Mosfellingur - 16.05.2012, Page 6

Mosfellingur - 16.05.2012, Page 6
Eldri borgarar Upplýsingar og skráningar í ferðir og námskeið eru á skrifstofu félagsstarfsins Eirhömrum kl. 13-16, símar 586-8014 og í gsm. 692-0814 - Fréttir úr bæjarlífinu6 Eykt með lægsta tilboðið í skólann Útboð í nýbyggingu Framhaldsskóla Mosfellsbæjar fór fram á dögunum. Í dag er skólinn starfræktur í bráðabirgðarhúsnæði í gamla skólahúsinu að Brúarlandi. Nýja byggingin verður 4.100 fermetrar á þremur hæðum sem rísa mun við götuna Bjarkarholt/Háholt næst Langatanga. Eftirfarandi tilboð bárust: 1. VHE ehf. kr. 1.149.302.749.- 2. Hamarsfell ehf. kr. 1.523.037.098.- 3. Viðhaldsmeistarinn ehf. kr. 1.083.505.129.- 4. ÍAV hf. kr. 1.047.167.495.- 5. JÁ verk ehf. kr. 1.023.552.113.- 6. Spennt ehf. kr. 1.091.820.061.- 7. Ístak hf. kr. 1.267.436.758.- 8. Eykt ehf. kr. 1.019.545.870.- Það er framkvæmdasýsla Ríkisins sem annast útboðið. Mosfellsbær greiðir 40% af byggingarkostnaðin- um en ríkið 60% sem sér svo líka um rekstur skólans. Fyrsti áfangi skólans mun rúma 400 nemendur og verður tekinn í notkun árið 2014. Afturelding og Sálin með ball að Varmá Afturelding og Sálin hans Jóns míns ætla að fagna vorkomunni með hressilegu balli í íþróttahúsinu að Varmá laugardaginn 19. maí. Nú er um að gera að draga fram sumarkjólana og ljósu jakkafötin og hrista ærlega úr klaufunum, rétt sem kálfar gera ár hvert á þessum tíma, segir í tilkynningu frá Sálinni. Sálverjar, sem þessi dægrin eru með annan fótinn í hljóðveri að vinna nýtt efni, munu að sjálfsögðu flytja öll sín vinsælustu lög. Mosfellingar, fjölmennið, stingið saman nefjum og gerið ykkur glaðan vordag. Forsala miða hefst í Grillnesti í dag. Miðaverð í forsölu verður 3.000 kr. en 3.500 við hurð. Benedorm! Enn er hægt að bæta við þátttakendum í tilboðsferðina sem verður 12.-26. sept. Gisting verður á mjög fallegu hóteli sem heitir Melia Benedorm. Verð er kr. 159.000, og er hálft fæði innifalið. Ath: akstur til og frá flugvelli er kr. 4.500. Einnig verður rúta frá Mosfellsbæ út á flugvöll í Keflavík og til baka í lok ferðar. Samningur Mosfellsbæjar og Eirar, hjúkr- unarheimilis um endurinnréttingu á húsnæði fyrir starfsemi eldri borgara var undirritaður á dögunum. Mosfellsbær mun annast framkvæmd breytinganna sem er í eigu Eirar, hjúkrunarheimilis. Heildar rými húsnæðisins er um 1.200 m². Með tilkomu húsnæðisins eykst rými félagsstarfs, dagdeildar og þjónustumið- stöðvar umtalsvert, auk þess sem kjarni starfseminnar flyst í bjart og rúmgott húsnæði á jarðhæð hússins. Félag eldri borgara í Mosfellsbæ og nágrenni, FaMos mun einnig flytja starfsemi sína í húsið, en félagið hefur verið til húsa í Hlégarði. Breyt- ingunni er ætlað að stuðla að aðgengilegri og samþættari þjónustu við eldra fólk sem felst í félagsstarfi á vegum bæjarfélagsins, framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu, rekstur þjónustumiðstöðvar og dagdeildar sem er á hendi Eirar, hjúkrunarheimilis og starfsemi FaMos. Húsnæði að Hlaðhömrum stækkað og endurinnréttað - Samþætt þjónusta á einum stað bætt aðstaða fyrir eldri borgara Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Eirar og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. Eldri borgarar í Mosfellsbæ fá aukið rými fyrir félagsstörf og FaMos flytur starfsemi sína. Undirritaður hefur verið samningur milli Skálatúnsheimilisins og Mosfellsbæjar um þjónustu við fatlaða íbúa heimilisins á árunum 2012-2014. Þeir sem eiga heimili í Skálatúni eru að sjálfsögðu íbúar Mosfells- bæjar og í framhaldi af tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga í ársbyrjun 2011 kemur það nú í fyrsta sinn í hlut bæjarins að gera slíkan samning. Áður giltu samningar við ríkisvaldið. Greiðslur Mosfellsbæjar til Skálatúns á samningstímanum nema um 403 milljón- um króna á ári. Það fé kemur að mestu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en til sjóðsins rennur á móti meginhluti þeirra hækkunar á útsvari landsmanna sem um var samið við tilfærslu þjónustu við fatlað fólk til sveitarfélaganna. Góð samskipti við íbúa og starfsfólk Samninginn undirrituðu Haraldur Sverr- isson bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Gunnar Þorláksson framkvæmdastjóri Skálatúns- heimilisins. „Það er mér sérstakt ánægjuefni að undirrita þennan samning. Skálatún er rótgróinn hluti af bæjarfélaginu og ég hef átt afar góð samskipti við bæði íbúa og starfsfólk alveg frá barnsaldri, enda var bernskuheimili mitt nánast þar í túnfætin- um. Þessi samningur er enn frekari stað- festing á þeim farsælu tengslum sem ætíð hafa ríkt milli heimilisins og sveitarinnar okkar. Þess má einnig geta að þetta er ein- hver stærsti samningur sem Mosfellsbær hefur gert, í fjármunum talið,“ segir Har- aldur Sverrisson. Gunnar Þorláksson lagði áherslu á þá sátt og samlyndi sem ríkt hefði í því aukna samstarfi við Mosfellsbæ sem hófst við tilfærslu þjónustunnar til sveitarfélaga á s.l. ári. Sá andi hefði einnig einkennt alla samningsgerðina; þar hefði hvorki heyrst þras né þref, heldur málinu þokað áfram með rólyndi og gagnkvæmu trausti. Því ríkti bjartsýni gagnvart áframhaldandi samvinnu milli Skálatúnsheimilisins og Mosfellsbæjar á komandi árum. Skálatún og Mosfellsbær undirrita þjónustusamning - 403 milljónir á ári í starfsemina Skálatúnsheimilið orðið rót- gróinn hluti af bæjarfélaginu Gunnar Þorláksson framkvæmdastjóri Skálatúnsheimilisins og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar við undirritunina. Skálatúnsheimilið var stofnað af Stórstúku Íslands 1954 og hét upphaflega Barnaheimili Templara við Skálatún. Styrktarfélag vangefinna gerðist fljótlega einnig eignar- og rekstr- araðili. Heimilið er sjálfseignarstofnun og samanstendur nú af sex sambýlum, vinnustofum, dagþjónustu og sundlaug. Íbúar eru nú 38. skálatúnsheimilið Ánægðir íbúar Á skÁlatúni Ferðafélagar í sumarferðinni 20. og 21. júní, vinsamlega greiðið upp sem fyrst. Leiðsögn í þæfingu. Vikuna 21.-25. maí kl. 13-16, verður leiðsögn í þæfingu þar sem eingöngu er notuð íslensk ull. M yn d/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.