Mosfellingur - 10.01.2013, Page 30
- Aðsendar greinar30
Sjá sölustaði á istex.is
Íslenska ullin
er einstök
Þjónusta við mosfellinga
Dögun er nýtt samvinnumiðað umbóta-
afl sem sett hefur ýmis þjóðþrifamál á
oddinn. Þar má nefna aðgerðir í efna-
hagsmálum, nýja stjórnarskrá og upp-
stokkun á stjórn fiskveiða. Dögun mun
bjóða fram á landsvísu í næstu Alþing-
iskosningum.
Líta má á framboðið sem tillögu. Til-
lögu að forgangsröðun verkefna, að-
ferðafræði við lausn þeirra og tillögu að fólki
til starfans. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér
á framboðslista Dögunar til að fylgja eftir því
starfi sem ég hef tekið þátt í undanfarin misseri
og snýr að lausn á efnahagsvanda þjóðarinnar og
lýðræðisumbótum.
Kosningarnar í vor verða kjarabarátta
Kjarabarátta er til í mörgum myndum. Ein
birtingarmynd þeirrar baráttu er verðtrygging-
in, en ég tel nauðsynlegt að koma á þjóðarsátt
um afnám hennar og almenna leiðréttingu lána.
Innleiða þarf nýtt óverðtryggt húsnæðislána-
kerfi þar sem áhættu af viðskiptum með lánsfé
er dreift. Hverfa verður frá þeirri ofuráherslu
sem lögð hefur verið á séreignarstefnuna í hús-
næðismálum.
Einnig þarf að skapa skilyrði fyrir heilbrigðan
leigumarkað, meðal annars með opinberum
leigufélögum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.
Margir, og sér í lagi ungt fólk, eiga í erfiðleikum
með að koma sér upp heimili. Á því verður að
taka.
Ég vil lögfesta lágmarkslaun og uppræta
óútskýrðan launamun kynjanna. Stjórnir líf-
eyrissjóða eiga að mínu viti að vera kosnar af
sjóðsfélögum. Að sama skapi sé ég fyrir mér að
forsvarsmenn stéttarfélaga og heildarsamtaka
þeirra verði í framtíðinni kosnir í allsherjar-
kosningu félagsmanna. Heildarendurskoðun á
lífeyrissjóðakerfinu verður líka að fara fram því
kerfið stendur ekki undir framtíðarskuldbinding-
um sínum. Þá er óhjákvæmilegt að endursemja
um opinberar skuldir svo afborganir og vaxta-
greiðslur ógni ekki tilverugrundvelli
þjóðarinnar.
Síðast en ekki síst, í þessari ótæmandi
upptalningu verkefna, vil ég eindregið að
ný stjórnarskrá, á grundvelli frumvarps
stjórnlagaráðs, verði að veruleika.
Vaknaði upp við vondan draum
Upphaflega stóð ekki til af minni hálfu
að fara út í stjórnmál þrátt fyrir áhuga á samfé-
lagsmálum. Þær aðstæður sem sköpuðust á Ís-
landi haustið 2008 ráku mig hins vegar af stað.
Þá gegndi ég stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra
hjá ferðaþjónustufyrirtæki og var ekki mjög virk-
ur í opinberri umræðu. Miklu fremur vildi ég
huga að því sem stóð mér næst: fjölskyldunni,
heimilinu og rekstri fyrirtækisins. Svo vaknaði
ég upp við vondan draum. Hafði flotið sofandi
að feigðarósi. Ég lofaði sjálfum mér í framhaldi
að gera allt sem í mínu valdi stæði til að koma í
veg fyrir að þær aðstæður sem þá voru uppi gætu
myndast aftur.
Með það fyrir augum tók ég að mér það sjálf-
skipaða hlutverk að veita samfélaginu og stjórn-
völdum aðhald. Meðal annars með því að tala
við annað fólk um þjóðfélagsmál, skrifa pistla og
taka þátt í stofnun og starfi Hagsmunasamtaka
heimilanna sem ég veitti formennsku um tíma.
Haustið 2009 var ég ráðinn til starfa fyrir Hreyf-
inguna og þingmenn hennar. Vorið 2010 tók ég
þátt í stofnun Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ
sem bauð fram í síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum. Íbúahreyfingin lagði upp með áhersl-
ur á aukið íbúalýðræði, gegnsæi, valddreifingu,
ábyrga fjármálastefnu og velferð íbúa. Íbúa-
hreyfingin fékk næstflest atkvæði og vann kosn-
ingasigur. Ég er nú varabæjarfulltrúi hennar. Ég
hef verið virkur þátttakandi í stofnun og starfi
Dögunar og sit í framkvæmdaráði félagsins.
Ég býð fram krafta mína og vona að þeir geti
orðið að gagni.
Þórður Björn Sigurðsson
Ég vil gera gagn
Í kjölfar jóla og áramóta fellur til mikið
magn af ýmiskonar sorpi sem ekki fellur
til dags daglega, s.s. jólapappír og skot-
eldaúrgangi, og ekki alltaf skýrt hvað má
fara í bláu endurvinnslutunnuna sem
nú stendur við hvert heimili.
Allur jólapappír og pappírsúrgangur
utan af leikföngum og jólagjöfum má
fara í bláu endurvinnslutunnuna. Ef um mikið
magn er að ræða má einnig fara með pappírinn
í pappírsgáma á endurvinnslustöð Sorpu bs. við
Blíðubakka.
Úrgangur frá skoteldum, t.d. brunnar skottert-
ur, má hins vegar ekki fara í bláu endurvinnslu-
tunnunar, þótt um sé að ræða úrgang úr pappa. Í
skoteldum getur verið eftir talsvert magn af púðri
og öðrum óæskilegum efnum sem ekki
mega fara í pappírsendurvinnslu. Slíkan
úrgang ber því að setja í almennt sorp,
eða skila beint á endurvinnslustöðvar
Sorpu bs. ef um mikið magn er að ræða.
Gæta þarf þess að ekki sé um
ósprungna skotelda að ræða, en þeim
skal skila í spilliefnamóttöku á endur-
vinnslustöðvum Sorpu bs.
Íbúar eru einnig hvattir til að hreinsa upp leifar
af skoteldum í sínu nánasta umhverfi, en starfs-
menn þjónustumiðstöðvar Mosfellsbæjar munu
einnig koma að hreinsun eftir því sem kostur er.
Tómas G. Gíslason
Umhverfisstjóri
Jólapappír og flugeldasorp
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum
ásamt helstu upplýsingum á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is