Velferð - 01.04.2000, Page 22
Æðahreinsari - raun
hæft lækningatæki
Japanskir verkfræðingar hafa smíðað örlítið
laserverkfæri sem getur farið um æðakerfi
mannslíkamans og eytt blóðtöppum og öðru
sem kann að hindra blóðrásina.
Æðavél þessi er 1.4 mm á þykkt og
samanstendur af hólk með ljósleiðara, sein
flytur orku til laserhaussins fremst í
hólknum.
Þegar æðavélin er komin á sinn stað í
æðinni er aðgerðum hennar stýrt af
lasertæki utan líkamans, sem sendir frá sér
orku sem knýr æðarnar áfram. Þá getur
æðavélin skynjað og sent skilaboð um það
hvort blóðrennsli er eðlilegt eftir að
laserinn hefur brennt burt hindranir í
æðunum.
Japanska ríkisstjórnin hefur stutt þessar
rannsóknir og telja japönsku verkfræð-
ingarnir að þeir geti snhðað enn minni vél
til að nota við lækningar á heilablóðfalli.
Þá spá vísindamennirnir því að smíða megi
örsmáa æðakafbáta sem ferðast um
æðarnar til að lagfæra þær og hreinsa.
Þessi frásögn er byggð á grein í norska
blaðinu Trygd og arbeid og eru teikning-
arnar gerðar af Ane Reppe.
0vre
hulvene
Aorta
Venstre
forkammer
Laserstrdle som brenner
opp en blodpropp
er fullstendig tilstoppet
Lyfjafyrirtækið Pfizer á íslandi hefur látið þýða og prenta 32 síðna bækling
er heitir Leiðbeiningar til karlmanna um velgengni í kynlífinu
Bæklingurinn hefur að geyma upplýsingar um:
• hvernig kynfæri karla starfa
• ástæðuna fyrir því að skyndilega getur orðið erfitt að hafa
kymnök
• hvað læknirinn getur gert til að taka á vandanum
• hvernig hjálpa má konunni að skilja vandann og taka þátt í að
leysa hann
• leiðir til að stunda gott kynlíf á ný
Enda þótt bæklingurinn geti svarað sumum spurningum um kynlífsvanda
er sjálfsagt að tala við lækninn og þiggja af honum ráð ef erfiðleika ber að
höndum.
RFA
r
Landsbanki Islands
22 Velferð