Mosfellingur - 10.01.2013, Blaðsíða 32
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Þann 3. október 2012 fæddist þriðja
prinsessan okkar, hún Emma Sóley.
Hún kom í heim kl. 02:52, vóg 3.610
gr og var 51 cm að lengd. Emma Sól-
ey á tvær stoltar eldri systur, Elísu
Ósk 11 ára og Önnu 8 ára. Foreldrar
Emmu Sóleyjar eru Níels og Helga á
Helgafelli.
Erla Víðis skorar á Jónu Þórunni Guðmundsdóttur að deila með okkur uppskrift í næsta blaði
Kjúlli í BBQ og Mango Chutney
Í eldhúsinu
Erla Víðisdóttir deilir með okkur uppskrift að þessu sinni að
gómsætum kjúklingarétti.
„Einfaldur og hollur réttur sem auðvelt er að framkvæma
með fullt hús af börnum. Ekki verra að hann er hrikalega
góður.“
4 kjúklingabringur
1 dós kókosmjólk
1-2 msk mango chutney
Ca. 1/2 flaska BBQ eða meira að vild
2 teningar kjúklingakraftur
Blandið öllu hráefninu saman, setjið kjúklinginn í eldfast
mót og hellið hráefninu saman við kjúklingabringurnar.
Bakið í ofni við 180° í 30-40 mínútur eða þar til kjúklinga-
bringurnar eru eldaðar í gegn. Borið fram með hrísgrjónum,
fersku salati og ísköldu íslensku vatni.
hjá Erlu VÍðis
Verum
forVitin,
ekki dómhörð!
Það er svo yndisleg og frelsandi
tilfinning sem ég fæ þegar ég hugsa
út í það hvað mér er að takast betur
og betur, með tímanum, að útiloka
neikvæðar og dómharðar hugsanir
í garð annars fólks. Það er nefnilega
hreint út sagt mannskemmandi að
falla í þá freistni að upphefja sjálfan
sig og eigið óöryggi, sem fólk þjáist
af í mismiklu mæli, á kostnað ann-
arra... en þó mannlegt um leið! Það
er algjörlega undir okkur sjálfum
komið að rækta heldur jákvæðar
hugsanir og gefa öllum það tækifæri
að njóta vafans þegar okkur berast
neikvæðar sögusagnir til eyrna, þar
sem við vitum lítið sem ekkert um
forsögu nágrannans eða ástæðuna á
bakvið hegðun viðkomandi og útlit.
Allt mitt líf hef ég unnið í þjónustu-
starfi, sem hefur kennt mér ýmislegt
um mannleg samskipti – einna helst
hvað það borgar sig að vera kurteis
og almennilegur, en umfram allt
koma fram við fólk af virðingu! Það
eitt er víst að ef eitthvað tryggir þér
góða þjónustu, viðmót eða fram-
komu, þá er það að vera almennileg-
ur og kurteis sjálfur.
Brosum, kynnum okkur, forvitn-
umst um náungann, bjóðum fram
hjálp okkar og berum virðingu
fyrir skoðunum, stíl eða ákvörð-
unum annarra og tileinkum okkur
jákvæða punkta í fari fólks. Auðvitað
mun okkur ekki líka vel við alla sem
við mætum á lífsleiðinni, en ég trúi
á örlög og ég virkilega trúi því að
örlögin gefi okkur ekki það fólk sem
við sjálf viljum hitta eða hafa í okkar
lífi, heldur það fólk sem við þurfum
að hitta... til þess að særa okkur,
hjálpa okkur, yfirgefa okkur, elska
okkur, svíkja okkur, styrkja okkur
og gera okkur að þeim manneskjum
sem okkur er ætlað að verða.
„Þú getur verið þroskaðasta og
safaríkasta ferskja í heiminum, en
það mun samt alltaf vera til fólk sem
líkar ekki við ferskjur.“ – íslenskuð
tilvitnun eftir Dita Von Teese.
Svanhildur
SteinarrSdóttir
- Heyrst hefur...32
Helena og Sóley söfnuðu
20.000 kr. í styrktarsjóð
Helena Bjartmars Toddsdóttir og Sóley
Hólm Jónsdóttir seldu bókamerki til
styrktar Guðrúnu Nönnu sem er haldin
taugasjúkdómi. Engin meðferð er til við
sjúkdómnum í dag. Hinsvegar eru vonir
bundnar við að stofnfrumumeðferð
muni leiða til meðferðarmöguleika en
slík meðferð mun að öllum líkindum
verða mjög kostnaðarsöm. Stúlkurnar
söfnuðu 20.000 kr.
Heyrst Hefur...
...að Gummi taxi hafi verið valinn
toppman umfus árið 2012.
...að Karlakórinn stefnir verði með
opna æfingu á Hvíta riddaranum á
föstudaginn kl. 20.
...að Heiða og Bragi séu trúlofuð.
...að Geiri slæ hafi haldið upp á
þrítugsafmælið sitt á milli hátíðanna.
...að Domino’s stefni að því að opna
pizzastað við hlið snæland video í
Háholtinu í marsmánuði.
...að uppselt hafi verið á tónleika
stormsveitarinnar um síðustu helgi.
...að fiskbúðin og Hvíti riddarinn
stefni að því að bjóða upp á glæsi-
legt fiskihlaðborð í febrúar.
...að Daníel Heiðar sé orðinn pabbi.
...að Jóna Dís sé nýr formaður hesta-
mannafélagsins Harðar.
...að Hulda Jónasar hafi orðið fimmtug
á dögunum.
...að Afturelding sé að safna félögum
á skrá en vakin var athygli á því
á dögunum að úthlutun Lottó
styrkja fari eftir félagaskrá en ekki
iðkendafjölda.
...að bíll hafi brunnið til kaldra kola í
Hjallahlíðinni á nýársmorgun.
...að slegið hafi verið aðsóknarmet á
Hvíta riddaranum á áramótunum.
...að Viddi „Vínill“ hafi þeytt skífum
við góðar undirtektir að loknum
tónleikum stormsveitarinnar.
...að Axel Ívars (Ben) sé í liði Versló í
Gettu betur þetta árið.
...að Hjössi mæló og Klara Gísla eigi
voni á barni í sumar.
...að Gestur svans sé að vinna í stórum
Hollywoodsamningi við Adam
sandler.
...að sína á Heilsugæslunni
sé sextug í dag.
...að uMfus sé nú þegar búið að
manna tvö langborð á Þorrablóti
Aftureldingar.
...að raggi Óla ljósmyndari Mosfellings
hafi náð öðru sæti í ljósmyndasam-
keppni fréttablaðsins um jólin.
...að fMOs keppi við fsH í Gettu betur
í útvarpshúsinu í kvöld.
...að Þorsteinn Hallgrímsson hafi
maulað Cheerios á meðan stórfjöl-
skylda hans hafi gætt sér á skötu og
koníaki á Þorláksmessu.
...að haldin verði fótbolta-quiz
á Hvíta riddaranum næstu þrjú
fimmtudagskvöld.
...að Mosfellingar geti tekið þátt í að
kjósa íþróttamenn Mosfellsbæjar á
www.mos.is.
...að mosfellski karatemaðurinn
Kristján Helgi Carrasco hafi verið
valinn íþróttamaður Víkings 2012.
...að Drífa eigi afmæli í dag.
mosfellingur@mosfellingur.is
Ungmennafélagið ungir sveinar kveður gamla árið