Velferð - 01.06.1991, Page 5

Velferð - 01.06.1991, Page 5
að sameinast um að styrkja. Hjarta- aðgerðir hér á landi hafa gefið njög góða raun og mikil þekking á sjúk- dómnum hefur og komið í kjölfarið. Gætum við boðið upp á góðar endur- hæfingar eftir aðgerðir, þá væri ekki fráleitt að ætla að við gætum selt þessa þjónustu erlendis. Efla þarf allar rannsóknir, sem snerta hjartasjúkdóma, enda er það öruggasta leiðin til farsæls árangur. Mikið af gögnum liggja órannsökuð hjá Hjartavernd, en framlög ríkisins á fjárlögum til rannsókna þurfa að stóraukast eða aukin framlög al- mennings. Tóbaksreykingar er einn mesti ógnvaldur er steðjar að heislu manna í dag, þær eru ein af þremur helstu áhættuþáttum hjartasjúkdóma. Evr- ópudeild Alþjóðaheilbrigðisstofnun- arinnar hefur sett það markmið að öll Evrópa verði reyklaus árið 2000. Við þurfum að taka á þessu mikla vanda- máli af meiri festu í framtíðinni og leggja meiri fjármuni í baráttuna. I flestum vestrænum löndum hefur hluti af tekjum vegna tóbakssölu ver- ið varið til þessa átaks. í erlendum blöðum og tímaritum ber mikið á að auglýst séu hálfs mánaðar dvalar- námskeið til þess að venja fólk af reykingum. Par er samhliða lyfja- meðferð lögð áherlsa á líkamlega áreynslu og heit böð meðan á dvöl- inni stendur. Hér virðist vera upplagt tækifæri fyrir okkur íslendinga, því hér eru bæði heitar og kaldar heilsu- lindir, sundlaugar, leirböð og hollur matur. Mikið gistirými er og fyrir hendi hér á landi mestan hluta ársins og er því hér tilvalið verkefni. Að lokum skal á það bent að árið 1992 verður helgað baráttunni við hjartasjúkdóma um heim allan og er það einmitt mikilvægt að við látum af hendi öflugt og vel skipulagt starf í þessari þýðingarmiklu baráttu. Tækifærin blasa alls staðar við okkur, en engin árangur fæst, nema við hefjum öflugt forvarnarstarf og mun fátt borga sig betur. Skynsamleg framtíðarstefna í heilbrigðismálum gæti og orðið ein besta auglýsing fyrir alla matvælaframleiðslu okkar og stóreflt ferðaþjónustuna svo að nokkuð sé tekið. Að lokum er það einlæg ósk mín og von að þetta málþing og síðan störf fyrsta þings okkar verði landi og þjóð til blessunar. Ég lýsi þá formlega málþingið og 1. þing LHS sett. Félag hjartasjúklinga á Reykjavíkursvœð- inu hélt vorfund að Hótel Sögu 7. júnís.l. Þá var happdrœttið okkar kynnt og sýnd- ur Corsica-bíllinn. Eitt af því sem samþykkt var á þingi LHS 23. mars s.l. var að efna til skyndihappdrættis í sumar, og reyna á þann hátt að safna fé til kaupa á óm- sjá fyrir Landspítalann, en það er nýtt rannsóknartæki, sem Ragnar Daníelssen læknir segir nánar frá hér í blaðinu. Væntanlega verða happdrættis- miðarnir komnir í sölu um svipað leiti og þetta blað kemur út. Gefnir verða út 35.000 miðar. Hver miði kostar 500 kr. Vinningar eru 3 bílar, (sjá mynd) að verðmæti kr. 3.407.000,00 og er því vinningshlutfall 19,5 %. Við heitum á alla félagsmenn okk- ar að leggja okkur lið við sölu happ- drættismiðanna, því að hver einasti miði á að seljast, og þar með getum við sagt: Aðeins dregið úr seldum miðum... Félagar í LHS eru nú orðnir rúm- lega 2.000, og má því segja að það séu ekki margir happdrættismiðar sem hver félagsmaður þyrfti að selja til að selja upp. En ekki náum við til allra, því miður, gerið okkur því þann greiða að hringja á skrifstofuna til okkar í síma 25744 eða 625744 kl. Jón Þór Jóhannsson formaður Reykja- víkurfélagsins og Rúrik Kristjánsson for- maður fjáröflunarnefndar standa við bíl- inn með auglýsingaskiltið á milli sín. 13.00 - 17.00, og þá sendum við ykk- ur þá miða sem þið takið að ykkur að selja. Engir miðar verða sendir inn um bréfalúguna til ykkar, nema í samráði við ykkur sjálf. ÓMSJJ r \- LEIÐ TIL LÆKNINGA k II íl Ágóði rennurtil kaupa á hjartaómsjá fyrír Hjartadeild ta ndspitalans Vinningar 3 bilar að verðmæti 3.407.000 kr. Dregið verðnr 15. september 1991 Miðaverð 500 kr. LANDSSAMTÖK HJARTASIÚKLINGA SKYNDI- HAPPDRÆTTI 1. JÚNÍ- 15. SEPTEMBER 1991 5

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.