Mosfellingur - 10.01.2013, Blaðsíða 19

Mosfellingur - 10.01.2013, Blaðsíða 19
Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2012 Kynning á íþróttafólKinu sem tilnefnt er Kosning fer fram á www.mos.is Úrslit verða tilKynnt 24. janÚar íþróttakarl aftureldingar 2012. Íþróttakarl Aftureldingar 2012 er knattspyrnumaðurinn Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban. Steinarr er fæddur 1987 og alinn upp í Mosfellsbæ og lék knattspyrnu með Aftureldingu í öllum yngri flokkum. Þar átti hann farsælan feril og var lykilmaður í öllum liðum. Steinarr kom við sögu í sínum fyrsta leik með meistaraflokki Aftur- eldingar 2005 og hefur leikið 137 leiki með liðinu. Hann hefur verið einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins árum saman. Hann er öflugur kantmaður sem bæði er duglegur að spila bolta og gefa stoðsendingar ásamt því að skora mikið af mörkum sjálfur. Steinarr varð markahæsti leikmaður Aftureldingar í 2. deild nú í sumar, lék alla leiki og átti stóran þátt í góðu gengi liðsins. Í kjöri þjálfara og fyrirliða á vefsíðunni fotbolti. net var Steinarr valinn í lið ársins. Steinarr er af færeyskum ættum og hefur komið við sögu hjá færeyska U21 landsliðinu á undanförnum árum og skoraði m.a. glæsilegt mark fyrir liðið í undankeppni EM gegn Andorra fyrir nokkrum misserum. Steinarr er mikil fyrirmynd innan vallar og utan og hefur gegnt þjálfara- stöðum hjá yngri flokkum Aftureldingar í mörg ár. Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban er sannarlega glæsilegur fulltrúi Aftureld- ingar í kjörinu. wentzel steinarr ragnarsson Kamban knattspyrnumaður íþróttakona aftureldingar 2012. Lára Kristín Pedersen er framúrskar- andi knattspyrnukona og eitt mesta efni sem Afturelding hefur alið hingað til. Hún er aðeins 18 ára gömul og þrátt fyrir ungan aldur hefur hún verið lykilmaður og ein af máttarstólpum meistaraflokks kvenna síðastliðin tvö ár. Hún hefur einnig verið fyrirliði liðsins í þónokkrum leikjum. Lára Kristín hefur spilað 53 leiki í Pepsi-deildinni og bikarkeppni KSÍ, þar sem hún hefur skorað 7 mörk. Hún var aðeins 15 ára gömul þegar hún spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki. Lára Kristín hefur spilað fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands, þar af 15 leiki með U17, 9 leiki með U19 og einn leik með U23. Hún er einn efnilegasti miðjumaður Íslands og á eftir að láta mikið til sín taka í framtíðinni. Hún er því þegar farin að banka fast á dyr A-landsliðsins. Afturelding er mjög stolt af Láru Kristínu fyrir störf hennar utan vallar sem innan og ekki síst það hvað hún hefur sýnt uppeldisfélagi sínu mikla hollustu. Í október s.l. gerði hún nýjan samning við Aftureldingu, þrátt fyrir utankomandi pressu um að ganga í önnur og stærri lið. Mega margir taka hennar hollustu til fyrirmyndar. Lára Kristín er frábær fyrirmynd yngri stúlkna, hún er hógvær og skemmtilegur persónuleiki, sem er hrókur alls fagnaðar í hópi félaga sinna í Aftureldingu. lára Kristín Pedersen knattspyrnumaður íþróttamaður motomos 2012. Viktor hefur stundað motocross frá unga aldri og hefur verið einn af okkar fremstu ökumönnum í langan tíma. Hann varð fyrst Íslandsmeistari í MX2 flokki sumarið 2009. Keppti hann fyrir Íslands hönd á Motocross of Nations sem samanstendur af þremur bestu ökumönnum hvers lands frá yfir 100 löndum. Árið 2011 færði Viktor sig upp um flokk og tók þátt í fyrsta sinn í MX Open en það er erfiðasti flokkurinn í motocrossi og endaði þriðji. Keppti hann aftur fyrir hönd Íslands það ár í Frakk- landi á Motocross of Nations. Árið 2012 fóru hlutirnir heldur betur að gerast hjá Viktori og sigraði hann í öllum keppnum sem hann tók þátt í motocrossinu nema einni. Ljóst er að miklar æfingar hafa skilað sér en Viktor æfir að meðaltali 7- 10 sinnum í viku. Stóð Viktor uppi sem sigurvegari í MX Open ásamt að vera aftur valinn í landsliðið til að keppa á Motocross of Nations í Belgíu. Náði Ísland sínum besta árangri hingað til og ljóst að motocrossið er á ágætis siglingu hér heima með bættri aðstöðu félaga eins og MotoMos. viktor guðbergsson akstursíþróttamaður íþróttakona Hestamanna- félagsins Harðar 2012. Lilja Ósk byrjaði að stunda hestaíþrótt- ina 6 ára gömul og keppnisferill hennar hófst þegar hún var 8 ára. Alla tíð síðan hefur hún stundað hestamennsku af ákafa og dugnaði, keppt mikið og staðið sig með prýði. Hún er verðugur fulltrúi yngri kynslóðarinnar í Hestamannafé- laginu Herði, glæsilegur knapi, hefur sýnt mikla prúðmennsku bæði inni á keppnisvellinum og utan hans. Besti árangur hennar er á árinu 2012. Hún var í úrslitum í flest öllum greinum á öllum mótum sem hún tók þátt í bæði á gæðingamótum og íþróttamótum, bæði hjá Herði og á opnum mótum hjá öðrum félögum. Þess má geta að Lilja Ósk keppir mjög oft í fullorðinsflokki með góðum árangri. Árangur 2012: Firmakeppni Harðar: Ungmennaflokkur – 2. sæti. Grímutölt Harðar: Fullorð- insfl. – 1. sæti. Framhaldsskólamótið: Fjórgangur – 6. sæti. Reykjavíkurmeistaramótið: Fjórgangur –4. sæti. Íþróttamót Harðar: Fjórgangur – 2. sæti - Tölt –1.sæti. Gæðingamót Harðar: Ungmennfl. – 2. sæti – Ungmennafl. –1. sæti - Tölt –2.sæti B-flokkur –2. sæti. Knapi mótsins. Landsmót Hestamanna 2012: Ungmennafl. –10. sæti - B-flokkur – Forkeppni, 8,31. Íslandsmót yngri flokka: Fimmgangur – 4. sæti - Tölt –10. sæti. Metamót Andvara: Rökkurbrokk –1. sæti. lilja ósk alexandersdóttir hestaíþróttakona Hér fyrir neðan er kynning á íþróttafólkinu, sem tilnefnt er vegna kjörs til íþróttakarls og íþróttakonu mosfellsbæjar 2012, og afrekum þeirra á árinu.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.