Mosfellingur - 10.01.2013, Blaðsíða 20
Benedikta Jónsdóttir er mikil ævintýramanneskja og hefur ferðast víða um
heiminn. Hún hvetur alla til að
vera óhrædda við að láta drauma sína ræt-
ast því lífið eigi að vera skemmtilegt og eigi
í raun að vera eitt stórt ævintýri.
Í fimmtán ár hefur hún starfað í heilsu-
geiranum og nýtur þess að miðla til ann-
arra í formi fyrirlestra og námskeiða öllu
því sem varðar heilbrigði og hamingju.
„Ég fæddist á Vallá á Kjalarnesi 21. okt-
óber 1947. Afi minn, Magnús Benediktsson
og amma mín, Guðrún Bjarnadóttir bjuggu
þá að Vallá. Foreldrar mínir, Gréta Magnús-
dóttir og Jón Júlíusson fluttu að litlu Vallá
þegar ég var eins árs. Ég er skírð í höfuð á
langafa mínum, Benedikt Magnússyni sem
byggði Vallá upp ásamt konu sinni Gunn-
hildi Ólafsdóttur. Ég er elst fimm systkina
en þau eru Ágústína, Perla María, Hjördís
og Magnús. Tvö yngstu systkini mín eru
látin en þau létust sama dag, 4. júlí 2006,
annað á Íslandi og hitt í Danmörku.”
Forréttindi að alast upp í sveit
„Þegar ég var að alast upp var Kjalarnes-
ið alvöru sveit því flestir bæir voru með kýr,
kindur og hesta. Ég er sveitastelpa í húð og
hár og finnst forréttindi að hafa alist upp
í sveit.
Það var yndislegt og gott fólk sem hafði
áhrif á okkur systkinin í æsku. Konurnar
voru sterkar og karlmennirnir voru dugleg-
ir til vinnu. Á Vallá störfuðu margir vinnu-
menn en vinnumennirnir, Jón Vilhelmsson,
Halldór Vilhelmsson og Hermann Sigurðs-
son, voru eins og bestu bræður okkar enda
héldum við mikið upp á þá. Amma mín
reyndi að gera úr mér dömu og afi sagði
alltaf að ég ætti að vera dugleg eins og
strákarnir, ætli ég sé ekki blanda af hvoru
tveggja segir Benedikta og brosir.”
Flutti ung til Ástralíu
„Við fjölskyldan fluttum til Reykjavíkur
1954 og ég sótti skóla í Vogahverfi. Yfir
sumartímann var ég í sveitinni á Vallá fyr-
ir utan eitt sumar í Svíþjóð og tvö sumur
í Leirvogstungu hjá Guðmundi frænda
mínum og Selmu konunni hans.
Ævintýraþráin blundaði alltaf í mér og ég
flutti utan árið 1968 ásamt eiginmanni mín-
um Magnúsi Ingimundarsyni og tveimur
börnum okkar og varð Ástralía fyrir valinu.
Þetta var frábær tími fyrir ungu fjölskyld-
una og yndislegt að baða sig í sólinni við
strendur Sidney. Móðursystir mín Marta
bjó þar ásamt fjölskyldu sinni, það veitti
okkur öryggi að vita af þeim
og gaman að geta skroppið til
þeirra í heimsóknir.”
Börnunum tekið
opnum örmum
„Eftir nokkurra ára dvöl í
Ástralíu ákváðum við að flytja
okkur um set til Svíþjóðar þar
sem skólakerfið var líkt því
íslenska. Þar var börnunum
tekið opnum örmum og allt
gert til þess að þau væru ánægð
í skólanum. Í Svíþjóð eignuð-
umst við hjónin tvö börn til
viðbótar. Móðir mín flutti síðan
út til okkar og býr þar enn með
sínum manni sem er sænskur
en faðir minn lést árið 1983.”
Keypti bóndabæ í Svíþjóð
„Við Magnús keyptum gaml-
an bóndabæ norður af Stokk-
hólmi á alveg hreint frábærum
stað. Þar voru nokkur epla-, peru- og
kirsuberjatré og óteljandi berjarunnar og
falleg blóm út um allt. Ekkert rafmagn var
á bænum en það var í góðu lagi. Eldað var
með eldiviði úr skóginum og við pumpuð-
um vatni upp úr brunni og bárum það inn
í fötum. Kertaljós og olíulampar voru um
allt svo það var mjög notalegt hjá okkur.
Ég var heimavinnandi og eldaði og bakaði
alla daga. Kofar voru smíðaðir í trjánum
og kaðlar voru settir upp til að sveifla sér á
milli trjánna. Þetta var sannkallaður ævin-
týraheimur bæði fyrir börn og fullorðna.”
Lætur illa að stjórn
„Eftir átján ára dvöl erlendis fluttum við
heim til Íslands, keyptum matvöruverslun,
fataverslun og myndbandaleigu og fluttum
á Kjalarnesið. Tíminn leið,
börnin fengu bílpróf, stúd-
entspróf og voru komin með
maka og fluttu að heiman
eitt af öðru. Við Magnús
slitum samvistir á þessum
tíma þegar uppeldi barna
okkar var lokið.
Síðan þá á ég sambúðir
að baki sem gengu ekki upp
þannig að ég ákvað að það
væri best fyrir mig að vera
bara ein því mér var sagt að
það gengi ekki að temja mig og að ég léti
illa að stjórn,” segir Benedikta og hlær. Ég
hef notið þess að vera frjáls og gert það sem
mér dettur í hug, hef ferðast um heiminn
og lent í ýmsum spennandi ævintýrum.”
Hef unnið óhefðbundin störf
„Ég hef prófað hin ýmsu óhefðbundnu
störf eins og að vera vörubílstjóri og að
vera í byggingavinnu. Eins hef ég tekið
þyrlu-og flugtíma en síðastliðin fimmtán
ár hef ég unnið í heilsugeiranum. Fyrst í
heildsölu með lífrænar matvörur og síðar
í versluninni Maður Lifandi. Í dag starfa ég
sem sölustjóri Heilsutorgsins í Blómavali
Skútuvogi og hef mjög mikla ánægju af
mínu starfi því þar ríkir mjög góður andi.
Ég hef einnig verið með námskeið
og fyrirlestra í heilbrigði, hamingju
og að gera lífið að ævintýri. Ókeyp-
is námskeið eru framundan á nýju
ári í Blómavali og hvet ég alla til að koma.”
Sjálfbærni er framtíðin
„Draumur minn er að heimurinn verði
betri og betri með hverju árinu sem líður
og fólk fari að rækta sjálft sig, fjölskyldur
sínar og umhverfið á eins heilbrigðan hátt
og mögulegt er. Sjálfbærni er framtíðin og
það þarf að styðja við þá þróun af öllum
kröftum. Hætta að menga heiminn í svona
stórum stíl og eyðileggja náttúruna eins og
gert er oft á tíðum í hugsunarleysi. Ég vil
sjá lífrænan heim án eiturefna og útrýma
öllu erfðabreyttu áður en það útrýmir
mannkyninu. Stoppa alla klónun á dýrum
og mönnum.”
Rétti tíminn til að staldra við
„Ég vil láta setja steinharðar skorður
á lyfjafyrirtækin sem eru orðin siðlaus
í öllum gróðanum sem þau hafa náð í
áraraðir. Það gengur ekki að meirihluti af
mannkyninu sé á lyfjum alla daga eins og
er algengt í hinum vestræna heimi þegar til
eru náttúrulegar leiðir. Risastóru fyrirtækin
þarf að minnka og verksmiðjubúum með
dýrum þarf að breyta í eðlilegt horf.
Nú er rétti tíminn til að staldra við og
hugsa hlutina upp á nýtt, út með það sem
er ekki gott fyrir mannkynið og finna nýj-
ar og heilbrigðari leiðir,” segir Benedikta
ákveðin á svip er við kveðjumst.
Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Benedikta Jónsdóttir lífsstíls- og heilsuráðgjafi vill
sjá heiminn án eiturefna og vill útrýma öllu erfðabreyttu
áður en það útrýmir mannkyninu.
Ertu A eða B manneskja?
Ég er bæði A og B manneskja, fer eftir því
hvar í heiminum ég er stödd.
Hvern myndir þú helst vilja hitta?
Mér líkar best við víðsýnt, jákvætt, bjart-
sýnt og duglegt fólk með húmor en get
ekki nefnt einhvern einn í augnablikinu.
Uppáhaldsmatur?
Ég hef dýraafurðir í lágmarki, er meira
fyrir grænmetisrétti og hráfæði.
Hvert er þitt besta takmark í lífinu?
Það er að geta haft áhrif til að skapa betri
og heilbrigðari heim.
Uppáhaldstónlistarmaður?
Það er erfitt að gera upp á milli en ætli ég
segi ekki Elvis Presley.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Mér finnst æðislegt að horfa yfir
Mosfellsbæ ofan af Esjunni en það hef ég
gert æði oft.
Eitt atriði sem fólk veit ekki um þig?
Ég dey aldrei ráðalaus.
Uppáhaldsfylgihluturinn þinn?
Varaliturinn minn.
HIN HLIÐIN
Amma mín reyndi að gera
úr mér dömu og afi sagði
alltaf að ég ætti að vera dugleg
eins og strákarnir, ætli ég sé ekki
blanda af hvoru tveggja.
- Viðtal / Mosfellingurinn Benedikta Jónsdóttir20
Systkinin að Vallá, Perla, Benedikta, Hjördís, Ágústína og Magnús.
með hundinum darling í ástralíu 2012
Sjálfbærni
er framtíðin
Börn og frændsystkini, lennart,
Birgitta, gréta, arnar, Pia og erik.