Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 9

Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 9
 GREINING HJARTASJÚKDÓMA MEÐ H JARTAÓMUN eftir Ragnar Daníelsen. Höfundur er sérfræðingur í almennum lyflækningum og hjartasjúkdómum og starfar á hjartadeild Landspítalans INNGANGUR Hjartaómum er rannsóknaraðferð sem einkum hefur verið þróuð und- anfarin 15 ár til greiningar og mats á ýmsum hjartasjúkdómum. Rann- sóknaraðferðin byggir á bergmáls- tækni þar sem sendar eru hátíðni- hljóðbylgjur inn til hjartans frá svokölluðum ómbreyti sem venju- lega er settur á brjóstvegg sjúklings- ins. Hljóðbylgjurnar endurkastast frá hjartanu og eru numdar af óm- breytinum. Með aðstoð kröftugs tölvubúnaðar er síðan sköpuð óm- mynd af útlitsgerð hjartans í tvívídd sem sjá má á sjónvarpsskermi. I grundvallaratriðum er um að ræða samskonar bergmálstækni og sjó- menn nota í fiskileitartækjum. Með sérstakri ómtækni, Doppler aðferð, er auk þess hægt að meta blóðflæði um hjartað. Doppler-ómun hefur þróast ört frá því að vera einfaldar hraðamælingar á blóðflæði um hjart- að yfir í lita-ómun þar sem allt blóð- streymi um hjartahólf og lokur er kortlagt í litum. NOTKUNARSVIÐ HJARTAÓMUNAR Kransæðasjúkdómur og afleiðing hans er algengasti hjartasjúkdómur- inn í vestrænum þjóðfélögum í dag. Við bráða kransæðastíflu verður skemmd á hjartavöðvanum í mis- munandi mæli. Með tvívíddarhjarta- ómun er nákvæmlega hægt að stað- setja og meta útbreiðslu Ragnar Daníelsen skemmdarinnar á hjartavöðvanum og hvernig hjartað starfar í kjölfar hjartaáfallsins. Kransæðamyndataka með skuggaefnisinndælingu í kransæðar er hins vegar nauðsynleg til að staðsetja þrengsli eða lokun á kransæðum. Stundum er hægt að gera útvíkkun á þrengslum í krans- æðum eða jafnvel opna lokaða æð. í öðrum tilfellum er kransæðaaðgerð besta lausnin. Hjartaómun er einföld og skjót aðferð til þess að meta ár- angur fyrir og eftir slík inngrip á starf- semi hjartavöðvans. Til að meta iokusjúkdóma þurfti áður yfirleitt að gera hjartaþræðingu. Hjartaómun hefur stórlega fækkað slíkum þræðingum eða einfaldað þær og oft gert þær ónauðsynlegar. í mörgum tilfellum er hjartaómun nú talin nákvæmari og betri aðferð til þess að meta flókna lokugalla og af- leiðingar þeirra á starfsemi hjartans. Stundum geta sýkingar lagst á hjarta- lokur og skemmt þær. Hjartaómun er besta aðferðin sem völ er á til grein- ingar slíks ástands. Það sama gildir um flesta meðfædda hjartasjúk- dóma, þar gefur hjartaþræðing í dag sjaldnast viðbótarupplýsingar við góða rannsókn með hjartaómun. Kosturinn við hjartaómun er að hægt er að framkvæma hana í skyndi, jafnvel við rúmstokk sjúklings, þegar upp koma bráð vandamál, t.d. með- an á hjartaaðgerð stendur eða eftir á. Er þá með skjótum hætti hægt að meta sjúkdómsástand og gera viðeig- andi ráðstafanir. Sjúkdómar í hjarta eru oft undir- liggjandi orsök heilaáfalla, sem í versta falli geta leitt til lamana eða dauða sjúklings. Við ýmsa hjarta- sjúkdóma geta myndast segar í hjart- anu. Hlutar þeirra geta losnað og rekið með blóðstraumnum til heila eða annarra líffæra og þannig valdið skaða. Með hjartaómun er í mörgum tilfellum hægt að greina slíka undir- liggjandi sjúkdóma og mæla með við- eigandi meðferð. NÝJUNGAR í HJARTAÓMUN Hjá sumum sjúklingum með lang- vinna lungnasjúkdóma, offitu. eða aðra aflögun á brjóstvegg getur verið framh. hls. II 9

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.