Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 20

Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 20
læknir og sjúkraþjálfari sem velja hvaða myndband er við hæfi allt eftir líðan hvers og eins. Myndböndin eru alls fjögur. Númer I er með léttustu æfingunum, það ijörða með erfið- ustu. Mikil fræðsla er á böndunum bæði í byrjun og inn á milli æfinga. Ef til vill væri það verkefni fyrir samtök á borð við ykkur að láta gera slík myndbönd, Myndbönd þessi myndu fyrst og fremst nýtast þeim sem ekki komast í endurhæfingu strax eftir hjartaáfall eða aðgerð. Einnig þeim sjúklingum úti á landi sem ekki geta tekið þátt í gönguhóp- um t.d. yfir vetrarmánuðina o.s.frv. Lokaorð. í lokin langar mig til að draga sam- an í stuttu máli það sem mér finnst mikilvægt að hafa í huga þegar rætt er um endurhæfingu hjartasjúklinga. Fyrst skal talin sú brýna þörf á, að stefnumótun verði gerð fyrir hjarta- endurhæfingu á öllu landinu. í öðru lagi að þjálfunin getur aldrei staðið ein sér. Endurhæfing sam- anstendur af mörgum þáttum. Öðru- vísi næst ekki hámarks árangur. Fundargestir á 1. þingi LHS 22. mars 1991. í þriðja lagi vil ég nefna að ég tel að við eigum eftir að ná til fjölmargra varðandi viðhaldsþjálfunina. Við höfum aðeins náð til eldhuganna. Á endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga HL-stöðinni fengum við fróðlegt bréf í hugmyndabankann okkar. Bréfið var frá einum af þátt- takendum okkar í þjálfuninni sem er rétt um fertugt. Þessi einstaklingur lýsti því fyrir okkur hvernig líðan hans var þegar hann kom í fyrsta tím- ann hjá okkur. Hann hafði ekki kom- ið inn í leikfimissal í 30 ár. Það er fjöldi fólks sem hefur óþægilegar minningar frá margskonar þáttöku í hreyfingu frá liðnum árum. Margir hafa aldrei upplifað þá notalegu til- finningu sem hæfileg hreyfing veitir. Til þessarra einstaklinga eigum við eftir að ná. Og móttökur þeirra þegar þeir koma skipta sköpum um það, hvort okkur tekst að halda þeim nógu lengi þannig að þeir fari að finna hversu gott hreyfingin gerir þeim. Ég ætlaði að ljúka máli mínu með því að óska ykkur ánægjulegra daga á þingi landssamtakanna, og vitna í hina helgu bók. “Varðveit hjarta þitt framar öllu því þar eru uppsprettur lífs þíns. Orðskviðirnir 4. 23 GOTT VERÐ SENDUM HEIM HAGSTÆÐ KJÖR 15cm FANGELSIÐ LITLA-HRAUNI Sölusífni 98-31104 820 EYRARBAKKI MÖRGUM VERDUR GÆTNIN AD GAGNI! % wí' t&ssgsgs e* SÉRTU AKANDL „VERTU VAKANDI! Tryggingafélag bindindismanna LAgmúla 5 - 108 R«ykii»lk • Slml 67 97 00 20

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.