Stjarnan - 01.12.1949, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.12.1949, Blaðsíða 6
94 STJAJK.NAM það. Sér þú nú ekki að ég mundi fá miklu meira en ég get gefið?“ „Mrs. Warner spurði hann nú hvar hann hefði alist upp, og hvar hann ynni. Jim sagði henni það alt, og svo það að bakarakonan hefði leitt hann til Krists og hann hefði meðtekið hann sem frelsara sinn rétt áður en bíllinn slengdi honum niður á götuna. Mrs. Warner sneri sér að manni sínum og sagði: „Hvernig væri að lofa honum að gefa börnunum jóla- gleði, og að við endurgjöldum honum með því að gefa honum heimili eins og hann væri einn af okkar börnum?“ „En við þekkjum ekki.Mr. Warner lauk ekki við setninguna, en horfði alvar- lega í augu Jims. Drengurinn mætti ró- lega augnatilliti hans. Það virtist eins og Mr. Warner hugsaði: „Get ég treyst þér Jim til að vera góður bróðir barnanna minna?“ Og hann las út úr augum hans: „Já, það er óhætt“. C.O. G. -----------ic---------- Ert þú kristinn? Hér í kristnu landi sýnist það ef til vill ástæðulaust ef ekki hlægilegt að leggja fram slíka spurningu. En ert þú kristinn? Getur þú í sannleika kallast lærisveinn og eftirfylgjandi Krists? Tökum nú annan félagskap til athug- unar. Hver er afstaða leiðenda og fylgenda hverra til annara í stjórnmálum? Til þess að fylgja stjórnmálaleiðtoga verða menn fyrst og fremst að bera traust til hans, álíta hann færan um starf sitt. En það eitt mundi ekki fullnægja fyrir leiðtogann. Hann kæmist skamt þó menn létu traust sitt í ljósi ef þeir létu þar við staðar nema. Þeir verða að sýna í verki það sem þeir viðurkenna í orði. Fyrst verða þeir að hafa traust á leiðtoganum, og því næst hjálpa honum til að koma áformum sínum í fram- kvæmd. Ef vér fylgjum þessum grundvall- ar reglum og heimfærum þær til spurn- ingarinnar: Ertu kristinn? Þá verður svar- ið auðfundið. Traust á höfundi trúarbragðanna mein- ar trú. Enginn getur verið sannur kristinn nema hann trúi á hann hvers nafn hann ber. Nú getum vér betur skilið það sem rithöfundar Biblíunnar segja um nauðsyn trúarinnar: „Án trúar er ómögulegt að þóknast honum“. Hebr. 11:6. Jesús segir: „Sá sem trúir á soninn 'hefir eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum skal ekki sjá lífið, heldur varir Guðs reiði yfir honum.“ Jóh. 3:36. , Hvað innifelst í trú á Krist? Vér fylgj- um oft jarðneskum leiðtoga að málum, en erum honum als ekki samþykkir í sumum atriðum. En viðvíkjandi Kristi er þetta ó- mögulegt. Kröfur hans eru svo miklar og háfleygar, að ef þær eru ekki sannar í því smæðsta sem hinu stæðsta, þá eru þær falskar alt í gegn. Vér verðum annaðhvort að trúa honum fullkomlega eða vér höfn- um honum að öllu leiti. Til dæmis: Jesús segist vera eitt með Föðurnum. „Guð auglýstur í holdinu.“ Enginn getur trúað þessu nema hann trúi að Guð hafi skapað heiminn. Hér er um engan milliveg að ræða. Annaðhvort trú- um vér þessu eða efum það. Og það sker úr málum með hvort vér séum kristnir eða ekki. Sá sem ekki trúir orðum Krists um sjálfan sig hefir engan rétt til að kalla sig kristinn. Vér verðum einnig að trúa á starf Krists, tilganginn með komu hans í heim- inn. „Að leita þess sem glatað var og frelsa það.“ Þeir sem álíta að heimurinn sé að verða betri og geti náð siðferðislegum þroska með sínum eigin tilraunum, þeir geta ekki trúað tilganginum með komu Krists í heiminn. Hún væri tilgangslaus ef maðurinn gæti sjálfur hafið sig upp úr djúpi syndarinnar. Starf Krists er þrefalt. Fyrst kendi hann, bæði í orði og sýndi í verki hvers Guð krefst að manninum. Þar næst var að framleiða guðsmyndina í manninum, með því að endurfæða hann af heilögum anda. Þetta, en ekkert minna þurfti tií að bæta fyrir skaða þann, sem maðurinn leið gegn um syndafallið. Svo verður endurlausnarverkið full- komnað þegar synd og syndarar verða al- gjörlega afmáðir, og réttlætið nær að ríkja. Jesús kveðst einn geta gjört þetta, af því hann sem sjálfur er Guð hefir vald til að framkvæma það. Það er þess vegna ekki nóg að skipa Jesú á bekk með öðrum siðabótarmönnum, er uppi hafa verið í heiminum, sem fluttu sumt gott og sumt ófullkomið í kenningum sínum. Vér verðum að meðtaka hann eða

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.