Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 8
sókna- og meðferðastofnun að þessu
leyti.
Síðasti áfangi í þeirri uppbyggingu
var upphaf hjartaskurðlækninga þeg-
ar tókst að flytja meginhluta
kransæðaaðgerða til landsins og sá
árangur sem náðst hefur hér á landi í
þeim aðgerðum var frá upphafi betri
en menn höfðu gert ráð fyrir, þannig
að nú velja menn fremur að fara í
hjartaaðgerð hér á landi heldur en er-
lendis.
Vissulega eru ákveðnar tegundir
hjartasjúkdóma sem ekki eru !ænk-
aðar hér, en í aðaldráttum getum við
verið mjög ánægð með það starf sem
tekist hefur að byggja upp á þessu
sviði á síðustu árum.
Lengi var um það rætt hvort það
væri fjárhagslega hagkvæmt að flytja
hjartaskurðlækningar til landsins.
í alveg nýrri skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um stjórnsýsluendurskoð-
un hjá Ríkisspítölum kom í ljós að
hver hjartaaðgerð á Ríkisspítölum
kostar í dag, að mati Ríkisendur-
skoðunar 850 þús. krónur. í þessum
kostnaði er ekki innifalinn kostnaður
vegna tækjakaupa og húsnæðis.
Kostnaður Tryggingastofnunar
ríkisins af því að senda hvern hjarta-
sjúkling til Bretlands í dag er um 1
milljón króna. Þá er það ljóst að það
er að minnsta kosti ekki fjárhagslega
óhagkvæmt að gera hjartaaðgerðir
hér á landi og auka þær.
Við erum í dag hér saman komin
vegna fyrsta formlega þings Lands-
samtaka hjartasjúklinga.
Það er ekki nýtt að sjúklingahópar
með ákveðna sjúkdóma stofni sam-
tök sín í milli.
Um það hef ég ekki neitt nema gott
eitt að segja og á hitt ber að líta að
venjulega eru slík sjúklingasamtök
ekki aðeins kröfuhópur heldureinnig
lyftistöng sem vinna sjálf að málefn-
um þeim sem um er að ræða.
Þannig sé ég að Landssamtök
hjartasjúklinga hafa á árunum 1984-
1990 gefið gjafir til ýmissa stofnana,
aðallega sjúkrahúsa og endurhæf-
ingastöðva sem nema yfir 25 milljón-
um króna.
Fyrir þessa þátttöku í uppbyggingu
heilbrigðisþjónustu ber að þakka.
Heilbrigðisráðuneytið hefur alltaf
reynt að hafa góða samvinnu við öll
samtök sjúklinga og Landssamtök
hjartasjúklinga eru þar engin undan-
tekning. Ég vil í þessu sambandi sér-
staklega minna á góða samvinnu um
að koma upp endurhæfingaraðstöðu
fyrir hjartasjúklinga á Reykjalundi á
sínum tíma, en einnig endurhæfing-
arstöðvarnar sem settar hafa verið á
stofn í Reykjavík og á Akureyri fyrir
þá sem þurfa að viðhalda þjálfun
sinni.
Ég vil að lokum flytja Landssam-
tökum hjartasjúklinga kveðjur og
árnaðaróskir.
‘'R£S»-Í1
:
dsV« r.«0y
‘.ÍBBttTt**-®
sðgg 1
15 MANAÐA
VERÐTRYGGÐ
M E E) 7 %
VOXTUM
L
Landsbanki
ísiands
Banki allra landsmanna
8