Stjarnan - 01.04.1954, Page 1

Stjarnan - 01.04.1954, Page 1
STJARNAN APRÍL, 1954 LUNDAR, MANITOBA Einkenni Guðs barna Einkenni Guðs barna er að þau gefa gaum að Guðs orði og hlýða því, þau fylgja kenning og dæmi frelsarans. Jesús lýsir þeim þannig: „Mínir sauðir heyra mína raust, ég þekki þá og þeir fylgja. mér“. Jóh. 10:27. Svo segir hann hver verður árangurinn af vali þeirra að fylgja honum: „Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi menni. Faðir minn, sem hefir gefið mér þá, er öllum meiri, og enginn getur slitið þá úr hendi föðursins.. Ég og faðirinn erum eitt“. Jóh. 10:28.—30. I Jóh. 17. kap. 3. versi er oss sagt í hverju hið eilífa lífið er innifalið: „f því er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki þig hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir Jesúm Krist“. „Á því vitum vér að vér þekkjum hann ef vér höldum boðorð hans. Sá, sem segir: Ég þekki hann en heldur ekki boðorð hans er lygari og sann- leikurinn er ekki í honum“. 1 Jóh. 2:3.—4. Einu sinni kom maður til Jesú og spurði hvað hann ætti að gjöra til að eignast eilíft líf. Jesús svaraði: „Ef þú vilt innganga til lífsins þá hald þú boðorðin“. Matt. 19:17. Fyrst þekking á Guði og frelsaranum er í því innifalin að halda Guðs boðorð, og þekking á honum er eilíft líf, þá ættum vér nákvæmlega að rannsaka boðorð hans og bera líf vort saman við þau. Það verður of seint að rannsaka þetta, þegar Jesús; kemur til að „gefa hverjum eftir því sem verk hans verða“. Vér skulum nú taka til íhugunar fyrsta boðorðið: „Þú skalt ekki aðra Guði hafa“. 2 Mós. 20:3. Páll postuli talar um þá sem eru óvinir krossins Krists. „Afdrif þeirra er glötun, guð þeirra er maginn .... þeir hafa hug- ann á jarðneskum munum“. Fil. 3:19. og í Róm. 16:19. talar hann um menn sem „þjóna ekki Drotni vorum Jesú Kristi heldur maga sjálfra þeirra“. Helzta áhuga- mál þeirra er að eiga það gott. Hvað sem tekur fyrsta pláss í huga mannsins það er hans guð. Skartgripir til að hengja utan á sig, dýrindis húsmunir, skrautlegur bíll, fjársafn og fleira, er hjá- guð margra. Hugurinn snýst mest um þetta jarðneska, hverfula, en lítill eða enginn tími er notaður til að rannsaka Guðs orð til að laga líf sitt eftir því, og bæn til Guðs er vanrækt! Hvernig stendur þú, vinur minn, í þessu tilliti? Elskar þú Guð af öllu hjarta eða hyllir þú einn eða fleiri hjáguði? AnnaS boðorS: Þú skalt enga líkneskju gjöra þér . . . . þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær“. Vér mótmælendur erum alls ekki freist- aðir til að búa til líkneskjur eða falla fram fyrir þeim. En vér þurfum vissu- lega að gæta vor að vér ekki hyllum rót- gróinn vana, gagnstæðan Guðs orði, álit manna, auð, mentun, tignarstöðu eða hvað annað sem talar til skilningarvitanna, en freistar vor samtímis til að gleyma hinu, ósýnilega og eilífa. Höfum hugann á hinu himneska, „því hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft“. 2 Kor. 4:18. Þriðja boðorð: „Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma“. Það er orðið svo algengt að heyra menn nota Guðs og frelsarans heilaga nafn til áherzlu því, sem þeir eru að ræða um í daglegu, veraldlegu tali, að menn veita því varla eftirtekt. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft og svo gengur það mann fram af manni. Það verður þungur reikn- ingsskapur, sem menn hafa þar að mæta frammi fyrir Guðs dómstóli, „því Guð

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.