Mosfellingur - 16.05.2012, Page 11
Um 2000 skólabörn úr Mosfellsbæ kvöddu Eurovision-farana Gretu Salóme og Jónsa
Kveðjuhóf á Miðbæjartorginu
Jónsi og greta eftir vel
heppnaða tónleika á torginu
krakkarnir tóku vel undir
með eurovision-förunum
Forstöðumaður
þjónustu- og
upplýsingamála
hjá Mosfellsbæ
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
þjónustu- og upplýsingamála.
Forstöðumaður þjónustu- og upplýsingamála hefur yfir-
umsjón með starfsemi þjónustuvers og sér um upplýsinga-
miðlun ásamt því að annast samskipti við fjölmiðla. Hann er
ritsstjóri á vef bæjarins www.mos.is og hefur með höndum
gerð og útgáfu kynningarefnis auk þess að sjá um tilfallandi
textagerð. Hann tekur ennfremur þátt í stefnumótunarvinnu
sem varðar málaflokkinn.
Menntunar- og hæfnikröfur eru meðal annars:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði
• Góð íslenskukunnátta og færni í textagerð og
• tjáningu er skilyrði
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptafærni áskilin
• Rík þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Framúrskarandi tölvukunnátta
• Reynsla af vinnu við vefumsjónarkerfi æskileg
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Umsóknarfrestur er til 21. maí 2012.
Umsóknir um starfið ásamt ferilskrá og rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu sendar á netfangið sigriduri@mos.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Indriðadóttir, mannauðs-
stjóri, í síma 525 6700.
Sjá einnig auglýsinguna heild sinni á www.mos.is/lausstorf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og aðildarfélaga BHM.
Við hvetjum konur jafnt sem karla
til að sækja um starfið.
11Eurovision -