Velferð - 01.04.2000, Qupperneq 4

Velferð - 01.04.2000, Qupperneq 4
Aðalfundur Félags hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu Ný lög félagsins samþykkt Vilhjálmur B. Vilhjálmsson ávarpar fundargesti. (Ljósm. frá aðalfundinum SJ og Rúrik). Aðalfundur Félags lijartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu var haldiim 25.mars í Arsal Hótel Sögu. Aidí venjulegra aðalfundarstarfa og lagabreytinga flulli Anna Lilja Gunnarsdóttir forstöðumaður þróunar- og liagdeildar Land- spítala-háskólasjúkrahúss, erindi uni stöðuna í hjartaaðgerðum og sameiningu sjúkraliúsanna. Vil- Nokkur halli á rekstri Reykjavíkur- félagsins 1999 Tekjur Félags hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu námu 1.085.015 á sl. ári, en gjöld 1.262.926. Veittir vom styrkir að upphæð 167 þús. Þannig að gjöld umfram tekjur voru 245 þús. kr. Eigið fé í árslok nam 848 þús. kr. Talsverðar sveiflur eru á tekjuhlið félagsins milli ára, þannig var 135 þús. kr. hagnaður árið 1998 og búast má við hagnaði nú í á þar sem hlutur félagsins af merkjasölu verður eflaust umtalsverður. Gjaldkeri félagsins er Rúrik Kristjánson. hjálmur B. Vilhjálmsson, for- maður Félags hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu, setti aðal- fundinn og sagði þá m.a.: Starf félagsins á liðnu starfsári hefur að mestu verið með hefðbundnum hætti, sem felst m.a. í því að taka þátt í hjartagöngu einu sinni á ári, sölu á jólakortum og að halda fræðslufund á milli aðalfunda. Til viðbótar er nú farið að ganga á hverjum laugardegi allan ársins hring og er það ánægjuleg viðbót í starfi félagsins. A síðasta aðalfundi félagsins var samþykkt tillaga um að lög Félags hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu verði endurskoðuð. Sérstök laganefnd var skipuð, en í henni áttu sæti þeir Jón Mýrdal, fulltrúi stjórnar félagsins, Jón Magnússon, lögfræðingur og Guðmundur Magnússon, fv. fræðslustjóri. Jón Mýrdal kvaddi nefndina saman og lagði nefndin fram tillögur til stjórnar félagsins sem fjallaði um tillögurnar og er fyllsta sátt um þær tillögur um ný lög sem fram verða lögð hér á eftir. Ég vil þakka nefndinni sérstaklega fyrir vandaða vinnu og vænti þess að fundurinn meti tillögurnar með jákvæðum hætti. ( Lagabreytingarnar voru samþykktar samhljóða og eru nýju lögin birt á bls. 19.) Vilhjálmur sagði frá síðasta fræðslu- fundi félagsins sem var mjög fjölmennur, en um 16o-17o manns sóttu fundinn og var fjallað um hann í sfðasta tölublaði Velferðar. Merkjasala Eins og fundarmenn vita, sagði Vilhjálmur, þá standa Landssamtök hjartasjúklinga fyrir merkjasölu til fjáröflunar annað hvert ár. t byrjun næsta mánaðar verður merkjasala eða nánar tiltekið 4.5. og 6. maí nk. og bið ég ykkur góðir fundarmenn að veita aðstoð eftir mætti. Merkjasalan er góð tekjulind fyrir félögin þar sem 25% af sölunni rennur til þeirra félaga sem annast söluna. Ágóðanum af merkjasölunni mun að þessu sinni varið til eflingar HL stöðva um land allt. Sumar HL stöðvarnar eru mjög vanbúnar tækjum og alltaf þarf að endurnýja og bæta. Merkjasalan er okkur mikils virði og í okkar röðum eru margir duglegir félags- menn, vandinn hjá okkur er að fá nógu marga því um er að ræða skemmtilegt samstarf okkar fólks á sölustöðum Gerður hefur verið stór félagsfáni til notkunar á fundum eða öðmm samkomum eftir því sem við á. Þá hefur félagið í undirbúningi að þýða úr norsku kennslugögn fyrir þá hjarta- sjúklinga sem vilja aðstoða hjartasjúklinga sem bíða frekari þjónustu. 10 ára afmælið Félagið okkar verður tíu ára í haust og höfum við tekið frá Súlnasal Hótel Sögu 16. sept. nk. Næsta þing LHS verður haldið dagana 22.-23. september í Rúgbrauðsgerðinni. Þetta er 6. þing samtakanna og munu 6o fulltrúar sitja þingið. Bæklingurinn Eru Ijón í veginum var nýverið gefinn út af landssamtökunum, þykir hann mjög góður og hefur verið sendur víða. Sú breyting hefur orðið á skrifstofunni að Ingólfur Viktorsson hætti störfum vegna aldurs. Ingólfi eru þökkuð farsæl og árangursrík störf í okkar þágu. I stað Ingólfs hefur Ásgeir Þór Árnason verið ráðinn, en hann er þekktur sem reyndur forystumaður í okkar röðum. 4 Velferð

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.