Stjarnan - 01.10.1951, Page 3

Stjarnan - 01.10.1951, Page 3
STJAKNAN 75 XXVIII. Kirkjusiðir Nýja Testamentisins í Gamla Testamentinu voru gefnar reglur um helgidóminn og guðsþjónust- una. í Nýja Testamentinu eru fyrirskip- anir Krists um helgi siði fagrar, fáar og einfaldar. I. Skírnin. 1. Jóhannes skírði Jesúm í ánni Jórdan. „Þá kemur Jesús frá Galileu til Jór- danar, til Jóhannesar til að skírast af honum, en Jóhannes . . . sagði: Mér er þörf að skírast af þér og þú kemur til mín. En Jesús svaraði og sagði við hann: Lát það nú eftir því þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti. Þá lætur hann það eftir honum. Og er Jesús var skírður sté hann jafnskjótt upp úr vatninu, og sjá himnarnir opnuðust fyrir honum og hann sá Guðs anda bfan stíga eins og dúfu og koma yfir hann.“ Matt. 3:13.16. 2. Jesús skipaði skírn jyrir allar þjóðir „Farið og kristnið allar þjóðir. Skír- ið þá til nafns föðursins, sonarins og hins heilaga anda.“ Matt. 28:19. II. Vatnskírn er skipuð af Guði. 1. „Sannlega segi ég þér, ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda getur hann ekki komist inn í guðsríkið.“ Jóh.3:5. 2. Jesús gaf okkur fyrirmynd. Hann sté upp úr vatninu. 3. „Getur nokkur varnað þeim vatn- sins að þeir fái skírn, er þeir hafa fengið heilagan anda eins og vér?“ Post. 10:47. III. Skírnar aðjerðin í Nýja Testament- inu er niðurdýfing. 1. „Jóhannes skírði líka í Ainon, því að þar var vatn mikið.“ Jóh. 3:23. 2. Jesús sté „jafnskjótt upp úr vatn- inu.“ Matt. 3:16. 3. Filip og geldingurinn fóru ofan í vatnið. „Þeir stigu upp úr vatninu.“ Post. 8:36.39. 4. Orðið „skírn“ í grisku máli meinar „niðurdýfing.“ Það er að láta vatn- ið fljóta yfir. IV. Niðurdýjing er í samræmi við þýð- ing skírnarinnar. 1. Skírnin minnir á dauða, greftrun og upprisu Krists. „Vitið þér ekki að allir vér sem skírðir erum til Krists Jesú, erum skírðir til dauða hans, því að vér erum greftraðir með honum fyrir skírnina til dauðans, til þess að eins og Kristur var uppvakinn frá dauð- um fyrir dýrð föðursins, svo skulum vér og ganga í endurnýjungu lífsins. Róm. 6:3.4. 2. Skírnin er táknmynd upp á dauða og greftrun vors „gamla manns.“ „Vor gamli maður er með hönum kross- festur, til þess að líkami syndarinnar skuli að engu verða, og vér ekki framar þjóna syndinni.“ Róm. 6:6. 3. Það meinar byrjun á nýju lífi. „Svo skulum vér ganga í endurnýj- ungu lífsins.“ Róm. 6:4. 4. Skírnin bendir á hreinsun syndanna. „Hvað dvelur þú nú? Rís upp og lát afþvo syndir þínar og ákalla nafn hans.“ Post. 22:16. V. Fimm atriði til undirbúnings skirn- arinnar. 1. Þekking á Gleðiboðskap Krists. „Farið og kristnið allar þjóðir, skírið þá til nafns föðursins, sonarins og hins heilaga anda, og kennið þeim að halda alt sem ég hef boðið yður.“ Matt. 28:19.20. 2. Trú. „Sá sem trúir og verður skírð- ur mun hólpinn verða.“ Mark. 16:16. 3. Iðrun. „Gjörið iðrun og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna, og munuð þér öðlast gjöf heilags anda.“ 4. Fúsleiki að skiljast við syndina. „Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa dauða syndinni, en lifandi Guði fyrir samfélagið við Jesúm Krist.“ Róm. 6:11. 5. Líf Guði til dýrðar. „Frambjóðið sjálfa yður Guði, sem lifnaða frá dauðum, og limi yðar Guði sem réttlætisvopn.“ Róm. 6:13. VI. Skírnin er dyr til inngöngu í söjnuð Krists. 1. Jesús er höfuð safnaðarins, „Heldur

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.