Velferð - 01.06.1991, Síða 11
framh. afbls. 9
erfitt að fá góða ómmynd af hjartanu
gegnum brjóstvegginn. Um miðjan
7. áratuginn var farið að þróa hjarta-
ómunaraðferð þar sem ómbreytirinn
var settur niður í vélindað á útbúnaði
er líkist umbreyttu magaspeglunar-
tæki. Ómbreytirinn liggur þá þétt að
hjartanu aftanverðu og má í flestum
tilfella fá óvenju skýrar myndir. Að-
ferðin opnaði annan glugga að hjart-
anum og bætti stórlega möguleika á
greiningu ýmissa hjartasjúkdóma.
Vélindislæg hjartaómun er einnig
notuð við stórar aðgerðir til þess að
meta starfsemi hjartans og t.d. við
flóknar aðgerðir á hjartalokum. Er
þannig hægt að meta árangur aðgerð-
ar áður en brjóstholi er lokað og get-
ur það í ýmsum tilfellum sparað end-
uraðgerð. Með vélindislægri ómun
má einnig, með því að snúa ómbreyt-
inum í vélinda 180 gráður, skoða
ósæðina, stærstu slagæð líkamans aft-
anvert í brjóstholinu og greina sjúk-
dóma í æðinni.
Þótt hjartaómun sé yfirleitt fram-
kvæmd í hvíld er einnig mögulegt að
meta starfsemi hjartans. undir álagi
með þessari aðferð. Hægt er að auka
álag á hjartað með því að láta sjúk-
ling erfiða, með gjöf lyfja er örva
starfsemi hjartavöðvans, eða með
raförvun. Hafa rannsóknir síðustu
ára leitt í ljós að álagshjartaómun er í
vissum tilfellum nákvæmari aðferð til
að greina þrengsli í kransæðum en
hefðbundin álagshjartarit.
HJARTAÓMUN Á
LANDSPÍTALANUM
Hjartaómanir á Landspítalanum
hófust þegar 1979 með tilkomu tækis
þar sem hægt var að fá einföld hreyfi-
ómrit. Vegna örrar þróunar í gerð
rannsóknartækja, kom brátt fram
ný ómunartækni, og gáfu Landssam-
Tœki til hjartaómunar af
nýjustu gerð.
Útbúnaður til ómunar afhjarta
frá vélinda.
tök hjartasjúklinga hjartadeildinni
nýtt hjartaómunartæki 1983 er gaf
möguleika á tvívíddarhjartaómun og
vissum hraðamælingum í hjarta með
Doppler-ómun. Var það gott tæki á
sínum tíma, en vegna örrar tækniþró-
unar stenst það ekki nútímakröfur,
hefur það til að mynda ekki mögu-
leika á litaómun. Notkun hjarta-
ómunar á hjartadeild Landspítalans
hefur farið hratt vaxandi. Gerðar
voru um 200 rannsóknir fyrstu 2 árin,
á síðasta ári var rannsóknafjöldi um
1500 og stefnir í um 2000 á þessu ári.
Ljóst er að núverandi tækjakostur
spítalans stendur ekki undir slíkum
rannsóknafjölda né þeim gæðakröf-
um sem gerðar eru til hjartaómunar í
dag. Benda má á, að með tilkomu
hjartaskurðlækninga á Landspítalan-
um hafa kröfur til hjartarannsókna
með ómtækni aukist enn frekar. Auk
þess hefur fjöldi þeirra sjúklinga er
gengist hefur undir hjartaaðgerð
vegna kransæðaþrengsla, hjartaloku-
sjúkdóms, eða meðfæddra hjarta-
galla aukist með árunum. Margir
þessara sjúklinga þarfnast reglulegs
eftirlits þar sem hjartaómun er mikil-
vægt hjálpartæki.
LOKAORÐ
Þegar er ljóst að þörf er á nýju tæki til
hjartadeildar Landspítalans svo hún
standi undir auknum kröfum um
þjónustu á sviði hjartaómunar, en
deildin hefur verið vanbúin til þess
undanfarið. Þarf átak til að bæta úr
því ef Landspítalinn á ekki að dragast
aftur úr þróuninni. Nýju tæki þarf
jafnframt að fylgja búnaður til vél-
indislægrar hjartaómunar. Eingöngu
með því að fylgjast með í tækniþróun
á sviði hjartaómunar getur hjarta-
deild Landspítalans tekist á við verk-
efni framtíðarinnar í hjartalækning-
um.
Grindin sf.
T résm íðaverkstæði,
Hafnargötu 9a, 240 Grindavík.
Sími 68574, Fax 68296.
Kt. 62.01.79-0369, vsk.nr. 9663.
SÍMI 96-71303
WSsiGLUFJARÐARUEIÐ
Farsímar 985-27450 & 985-27455
Sigurdur HHmarsson heima 71391
11