrá að ekki verður með orðum lýst. Síðustu nótt heimferðarinnar kemur þeim varla dúr á auga, Heimþráin er svo sterk að hún heldur þeim vakandi. “Ég gleymi aldrei síðustu nóttinni áður en við komum heim,” skrifaði hermaður nokkur vini sínum. “Ég var alla liðlanga nóttina uppi á þilfari aðeins til að vera við- v

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.