Velferð - 01.04.2000, Síða 19
Lög fyrir Félag hjartasjúklinga
á Reykjavíkursvæðinu
1. gr.
Nafnið er Félag hjartasjúklinga á Reykjavíkur-
svæðinu FHR og er deild í Landssamtökum
hjartasjúklinga LHS. Heimili og varnarþing
félagsins er í Reykjavík.
2. gr.
Hlutverk félagsins er að vinna að hagsmunamálum
hjartasjúklinga í samræmi við markmið LHS.
Félagið mun stuðla að góðri samvinnu við félög
hjartasjúklinga og önnur félagasamtök, sem vinna
að velferðarmálum.
3. gr.
Félagsmenn geta allir hjartasjúklingar orðið ásamt
þeim, sem styðja tilgang LHS og eru búsettir í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ,
Hafnafirði, Bessastaðahreppi, Mosfellsbæ og
Kjósarhreppi.
Innganga nýrra félaga er háð samþykki félags-
fundar. Stjórn félagsins tilkynnir nöfn þeirra til
stjórnar LHS.
4. gr.
Argjald skal vera í samræmi við ákvörðun
aðalfundar LHS á hverjum tíma. Heimilt er
stjórninni að fella niður árgjöld öryrkja, elli- og
lífeyrisþega án skerðingar á réttindum þeirra.
Gjalddagi árgjalda er eigi síðar en í september.
5. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
6. gr.
Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en í maílok.
Skylt er að auglýsa hann í fjölmiðlum og senda út
fundarboð ásamt dagskrá með minnst viku fyrirvara.
7. gr.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla gjaldkera.
3. Umræður um skýrslu stjórnar og gjaldkera.
4. Kosning formanns til tveggja ára.
5. Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára
og þriggja varamanna til tveggja ára, sbr. 9. gr.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til
eins árs og eins til vara til eins árs.
7. Lagabreyting.
8. Onnur mál.
8. gr.
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi,
enda skal lagabreytinga getið í fundarboði.
Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar
eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund, og liggi frammi
til kynningar. Slíkar tillögur taka því aðeins gildi,
að þær hljóti samþykki 2/3 greiddra atkvæða.
9. gr.
Stjórn félagsins skipa 7 menn og fer hún með
æðsta vald milli aðalfunda og ber ábyrgð gerða
sinna gagnvart þeim. Formann skal kjósa
sérstaklega til tveggja ára í senn og aðra stjórnar-
menn einnig til tveggja ára, þannig að þrír stjómar-
menn séu kosnir árlega. Þrjá varamenn skal kjósa
til tveggja ára í senn.
10. gr.
Stjómarfundi skal boða með tryggilegum hætti með
þriggja daga fyrirvara, ef unnt er. Stjómarfundur er
ályktunarfær ef fjórir stjómarmenn hið fæsta sækja
fund. Varamenn skulu ætíð boðaðir. Varamenn hafa
atkvæðisrétt, ef aðalmenn forfallast. Afl atkvæða
ræður úrslitum á stjórnarfundum. Gerðir
stjórnarinnar skulu bókfærðar.
11. gr.
Stefnt skal að því, að stjórnin boði til eigi færri en
tveggja félagsfunda á ári. Komi fram skrifleg ósk
um fund frá 50 félagsmönnum eða fleiri, ber
stjórninni að verða við henni innan 14 daga frá
móttöku bréfsins.
12. gr.
Félaginu ber að tilkynna stjórn LHS um fulltrúa
sína á þing landssamtakanna með a.m.k. mánaðar
fyrirvara. Fjöldi fulltrúa skal vera í samræmi við
lög LHS.
13. gr.
Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið þarf
til þess samþykki tveggja funda og skal annar
þeirra vera aðalfundur. Á báðum fundum þurfa 2/3
fundarmanna að samþykkja tillöguna. Hætti
félagið störfum skal LHS falin umsjón eigna. Verði
stofnað innan fimm ára nýtt félag, sem ótvírætt
telst arftaki FHR fær það eignirnar, en að öðrum
kosti fá LHS þær til frjálsrar ráðstöfunar.
Brádabirgdaákvædi.
Nú verður lögum þessum breytt og fyrri
málsliður í 5. lið 7. gr. liljóðar svo:
„Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja
ára“. Skal þá við fyrsta stjórnarkjör eftir
breytingu laganna einnig kjósa þrjá
stjórnarmenn til eins árs.
BÓNUS
Skútuvogi 13
Reykjavík
Gleddu hjarta þitt
og hættu að reykja
*
Þrátt fyrir að tíðni kransæðastíflu fari
jafnt og þétt lækkandi fá samt yfir
looo Islendinga kransæðastíflu á ári
hverju og dánartíðni af hennar
völdum er mjög veruleg.
*
Sænsku lungnasamtökin hafa gefið út
matreiðslubókina Kokbok för lung-
sjuka (matreiðslubók fyrir lungna-
sjúka) og hefur henni verið mjög vel
tekið. Einn liður í starfi samtakanna
er stofnun matreiðsluhópa sem
styrktir enr með fjárframlögum frá
samlökunum.
*
Athugun hefur farið fram í Los
Angeles héraðinu í Bandaríkjunum á
dánarorsök yfir 2oo þús. sjúklinga
sem létust á sjúkrastofnunum
héraðsins á árunum 1985-1996 vegna
kransæðasjúkdóma.
Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í
ljós að áberandi margir létust í
desember og janúar og áberandi
margir um helgar. Af þessu má draga
þá ályktun að kransæðasjúklingar eigi
að fara með gát á stórhátíðinni og
passa að borða ekki of mikið eða
drekka of mikið um helgar.
*
Hjarta- og lungnasjúklingasamtökin í
Svíþjóð láta félagsmenn sfna greiða
60 krónur sænskar í félagsgjöld.
Félagsgjaldasjóðnum er skipt í sex
staði og fær blaðið Status mest, eða
3o% og hjarta- og lungnaskólinn
29%. Ekki vitum við hve hér er um
háar fjárhæðir að ræða, sennilega
eitthvað yfir 2o miljónir ísl. krónur í
heildina. I sömu heimild er skýrt frá
því að allur stjórnunarkostnaður
samtakanna sé greiddur af ríkinu.
Velferð 19