Velferð - 01.06.1991, Side 27
ALLIR LANDSMENN 30 ÁRA OG ELDRI:
VERÐI KÓLESTERÓL-
OG BLÓÐÞRÝSTINGSMÆLDIR!
Jafnframt verði gerð könnun á mataræði og reykinga-
venjum landsmanna. Slík könnun fari fram á 5 ára fresti.
Eftirfarandi tillaga frá stjórn LHS var samþykkt á 1. þingi
Landssamtaka hjartasjúklinga 23. mars s.l.
Fyrsta þing LHS skorar á heilbrigðisráðherra að láta fara
fram á næstu þremur árum skoðun allra landsmanna 30 ára
og eldri, til mælinga á kólesteroli og blóðþrýstingi. Skoðun
þessi verði endurtekin á 5 ára fresti. Einnig fari fram skýrslu-
gerð og verði jafnframt gerð könnun á reykingum og matar-
æði viðkomandi fólks.
Rannsókn þessi verði gerð undir stjórn heilbrigðisráðherra
og að sjálfsögðu með þátttöku allra héraðslækna, sjúkra-
húsa og heilsugæslustöðva.
Þing LHS leggur til að samtökin styðji skipun þessa með
fjárframlagi, ef þess er þörf.
Sigurður Helgason, formaður LHS. var
flutningsmaður meðfylgjandi tillögu.
Þorbjörn Árnason var fjörutíu og
tveggja ára gamall þegar hann fékk
hjartaáfall. í viðtali við Morgunblað-
ið 7. apríl sl. sagði hann að hugsan-
lega hefði of mikil vinna, streita og
svefnleysi ráðið miklu um hvernig
fór. Þorbjörn, sem er lögfræðingur
að mennt, var m.a. framkvæmdar-
stjóri Loðskinns um Ieið og hann sat í
bæjarstjórn Sauðárkróks. Hann segir
í viðtalinu: „Flestir íslendingar vinna
mikið og mjög margir við skrifborð
þar sem hreyfingarleysi og streita
fylgjast að. Menn bæta oft endalaust
við sig vinnu eins og ég gerði þar til
það fer að ganga á svefninn. Ég sofn-
aði til dæmis oftast strax en átti það til
að vakna aftur eftir tvo til þrjá tíma.
ÞORBJÖRN ÁRNASON
SAGTUM
HJARTA-
SJÚKDÓMA
Margir þykjast ekki muna drauma,
en slæmir draumar eru oft vísbending
um að menn nái ekki að slaka á. Sjö
til átta tíma svefn er nauðsynlegur, og
ef menn ná honum ekki með eðlileg-
um hætti, þá er ekkert niðurlægjandi
að taka inn lyf til að rjúfa þann víta-
hring sem menn komast í þegar þeir
sofa lítið sem ekkert. Ég var tregur til
að viðurkenna þetta og reyndi að
þreyta mig svo ég sofnaði strax, en
andlega þreytan er oft verri en sú lík-
amlega og getur endað með hjartaá-
falli eins og hjá mér.“
Á HEIMSMÆLIKVARÐA
Eftir dvöl á Borgarspítalanum og síð-
ar í endurhæfingu á Reykjalundi seg-
ir hann:
„Mér finnst ég ekki verr á vegi
staddur en ég var, kannski betur. Ég
hef byggt upp líkamlegt og andlegt
þrek og þekki nú betur takmörk mín.
Það var í raun mesta áfallið að ég,
Þorbjörn, skyldi verða fyrir þessu.
Ég sem alltaf var svo hraustur! Aldrei
orðið misdægurt.
En ég hef nú jafnað mig á því og
það er endurhæfingunni hér á
Reykjalundi að þakka. Ég tel þessa
stofnun vera á heimsmælikvarða og
það er mikið öryggi fyrir hjartasjúk-
linga að vita af henni og geta leitað
sér endurhæfingar hjá öllu þessu frá-
bæra fólki sem hér starfar."
27