Velferð - 01.06.1991, Síða 4

Velferð - 01.06.1991, Síða 4
---------Amai? p@iam[Ki[Ki SIGURÐUR HELGASON, FORMAÐUR LANDSSAMTAKA HJARTASJÚKLINGA STÖNDUM VÖRÐ UM HAGSMUNAMÁL HJARTASJÚKLINGA Ávarp við setningu 1. þings LHS 22. mars 1991 Góðir fundargestir. Ég býð ykkur 511 hjartanlega vel- komin á málþing Landssamtaka hjartasjúklinga, sem haldið er við upphaf 1. þings samtakanna. Þing verða í framtíðinni haldin á tveggja ára fresti. Félagar á stofnfundi 8. okt. 1983 voru 230, en eru í dag 1907, og hefur fjölgað um 330 á s.l. ári. Stofn- uð voru 10 félög á s.l. ári um land allt og eru þau deildir í Landssamtökun- um. Samtökin voru stofnuð til þess að standa þéttan vörð um hagsmuna- mál hjartasjúklinga og gæta réttar þeirra á öllum sviðum. Strax í upp- hafi varsjúklingum sem fara áttu í að- gerðir erlendis veittar margvíslegar upplýsingar og málefni hjartasjúk- linga voru kynnt. Samtökin beittu sér fyrir fjársöfnunum og á árunum 1984 - 1990 voru heildarverðmæti gjafa um 25 milljónir, sem aðallega voru tæki fyrir sjúkrahús víðsvegar um landið og gjafir til endurhæfinga- stöðva í Reykjavík og á Akureyri. Landssamtökin hafa því ekki safnað sjóðum eða eignum. Fjárhagsstaðan er samt góð. Það var eitt af fyrstu bar- áttumálum samtakanna að hjarta- skurðaðgerðir yrðu gerðar hér á landi og höfum við einmitt með tækja- kaupum stutt að þessari heillaþróun. Hjartasjúkdómar er mesti vágest- ur sem herjar í hinum vestræna heimi í dag. Guömundur Þorgeirsson yfir- læknir hefur gert töflu, sem sýnir að 43% deyi af kransæðasjúkdómi, 7% af heilablóðfalli og 4% af öðrum hjartasjúkdómum eða alls 54%. Nýlegar upplýsingar um niðurstöður í Monica-rannsóknum, sem gerð var af Hjartavernd sýna ótvírætt að dán- artíðni vegna hjartasjúkdóma fer lækkandi. Margt hefur komið í ljós að undanförnu, sem eykur von okkar og bjartsýni um að við með kröftugu forvarnarstarfi og rannsóknum get- um unnið fleiri sigra í náinni framtíð. Á þessu málþingi verður kynnt könn- un á mataræði íslendinga. Lykillinn að því að við getum náð tökum á hjartasjúkdómum eru bættar lífs- venjur aukin hreyfing og neysla hollr- ar fæðu. Rannsókn þessi mun án efa færa okkur mikilvægar upplýsingar sem að gagni munu koma í þeirri bar- áttu. Á síðasta þingi S.Í.B.S. var sam- þykkt ályktun um að kanna og undir- búa framkvæmdir við að auka rými fyrir brjóstholssjúklinga með ný- byggingum að Reykjalundi til endur- hæfingar og langvistunar. Við sem höfum notið dvalar á Reykjalundi til endurhæfingar vitum hvílíkt gagn og undur það er fyrir allar framtíðar- horfur. Hér er því um brýnt hags- munamál fyrir alla brjóstholssjúk- linga að ræða sem þjóðin öll verður Sigurður Helgason 4

x

Velferð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.