Velferð - 01.06.1991, Side 7

Velferð - 01.06.1991, Side 7
RÆÐA FINNS INGÓLFSSONAR Finnur Ingólfsson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra mætti á þingi LHS í forföllum Guðmundar Bjarnasonar og fer ræða hans hér á eftir. Heilbrigðisyfirvöld reyna á hverjum tíma að fylgjast með heilsufari lands- manna og því hvaða sjúkdómar eru helstir örorkuvaldar og hvaða sjúk- dómar eru aðaldánarorsakir. í þjóðfélagi okkar í dag fer þetta ekki saman því að helstu orsakavald- ar örorku eru langvarandi sjúkdóm- ar, sem fólk getur fengið á mjög ung- um aldri svo sem geðsjúkdómar og sjúkdómar í stoðkerfi líkamans, en þeir sjúkdómar sem eru aðal dánar- orsök eru venjulega þeir sem fólk fær eftir miðjan aldur. Á þessari öld hafa þeir sjúkdómar, sem hafa verið aðal dánarvaldar, að- allega verið þrír. í byrjun aldarinnar og fyrstu fjóra áratugina var berklaveiki langskæð- asti sjúkdómurinn, bæði sem örorku- valdur og dánarorsök því að hún lagðist ekki síður á unga en aldraða, og þeir sem lifðu af sjúkdóminn báru þess venjulega menjar. Rétt fyrir miðja öldina þegar berklar létu undan síga varð krabba- mein um tíma aðaldánarorsök lands- manna, en það varð ekki lengi því strax upp úr 1950 verða hjartasjúk- dómar aðaldánarorsök og þannig hefur það verið síðan. Segja má að hjartasjúkdómar hafi að mörgu leyti hagað sér líkt og far- aldur því er ekki furða þótt gripið hafi verið til ýmissa ráðstafana af hálfu heilbrigðisyfirvalda til þess að ná tök- um á og fyrirbyggja þennan sjúkdóm. Þar sem hjartasjúkdómar eru sá sjúkdómur, sem tíðastur er sem dán- arorsök í flestum löndum Evrópu og í Norður-Ameríku er ljóst að miklar rannsóknir hafa farið fram, bæði á or- sökum sjúkdómsins og lækninga- möguleikum, og íslendingar hafa notið góðs af því að íslenskir læknar hafa aflað sér menntunar um þessa sjúkdómaflokka eins og aðra erlend- is. Rannsóknaaðstaða vegna hjarta- sjúkdóma hefur verið að byggjast upp á stærstu spítölum landsins síð- ustu 20 árin og nú er svo komið að mjög góð rannsóknaraðstaða er vegna þessara sjúkdóma á stærstu spítölunum, en Landspítalinn hefur verið byggður upp sem sérstök rann- STEFAHÍA Hafnarstræti 85 Tel(96)26366 7

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.