Velferð - 01.12.2018, Page 9

Velferð - 01.12.2018, Page 9
Á íslandi voru hjartalœkningar ekkifyrirferðarmiklarfyrir hálfri öld. Sjúklingar með kransceðastíflu lágu á almennri lyflœkningadeild ígamla spítalanum, fastir í rúminu fyrstu vikuna, og ncestu tvœr eða þrjár með hcegt vaxandi fótaferð. Meðferð, auk rúmlegu, var súrefni í nös, nítróglycerín, digital- is, kínidín og kúmadín-lyf. Þeir máttu reykja að vild alveg fram í andlátið. Um fjórðungur dó í legunni. Einu rannsókn- irnar voru röntgenmynd og hjartalínurit.1 Á sjöunda áratugnum verður vart við öra framþróun í heiminum á sviði hjartalækninga. Fyrsta hjartaígræðsla var framkvæmd 3. desember 1967 þegar suður-afríski læknirinn Christian Barnard græddi í fyrsta sinn gjafahjarta í sjúkling. Fyrsta kransæðahjáveituaðgerð var gerð um svipað leyti. Hjartahnoð og blástur voru tekin upp og farið að beita lost- meðferð. Þá er farið að mynda heilaæðar og gera aðgerðir með smásjáraðstoð. Hjartagjörgæsla var opnuð á Landspít- ala, stuðtæki komu til sögunnar. Hjartaþræðing, kransæða- myndataka, innanæðaaðgerðir/blásningar og rafvending hófust um svipað leyti. Hjartasjúkdómafélag íslands var stofnað 1968. Félagsmenn eru allir starfandi hjartalæknar. Á sjötta áratugnum var byrjað að beita hjartahnoði og gefa raflost án þess að opna brjóstkassann. Hjartadeild var form- lega stofnuð 13. júní 1969. Lítið var um mælitæki og flest skurðáhöld voru aflagðar græjur frá skurðdeildinni. Fyrsta gangráði komið fyrir í sjúklingi 1969. Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar hófst 1967. Voru 30.000 einstaklingar rannsakaðir og hefur verið fylgst með þeim síðan. Göngudeild fyrir háan blóðþrýsting og blóðfitur var stofnuð 1977. Fyrsta hjartaþræðingin fór fram 1970 og voru rúmlega fimmtíu þræðingar fyrsta árið, aðallega á börnum vegna meðfæddra hjartagalla. Fljótlega var farið að framkvæma lcransæðaþræðingar. Lælcnum með þjálfun í hjartaþræðing- um fór að fjölga. Árið 1986 var opnuð fullkomin hjarta- þræðingastofa, sem fyrsta slcref í flutningi opinna hjartaað- gerða til íslands. microlire Blóðþrýstingsmælar Microlife BP A2 - Vnr: 100099 • Sjálfvirkur mælir • Auðveldur í notkun • Minni fyrir 30 mælingar • Nemur hjartsláttaróreglu (PAD) • fslenskar leiðbeiningar Microlife BP A6 - Vnr: 100101 • Sjálfvirkur mælir • Stilling fyrirtvo notendur • Nemur gáttatif (AFIB) • Val um eina mælingu eða þrjár mælingar í röð (MAM) • (slenskar leiðbeiningar 500 kr. af hverjum mæli rennur til styrktar Hjartaheilla HjartaHeill Fast í naesta aPótekí! Velferð 9

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.