Stjarnan - 01.10.1951, Síða 1
STJARNAN
OKTÓBER 1951 LUNDAR, MANITOBA
Talið sannleikann
,En vita skalt þú þetta að á síðustu dög-
um munu koma örðugar tíðir, því menn
munu verða . . . rógberandi.11 Samkvæmt
þessum orðum Páls mun rógburður verða
almennur á síðustu dögum, rétt áður en
Jesús kemur.
Þetta reynist satt að vera. Ósannsögli
er því miður einkenni vorra tíma. Margir
álíta alveg ósaknæmt að tala ósatt, eða að
nokkru leiti dylja sannleikann, til að njóta
hagnaðar af því, til að ná í stöðu eða fé.
Ósannsögli á sér stað meðal allra stétta
mannfélagsins, hún er jafnvel afsökuð og
álitin leyfileg til að greiða úr óþægilegum
kringumstæðum. Það kemur fyrir að
menn álíta það eftirsóknarverða list að
geta skrökvað sakleysislega og sannfær-
andi.
Að áliti postulans er rógburður og lýgi
mjög vítaverð. Þegar Jesús lýsir vonsku
satans nefnir hann sérstaklega morð og
lýgi sem lesti hans: „Hann var manndráp-
ari frá upphafi og stendur ekki í sannleik-
anum, því sannleiki er ekki 1 honum, þegar
hann talar.lýgi talar hann af sínu eigin því
að hann er lygari og faðir lygarans.“
Jóh. 8:44.
Orðið sem Páll notar er hann lýsir
spillingu síðustu daga þíðir „djöfla“ en
hann setur orðið „rógbera“ og það má vel
vera því rógburður og lýgj eru aðalstarf
satans, og sá maður sem lýgur, ber róg og
er íllmáll er vissulega undir áhrifum sat-
ans, „því af gnægð hjartans mælir munn-
urinn.“ Matt. 12:34.
Biblían er mjög ákveðið með sannleik-
anum. Fáum dygðum er betur haldið
fram. Jesús er vegurinn sannleikurinn og
lífið“. Hann heimtar sannleika af læri-
sveinum sínum. Hann hatar alskonar svik
°g lýgi.
„Lygavarir eru Drotni andstygð, en
þeir sem sannleikann iðka eru yndi hans.“
Orðskv. 12:22.
Hinn vitri nefnir ýmislegt sem Drottinn
hatar og þar á meðal er „lýgin tunga“.
Orðskv. 6:17. Þrisvar í tveimur síðustu
kapítulum Nýja Testamentisins er því
tekið fram að „allir lygarar,“ og sá sem
„iðkar lýgi“ þeir fá ekki inngöngu í Guðs
ríki. „Þeirra hlutur mun vera í díkinu
s^m logar af eldi og brennisteini, sem er
hinn annar dauði.“ Op. 21:8.27. og 22:15.
Á dómsdegi munu orð vor í lífinu hafa
mikil áhrif á hver úrslitin verða. Jesús
segir: „Sérhvert ónytjuorð, það er menn-
irnir mæla, fyrir það skulu þeir á dóms-
degi reikning ljúka, því af orðum þín-
um muntu verða réttlætur og af orðum
þínum muntu verða sakfeldur.11
Matt. 12:36.37.
Guð metur orð manna svo mikils að tvö
af tíu boðorðunum setja reglur fyrir þau.
Þriðja boðorðið varar oss við að leggja
Guðs nafn við hégóma og hið níunda
bahnar að sverta nafn eða mannorð
náungans. „Þú skalt ekki bera ljúgvitni
gegn náunga þínum.“ 2 Mós. 20:16.
Ljúgvitni getur komið fram á fleiri en
einn hátt, vitni fyrir rétti getur borið fals-
vitni. Áður en maður ber vitni verður
hann að kynna sér það, sem hann á að
vitna um, svo að hann sé viss um að það sé
rétt framborið. Falsvitn'i getur hallað rétt-
inum og svift náungann eignum hans,
frjálsræði eða mannorði. Það er því skylda
vitnanna að segja sannleikann.
R. W. Dale segir í bók sinni, „Tíu boð-
orðin,“ „Þegar þú stendur fyrir rétti, sem
vitni móti einhverjum af samtíðarmönnum
þínum, þá minstu þess að dómarinn hefir
ekki einungis vald það sem þjó&hans hef-