Velferð - 01.04.2000, Síða 6
r • •
Ur erindi Onnu Lilju Gunnarsdóttur á fundi Reykjavíkurfélagsins:
Við erum með endurhæfingar-
þjónustu á heimsmælikvarða
Anna Lilja. Gunnarsdóttir flytur erindi sitt.
Anna Lilja hóf mál sitt á að ræða
um þróunina í meðferð lijarta-
sjúkdóma sem henni fannst í rami
stórkostlega góð eins og fram
kemur í niðurstöðum Monika
rannsóknarimiar hjá Hjartavernd.
Anna talaði út frá glærum og
birtum við hér nokkrar þeirra
með skýringum hennar.
Arangur af meðferð
hjartasjúkdóma
Það hefur orðið dramatísk lækkun
dauðsfalla á árunum 1981-1996 vegna
kransæðastíflu eða um 57% hjá körlum og
42% hjá konum.
Það er líka til fyrirmyndar í okkar
heilbrigðiskerfi, sagði Anna Lilja, hve
aðgengi heilbrigðisþjónustunnar er gott og
að við höfum engar aldurstakmarkanir
varðandi aðgerðir eins og tíðkast hjá
nálægum þjóðum. Þetta skilar sér m.a í
fyrirbyggingu hjartasjúkdóma og vel
skipulagðri endurhæfingu.
Anna Lilja benti einnig á aukna notkun
sólarhringshjartaritunar á Landspítala
Hringbraut og vaxandi fjölda áreynsluprófa
(um 44o árið 1999) Hún hrósaði
landssamtökum hjartasjúklinga fyrir góða
frammistöðu í fræðslumálum og tók sem
dæmi bæklinginn Eru ljón í veginum
sem henni fannst fjörlega ritaður með
skemmtilegum rnyndum. Svona fræðsla
getur gert kraftaverk. Anna Lilja sagði
samstarf ráðuneytisins og fjölmiðla almennt
gott þannig að auðvelt væri að koma frá sér
gagnlegum upplýsingum til almennings.
Ég hef eftir Árna Kristinssyni, hjarta-
lækni, að við séum með endurhæfingar-
þjónustu fyrir hjartasjúklinga á
heimsmælikvarða, hélt Anna Lilja áfram.
Við verðum að varðveita vel þennan
árangur enda er hann liður í hinum góða
árangri í baráttunni við hjartasjúkdóma hér
á Islandi. Endurhæfing er í boði víða, á
spítulum, á Reykjalundi og á HL stöðvum
víða um landið.
Sameining sjúkrahúsanna
Sameiningin er gerð m.a. með það fyrir
augum að bæta þjónustu spítalanna, sagði
Anna Lilja, að sameina sérgreinar, með því
að efla sérþekkingu og sérhæfingu til að
auka gæði þjónustunnar. Efling teymisvinnu
í kjölfar sameiningar ætti einnig að auka
þekkingu og þjónustu. Við búumst við að
þjónusta verði hagkvæmari með því að draga
úr tvöföldun á þjónustu og dýrum tækjum.
Verið er að skoða endurhæfingarframboð
spítalanna, Reykjalundar og Reiri til að
samræma aðgerðir á þessu sviði sem best.
Framundan er t.d. samstarfssamningur við
Reykjalund.
I fyrirspurnatíma að erindinu loknu var
Anna Lilja beðin um að fara með þá ósk til
ráðuneytisins að hafa biðlistana sem allra
stysta því það væri mikil áreynsla fyrir
sjúklinga að bíða lengi eftir aðgerðum.
frh. á bls. 9
^spran
m SPARISJÓBUR REYKJAVÍKUR Oú NÁGRENNIS
DELYA veljum íslensk gæðalyf
6 Velferð