Velferð - 01.04.2000, Page 27
Umfangsmikil heilsufarskönnun í Osló
80 þúsund manns spurðir
um heilsu og lífsstíl
/ ár og nœsta ár verður efnt til mjög
umfangsmikillar heilsu- og lífsstíls-
kónnunar meðal íbúa Oslóar. Haft
verður samband við um 80 þús. manns
sem verða skoðaðir og látnir svara
nokkrum heilsufarsspurningum. Það er
sérstök heilsurannsóknarnefnd á vegum
hins opinbera sem sér um framkvœmd
málsins. Könnunin skiptist ífjóra þœtti,
1) Önnur umferð merkrar könnunar
sem gerð var í Osló á árunum 1972—73
2) Heilsufar og lífslíkur fólks í tveimur
ólíkum borgarhlutum í Osló, 3)
Almennt heilsufar Oslóarbúa og 4)
Heilsufar nýbúa í Osló.
Oslóarkönnunin frá 1972
uppfærð
Á árunum 1972—73 fór fram viðamikil
könnun á heilbrigði og lífsstíl 18 þúsund
karlmanna í Osló sem fæddir voru á
árunum 1923—1952. Þar kom í ljós svo
óyggjandi þótti að menn á aldrinum 40—49
ára með hjarta- og æðasjúkdóma sem
áhættuþætti gátu dregið mjög úr þeirri
hættu ef þeir hættu að reykja og neyttu
hollara fæðis.
1 ár og næsta ár verður þessi hópur
skoðaður aftur (er nú um 12.800 manns).
Blóðþrýstingur verður mældur, hæð og
þyngd, blóðsýni tekin og spurningablaði
svarað.
Með þessari endurkönnun ættu að fást
verðmætar upplýsingar um heilsufar og
sjúkdómatíðni hópsins sem skoðaður var
fyrir tæpum 30 árum. Athugað verður hvort
þeir sem ráðlagt var að breyta um lífsstíl
fyrir 30 árum hafi farið að ráðum lækna og
hvort heilsa þeirra í dag sé kannski
almennt betri en jafnaldra þeirra sem ekki
tóku þátt í könnuninni á sínum tíma.
Hverfarannsóknir
Það kom í ljós í rannsókninni 1972—73 að
heilsufar íbúa í hinum ýmsu hverfum í
Osló var mismunandi gott eftir því hvort
láglaunafólk bjó þar eða millistéttarfólk.
Nú verður borið saman heilsufar fólks í
borgarhlutunum Romsás og Furuseth, en
Götumyndfrá Osló, Ijósm. S.J.
sá fyrrnefndi er dæmigert úthverfi
láglaunafólks, sem að jafnaði
reykir meira, borðar óhollari mat
og hreyfir sig minna en milli-
stéttarfólk sem margt býr í
Furuseth.
Almennt heilsufar
Oslóarbúa
Til að fá sem gleggsta mynd af
heilsufari Oslóarbúa almennt þá
verður 51 þúsund manns, körlum
og konum, boðið að taka þátt í
nýju könnuninni. Bréf verða send
öllum unglingum 15-16 ára, fólki
sem er 30 ára og 40 ára, 59-60 ára
og 75-76 ára. Unglingarnir verða
skoðaðir í skólum borgarinnar, en
aðrir verða að koma af sjálfsdáðun.
Heilsufar nýbúa
Þá verður heilsufar um 13 þúsund
nýbúa rannasakað sérstaklega um
þetta leyti á næsta ári. Kannaðar
verða matarvenjur nýbúanna og
hvaða sjúkdómar herja á þá.
Ymsir öflugir aðilar koma að
þessari rannsókn, t.a.m. háskólinn
í Osló, manneldisráð, heil-
brigðisráðuneytið og íþrótta-
háskólinn í Noregi.
Davíð
Utfararstj.
Inger
Umsjón
Ólafur
Ufararstj.
LIKKISTUVINNUSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONAR
1899
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVIK
Velferð 27