Velferð - 01.04.2000, Síða 3

Velferð - 01.04.2000, Síða 3
VELFERÐ Merkí á mann! Á hausti komanda verða aðildar- félög Landssamtakanna 10 ára, að Neistanum undanskildum. Það er svo sem ekki hár aldur, en starfsemin er því öflugri auk þess sem margir góðir hlutir liafa áunnist. Samtakamáttur félaganna er mjög góður, t.d. hefur jólakortasala gengið mjög vel öll árin. Rauða hjartað er selt annað hvert ár og nú í maí er einmitt merkjasala og mun ágóði af þeirri sölu renna til tækjakaupa á landsbyggðinni. Áhersla hefur verið lögð á að félagarnir sjálfir annist alla sölu, sé þess nokkur kostur. Á flestum stöðum á landinu eru nú starfandi H.L. stöðvar auk gönguhópa sem efla bæði samheldni og auka þrótt og lífslíkur félaganna. Mikil framför hefur orðið í læknavísindum á öllum sviðum hjartalækninga. Ný tækni kallar á ný tæki og tól. Samtökin liafa reynt eftir mætti að styðja við bakið á okkar færu læknum og hjúkrunarfólki með tækja- kaupum því þau eiga það besta skilið. En vandamál með t.d. gjörgæslu og aðbúnað fyrir hjartaþræðingar og blástur ráðum við ekki við. Ég skora á alla félagsmenn og aðstandendur þeirra að taka þátt í merkjasölunni 4., 5. og 6. maí n.k. sjálfum okkur og þjóðfélaginu í heild til heilla, því það er bæði ódýrara og betra fyrir samfélagið að hafa vinnufæran mann en óvinnufæran. Markmið okkar er : Merki á mann. Gísli J. Eyland Formaður Landssamtaka hjartasjúklinga Neistinn Styrktarfélag hjartveikra barna Aðalfundur Neistans verður haldinn í Seljakirkju 11. maí nk. og hefst kl. 20.00 Sumarferð Neistans Helgina 7.-9. júlí ætla félagsmenn í Neistanum að halda árlega sumarhátíð sína að Dæli í Víðidal, Vestur-Húnavatnssýslu. Að venju verður margt um að vera. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og má m.a. nefna að í boði eru sex smáhýsi og tvö stærri sumarhús sem standa félagsmönnum til boða gegn vægu gjaldi. Þeir sem áhuga hafa á þessum húsum eru beðnir að hafa samband við Inga Bjarnar GSM 891-9393 eða með tölvupósti: ingi@vifilfell.is Markmið íslenskrar erfðagreiningar • Að vinna að rannsóknum í mannerfðafræði til að auka þekkingu og skilning á orsökum sjúkdóma. Þekking • Að nota þessa þekkingu til að bæta greiningu og meðferð. í allra þágu • Að nýta sérstöðu íslensku þjóðarinnar í þágu erfðavísinda og skapa menntafólki áhugaverð atvinnutækifæri á Islandi. • Að efla heilsuvernd, menntun og rannsóknir í líf- og læknisfræði í samvinnu við heilbrigðis-, rannsóknar- og menntastofnanir. 4á r • Að byggja upp öflugan líftækniiðnað á Islandi. ÍSLENSK W^M ERFÐACREINING Velferð 3

x

Velferð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.