Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 3

Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 3
VELFERÐ l.tbl. 3. árg. júní 1991 Málgagn og fréttabréf Landssamtaka hjartasjúklinga Ritstjóri: Hallur Hermannsson (ábm) Ritnefnd: Björn Bjarman Sigurjón Jóhannsson Afgreiðsla: Skrifstofa LHS, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, Reykja- vík Prentvinna: Prenthúsið Faxafeni 12, 108 Reykjavík. EFNI: bls. 3 Ritstjórarabb 4 Ávarp formanns 5 Skyndihappdrætti 7 Ræða, Finnur Ingólfsson 9 Ragnar Daníelsen, Ómsjáin 13 HL-stöðin, Har. St. 17 Mataræði Anna E. 19 Varðveit hjartað . . . Soffía S. 21 LPingLHS 23 Erla Markúsdóttir 24 Styrktarsjóður hjartasjúklinga 27 Kólesterólmælingar 27 Þorbjörn Arnason 29 Félagsmál 31 Aðild að SÍBS 33 Séra Emil Björnsson 35 Minningarkortin 37 fslensk hollusta Auk þess styrktarlínur, kveðjur og aug- lýsingar. Forsíðumyndin er frá Höfða í Mývatns- sveit með Reykjahlíðarfjall í baksýn. Snorri Snorrason flugstjóri tók myndina. ■SQU: ,C) VORHUGUR Vorið minnir okkur alltaf á öll þau Ijóð, sem góðskáld okkar hafa sungið því til lofs og dýrðar. “Vorið er komið og grundirnar gróa“. “Vorið góða, grœnt og hlýtt.“ “Vorið tánum tyllir, tindana át“ o.fl. fallegt og gott. Nú í lok maí, inni á vormiðju, finnst okkur vorið einn allsherjar mansöngur. Pess vegna leyfum við okkur hjá LHS að vera bjartsýn og vongóð um að allir félagar okkar taki höndum saman við að selja happdrætt- ismiða. Hver einasti miði þarfað seljast og Landspítalinn verður að fá hjartaómsjána. Happdrættið er nánar kynnt á öðrum stað í blaðinu. Pað er víst orðin fastur ósiður hjá okkur hér í VELFERÐ að vera sífellt að óska eftir hjálp við fjáraflanir, ogsíðan hælumst við um yfir þvíað þetta og hitt hafi verið gert en gleymum að þakkafyrir hjálpina. Við sendum því hér með hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu félaga sem ávalt eru reiðubúnir að hjálpa til, þegar við höfum sam- band við þá. Um þessar mundir er mikill og vaxandi áhugi á hverskyns líkams- rœkt, og því er ástæða til að vekja sérstaklega athygli á HL-stöðinni okkar, sem framkvæmdarstjórinn þar, Haraldur Steinþórsson segir nánarfrá hér í blaðinu. Nú er það auðvitað svo, að fjöldi félagsmanna okkar hefur hvorki aðstöðu né tækifæri til að sækja æfingar hjá endurhœfingastöð eða taka þátt í hópgöngum, en allir hafa aðstöðu og tœkifæri til að stunda líkamsrækt, þótt stundum vilji verða minna úr framkvæmdum, ef menn eru einir með sjálfum sér. Og þá skulum við ekki gleyma því, að gönguferðir á vit náttúrunn- ar að vorlagi gefa einstaklingnum oft meira í aðra hönd, ekki síst and- lega, heldur en æfingar í hópsemd með vélrænni tækni. Og allar endurhæfingar, öll viðhaldsþjálfun miða að einu og sama marki, sem er: “Heilbrigð sál í hraustum líkama. “ Pað er vissulega mannbætandi að blanda geði við fólk, sem mœtir mótlœti með æðru- leysi og kjarki, eins og hjartasjúklingar gera. En höfum jafnframt hugfast það sem kotbóndinn á heiðinni sagði, þegar hann, aldinn að árum, dásamaði veruna þar í fásinninu og oft hálfgerðu bjargarleysi: . . fóðrið kjarngott og kostasamt . . . OG SVO PETTA MAKALAUSA NÆÐI.“ Hallur Hermannsson Riti þessu er dreift ókeypis til allra félagsmanna Landssamtaka lijartasjúk- linga, sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, á læknabiðstofur, til ýmissa félaga- samtaka og víðsvegar þar sem fræðslu- og kynningarrit liggja frammi. 3

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.