Mosfellingur - 10.01.2013, Side 23
Námskeið A – 10 vikna námskeið
(kennt 1 sinni í viku)
Lítill stuðningur eða mikill stuðningur
eftir þörfum – þeir sem þurfa lítinn
stuðning við að stýra hestinum en
þurfa aðhald aðstoðarmanns og þeir
sem þurfa manninn með sér.
Dagsetningar: mánudagar 14. jan –
18. mars. kl. 14:45 – 15:45 (14. jan, 21.
jan, 28. jan, 4. feb, 11. feb, 18. feb, 25.
feb, 4. mars, 11. mars og 18. mars)
Verð: 35.000 kr.
Námskeið B – 10 vikna námskeið
(kennt 1 sinni í viku)
Enginn stuðningur – þeir sem þurfa
lítinn sem engan stuðning við að stýra
hestinum og geta riðið sjálfstætt.
Dagsetningar: miðvikudagar 16. jan
– 20.mars. kl. 14:45 – 15:45 (16. jan,
23. jan, 30. jan, 6. feb, 13. feb, 20. feb,
27.f eb, 6. mars, 13. mars og 20. mars)
Verð: 35.000 kr.
Námskeið C – 5 vikna námskeið
(kennt 1 sinni í viku)
Byrjendur – Þeir sem eru að koma á
námskeið í fyrsta skipti og vilja prófa
sig áfram í hestamennskunni.
Dagsetningar: fimmtudagar 17. jan
– 14.feb, kl. 14:45 – 15:45 (17. jan,
24. jan, 31. jan, 7. feb og 14. feb)
Verð: 18.000 kr.
Námskeið D – 10 vikna námskeið
(kennt 1 sinni í viku)
Lítill stuðningur – þeir sem þurfa lítinn
stuðning við að stýra hestinum en
þurfa aðhald aðstoðarmanns.
Dagsetningar: föstudagar 18. jan –
22. mars, kl. 14:45 – 15:45 (18. jan, 25.
jan, 1. feb, 8. feb, 15. feb, 22. feb,
1. mars, 8. mars, 15. mars og 22. mars)
Verð: 35.000
Námskeið E – 8 vikna námskeið
Blandaður hópur
Dagsetningar: mánudagar, 8. apríl –
10. júní, kl. 14:45 – 15:45. (8. apr,
15. apr, 22. apr, 29. apr, 6. maí, 13.
maí, 27. maí og 3. júní)
Verð: 25.000 kr.
Námskeið F – 8 vikna námskeið
Lítill stuðningur eða mikill stuðningur
eftir þörfum – þeir sem þurfa lítinn
stuðning við að stýra hestinum en
þurfa aðhald aðstoðarmanns og þeir
sem þurfa manninn með sér.
Dagsetningar: miðvikudagar, 3. apríl
– 5. júní. kl. 14:45 – 15:45 (3. apr,
10. apr, 17. apr, 24. apr, 8. maí,
15. maí, 22. maí og 29. maí)
Verð: 25.000 kr.
Námskeið G – 5 vikna námskeið
Byrjendur – Þeir sem eru að koma á
námskeið í fyrsta skipti og vilja prófa
sig áfram í hestamennskunni.
Dagsetningar: fimmtudagar, 21. feb
– 21. mars, kl. 14:45 – 15:45 (21. feb,
28. feb, 7. mars, 14. mars og 21. mars)
Verð: 18.000 kr.
Námskeið H – 10 vikna námskeið
Enginn stuðningur – þeir sem þurfa
lítinn sem engan stuðning við að stýra
hestinum og geta riðið sjálfstætt.
Dagsetningar: föstudagar, 5. apríl –
7. júní, kl. 14:45 – 15:45 (5. apr, 12. apr,
19. apr, 26. apr, 3. maí, 10. maí,
17. maí, 24. maí, 31. maí og 7. júní)
Verð: 35.000 kr.
Námskeið J – 8 vikna námskeið
Blandaður hópur
Dagsetningar: fimmtudagar, 4. apríl
– 23. maí, kl. 14:45 – 15:45 (4. apr,
11. apr, 18. apr, 2. maí, 16. maí og
23. maí)
Verð: 18.000 kr.
Eftirfarandi námskeið eru í boði vorönn 2013:
Hestamannafélagið Hörður í mosfellsbæ
býður upp á reiðnámskeið
fyrir börn og ungmenni með fötlun
Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem eiga við einhvers konar
fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða
af öðrum ástæðum og hafa áhuga á að umgangast
hesta eða vilja kynnast hestamennsku.
Markmið námskeiðsins:
• Eiga frábæra stund saman í skemmtilegu umhverfi.
• Geta umgengist hesta af öryggi og óttaleysi.
• Kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði
í umhirðu hestsins.
• Læra undirstöðuatriði í reiðmennsku
eftir getu hvers og eins.
• Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta.
• Bæta líkamsvitund.
• Auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
• Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.
Stefnt er á að halda sýningu í lok tímabilsins þann 9. júní.
Öllum nemendum annarinnar er boðið að taka þátt í sýningunni
sem verður lokasprettur tímabilsins. Nánari upplýsingar síðar.
Lögð er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái
sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.
Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára
reynslu í reiðkennslu fatlaðra og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.
Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi:
Öll kennsla og kennslugögn. Lagðir eru til hestar fyrir hvern og
einn sem og allur útbúnaður til reiðar, þar á meðal sérsmíðaðir
hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum. Allir þátttakendur fá
veglega kennsluhandbók og viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.
Frekari upplýsingar og skráning er hjá:
Fræðslunefnd fatlaðra – Hestamannafélaginu Herði
s: 899 7299 eða 898 6017
reidnamskeid@gmail.com
facebook.com/reidnamskeid