Stjarnan - 01.04.1954, Page 7
STJARNAN
31
Starfsmaður vor fór heim aftur fagn-
andi yfir því, hvernig Guð hafði greitt
úr vandræðunum. iÞetta fréttist út um
alt bygðarlagið og skólarnir voru vel sótt-
ir, og fólkið opnaði hjörtu sín fyrir fagn-
aðarerindinu. Nú gengur starfið vel áfram
í þessu héraði. Guðs andi starfaði vissulega
gegn um innlenda prestinn okkar. „Kröft-
ug bæn réttláts manns megnar mikið“.
Vér þurfum gjöf heilags anda til að
biðja réttilega. I stríði voru við synd og
freistingar er hann sá kraftur sem veitir
sigur. Til að byrja með verðum vér að
gefa oss fullkomlega Guði á vald og þá
mun andi hans taka sér bústað hjá oss.
Þá erum vér eitt með Jesú og ávalt fúsir
að gjöra hans vilja í öllu. Vér lifum þá
hans lífi, eða réttara sagt, hann lifir sínu
lífi í oss, og bænir vorar eru uppfyltar.
Þegar Guð er með oss þá er ekkert að
óttast. Þetta kom skýrt fram í reynslu
vorri á trúboðsstöð einni í Tanganyika.
Við Ikizu skóia vorn í Tanganyika
vorum við í vandræðum með vatn bæði
fyrir skólann og fólkið sem bjó um-
hverfis. Ár og lækir þornuðu upp og regn
var sjaldgæft. Vér ásettum oss að byggja
flóðgarð yfir gjá nálægt skólanum til að
geyma vatnið þar frá rigningartímanum.
Vér urðum að fá leyfi frá héraðshöfð-
ingjanum til að byggja flóðgarðinn. En
höfðinginn var ekki vinveittur starfi voru
og netaði oss um leyfi, svo trúboðinn kall-
aði saman starfsfólk sitt og þetta var lagt
fram fyrir Guð í bæn. Að lokinni bæn
datt trúboðanum í hug að fara til um-
boðsmanns héraðsins og segja honum frá
kringumstæðunum. Umboðsmaðurinn tók
vel máli trúboðans og heimsótti höfðingj-
an sjálfur. Árangurinn varð sá að okkur
var leyft að byggja flóðgarðmn. Þetta var
mikilsvert bæði fyrir skólann og fólkið í
nágrenninu, sem alt gladdist yfir þessum
góðu fréttum. Flóðgarðurinn var bygður
og við höfðu mnóg vatn.
Leggjum öll vor áhugamál og alla vora
erfiðleika fram fyrir Guð, og látum ávalt
leiðast og stjórnast af Guðs heilaga anda.
Kröftug bæn réttláts manns fær ætíð
áheyrn.
—J. M. MNATYSHYN
Fyrir dyrum
„Herrann drottinn gjörir ekkert án
þess að hann hafi opinberað þjónum sín-
um, spámönnunum, ráðsályktun sína“.
Amos 3:7.
Þetta er eitt af hinum dýrmætu lof-
orðum Guðs í Biblíunni. Á vorum tíma
er þetta loforð sérstaklega áríðandi. Nú,
þegar alt er í slíkri óreiðu og óvissu í
heiminum þá er hughreystandi að vita,
að Guð hefir opinberað áform sín með
heiminn og íbúa hans fyrir þjónum sín-
um spámönnunum, og þeir hafa kunn-
gjört oss það.
Hver eru áform Guðs? Þau eru mörg
eins og þættir í kaðli ,sem allir eru snúnir
saman í eina heild. Tilgangur þeirra allra
er frelsun mannkynsins og endurreisn
þess, sem glatað var.
Vér, sem nú erum uppi, lifum á hinu
alvarlegasta og dýrðlegasta tímabili, ekki
aðeins í sögu þessa heims, heldur í sögu
eilífðarinnar. Hvað er hið mikilvægasta
og alvarlegasta við yfirstandandi tíma?
Atburður sá, sem Guðs börn hafa lifað í
voninni um, er nú rétt fyrir dyrum. Von
manna gegn um 6000 ár verður bráðum
uppfylt. Endurkoma Krists í dýrð og veldi,
upprisa réttlátra, ummyndun lifandi Guðs
barna, eyðilegging óguðlegra, satan ‘bund-
inn, og jörðin í eyði — alt þetta mun eiga
sér stað, þegar Jesús kemur.
Höfum vér vissu fyrir þessu? Já, það
er ekkert efamál. Alt frá Enok til Jó-
hannesar þá benda spádómar forfeðra,
spámanna og postula á vora tíma sem
hina síðustu daga, þegar alt þetta muni
koma fram. Grundvöllur allra þessara
spádóma er vitnisburður frelsarans sjálfs.
Hann lýsir ástandi vörra tíma og bætir
svo við: „Þannig skuluð þér og vita, að
þegar þér sjáið þetta fram koma, er Guðs
ríki í nánd“.
Rétt fyrir dyrum. Opinberun Daníels-
bókar vitnar um þetta. Sól- og tungl-
myrkvinn 19. maí 1790 og stjörnuhrapið
1833 vitna hið sama. Flutningur gleði-
boðskaparins út um allan heim vitnar um
þetta, einnig útbreiðsla og aukin áhrif
katólsku kirkjunnar, baráttan milli vinnu-
veitenda og verkamanna og andleg aftur-
för mótmælendasafnaðanna, spilling fé-