Velferð - 01.12.2018, Side 13

Velferð - 01.12.2018, Side 13
Fyrstu skrefin Hjartasjúklingum var vel ljóst hvað þörf fyrir nýjan tækja- búnað á Landsspítala var orðin brýn. Því var fyrsta verk þeirra að safna fé til að kaupa á hjartasónartæki, sem hingað hafði verið lánað, erlendis frá til kynningar. Með öflugri fjársöfnun LHS tókst að halda tækinu og færa Landspítala það til eignar. Næsta verkefni var að safna fyrir nýju hjarta- þræðingartæki, sem var keypt árið 1984. Næsta ár voru keyptir þrír hjartasíritar, „Holtertæki", á veg- um LHS til að fylgjast með hjartsláttartruflunum sjúklinga og skrá þær. Gjöf LHS fylgdi hugbúnaður og ferð fyrir hjúkr- unarfræðing til London til að kynna sér meðferð tækjanna. Efnt var til átaks undir kjörorðinu: „Tökum á - tækin vantar" árið 1985 og þetta slagorð hefur sjaldnast verið langt undan enda lýsandi fyrir það sem var verið að gera. Næsta verkefni LHS var að styrkja sjúklinga sem voru að fara til útlanda í hjartaaðgerð. Einnig tókst að fá fargjöld fylgdarmanna þeirra lækkuð um helming. Árið 1985 voru félagar LHS orðnir um 500. Þar var sam- þykkt tilaga um að ráða starfsmann á skrifstofu samtakanna. Var Hallur Hermannsson ráðinn til að stýra skrifstofunni frá 1. ágúst það ár. Fram að því höfðu stjórnarmenn og aðrir áhugamenn unnið þau störf sem þurfti. Hjartalækningar færast heim Fyrstu hjartasjúklingarnir voru skornir upp á hjartaskurð- deild Landspítalans þann 14., 16. og 18. júní 1986 og allt tókst vel. Þetta voru stórkostleg tíðindi og nánast ótrúleg. Tæpum þrem árum eftir stofnun samtakanna voru fyrstu kransæðasjúklingarnir skornir upp hér með prýðilegum árangri. Það má segja að óskir og vonir stofnenda hafi ræst með þessum áfanga. Aðgerðirnar gengu vel, en ekki reyndist unnt í upphaíi að anna þörfinni og þurfti því áfram að senda sjúklinga til London, tvo til þrjá í viku á árinu 1989. Þá höfðu verið send- ir um 2000 sjúklingar til London eða USA frá því að hjarta- skurðaðgerðir hófust um 1970. HL stöðvar Endurhæfing hjartasjúklinga á Reykjalundi hófst sumarið 1982. Fyrstu sjö árin nutu þessarar þjónustu tæplega níu hundruð hjartasjúklingar. Fljótlega kom í ljós að þörf var á viðhaldsþjálfun í framhaldinu til að halda því þreki og þoli sem áunnist hafði. Úr varð að SÍBS, Hjartavernd og LHS stofnuðu endurhæf- ingarstöð og lagði hvert þeirra kr. 500.000 til stöðvarinnar í upphafi. Hún fékk nafnið Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga, sem fljótlega var stytt í HL stöðin í daglegu tali. Hún var opnuð 1989 og hefur starfað óslitið síðan. HL- -stöðin á Akureyri hóf starfsemi í húsi Sjálfsbjargar, Bjargi, árið 1991. Landssamtök hjartasjúklinga, SÍBS og Hjarta- og æðaverndarfélag Akureyrar og nágrennis stóðu að stofnun hennar. Einnig hafa starfað svonefndir HL hópar á vegum deilda Hjartaheilla vítt um land um lengri eða skemmri tíma. Útgáfu og kynningarmál í janúar 1985, var LHS boðið að vera þáttakandi í útgáfu SÍBSfrétta og birta þar efni um starfsemi sína. Blaðið yrði sent ókeypis til allra félaga SÍBS og LHS. Var fréttapistill frá LHS fastur liður í SÍBS fréttum á næstu árum, sem þar með bárust til allra félagsmanna LHS. í sambandi við fimm ára afmæli LHS var gefið út veglegt afmælisrit sem hlaut nafnið Velferð og kom út árið 1989. Útgáfan gekk mjög vel og var ákveðið að halda henni áfram. Blaðið er sent öllum félagsmönnum og velunnurum, auk þess að því er dreift á sjúkrastofnanir og biðstofur. Velferð hefur komið út óslitið síðan. Gefið verið út fjölbreytt fræðsluefni á vegum Hjartaheilla. Fyrsta útgáfan var kynningarrit um samtökin. Þá var gefið út ritið Hjartasjúkdómar, varnir, lcekning, endurhcefing árið 1992 og hefur síðan verið endurútgefið og efnið uppfært. Eru Ijón í veginum? hefur verið einnig vinsælt rit. Samtök- in hafa einnig gefið út myndbandið Hjartans mál svo og Hjartabókina sem gefin var til Hjartadeildar Landspítalans og hefur verið uppfærð eftir þörfum. Þá má nefna mynd- bandið Grettir-Þroskasaga hjartasjúklings. Heimasíða samtakanna er www.hiartaheill.is. Deildaskipting Á aðalfundi 10. mars 1990 var lögum breytt og gert ráð fyrir deildaskiptingu eftir landssvæðum. Fjallað er um deildirnar á öðrum stað í blaðinu. Styrktarsjóður hjartasjúklinga var stofnaður 1991, með stofnfé kr. tvær milljónir. Sjóðurinn starfaði á þriðja ára- tug, en helsti tekjustofn hans var sala minningarkorta. Sá tekjustofn er nú að verulegu leyti úr sögunni. Sjóðurinn var lagður niður 2018 og starfsemi hans sameinuð skrifstofu Hjartaheilla. Innganga í SÍBS Landssamtök hjartasjúklinga gengu í Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS, árið 1992 og urðu um leið aðili að Öryrkjabandalagi íslands. Við þessa ráðstöfun jókst félagatala SÍBS verulega og síðan hafa hjartasjúklingar verið stærsta félagið innan SlBS. Hjartasjúklingar tóku strax fullan þátt í starfi SÍBS, sátu þing þess og fengu fulltrúa í stjórn. Velferð 13

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.