Mosfellingur - 16.05.2012, Síða 20

Mosfellingur - 16.05.2012, Síða 20
Varmá Fréttarit sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ Kæru Mosfellingar, fyrr í vetur var kjörin ný stjórn Viljans, félags ungra sjálfstæðismanna í Mos- fellsbæ og stefnum við að því að efla starfið mun meira en áður og erum við ávallt til í að fá góða menn og konur í starfið. Ríkisstjórnin Sjaldan hefur verið jafn mikil þörf fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins og sterkri ungliðahreyfingu og á þeim tímum sem við göngum í gegnum núna. Stefna núverandi rík- isstjórnar gerir illt verra hvað varðar skuldamál fyrirtækja og heimila. Þá eru hvort tveggja fyrirtæki og heimili að sligast undan skattabyrði. Landsdómur Ákæra Alþingis á hendur Geir H. Haarde og sá málatilbúnaður allur var að mínu viti þjóðarsmán, runnin undan rifjum pólitískra andstæðinga Geirs og Sjálfstæðisflokksins. Kostn- aðurinn var upp á tugi milljóna króna sem komu auðvitað úr vösum skatt- greiðenda og niðurstaðan var sak- felling í einum ákærulið af sex, sakfelling sem felur ekki í sér refsingu heldur var einungis um formbrot að ræða. Ung- ir Vinstri-Grænir hafa kallað Landsdómsmálið gegn Geir H. Haarde „uppgjör við frjálshyggj- una“ og þykir mér það sérlega merkilegt í ljósi þess ríkisafskipti hafa löngum verið mikil á Íslandi og hugmyndir frjálshyggjunnar ekki fengið að njóta sín. Vinnum saman Kosningar nálgast óðfluga og munu í seinasta lagi verða næsta vor, þó fyrr mætti vera. Þegar að þeim kemur þurfa ungir sjálfstæðismenn um allt land, svo og sjálfstæðismenn allir, að vera tilbúnir til þess að hjálpa flokkn- um að ná glæsilegri kosningu og taka við stjórnartaumum á Íslandi og koma þannig landsmönnum úr viðjum for- sjárhyggju og skattahækkana. Sameinum krafta okkar og komum vinstri flokkunum úr ríkisstjórn. Burt með báknið! Grímur Óli Grímsson formaður ungra sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ Varmá, fréttarit sjálfstæð- ismanna, er nú komið út í fyrsta sinn á þessu herrans ári og í fyrsta skipti í tölu- vert breyttri mynd en áður. Við ákváðum að breyta út af vananum og nýta krafta bæjarblaðsins Mosfellings og fá að gefa út okkar blað inni í bæjarblaðinu. Það er von mín að þessari nýbreytni verði tekið vel, en þetta er ekki endilega framtíðarformið á fréttariti okkar sjálfstæðismanna. Við viljum einnig með þessu ná til fleira fólks og um leið bjóða alla vel- komna í Sjálfstæðisflokkinn. Ný stjórn Sjálfstæðisfélags Mosfell- inga tók við í vetur og hefur ýmislegt verið á boðstólum fyrir félagsmenn sem og almenning. Til dæmis hélt Jónína Benediktsdóttir fyrirlestur undir yfirskriftinni: Byggjum upp heilbrigt samfélag/baráttan gegn lífsstílssjúkdómum og lyfjavæðing- unni. Í apríl kom Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og fjallaði um skipulagða brotastarfsemi og viðbrögð lögreglu. Núna í maí bauð Sjálfstæðisfélag Mosfellinga í pizzu og bjór þar sem Styrmir Gunnarsson fv. ritstjóri Morgunblaðsins flutti erindi. Þriðjudaginn 15. maí var haldinn opin fundur um framlög til vegamála, en þar ræddu alþingismennirnir Ragn- heiður Ríkharðsdóttir og Guðlaugur Þór, stöðu mála í vegamálum. Fyrirhugað er að halda fleiri opna fundi um ýmis skemmtileg og fræðandi málefni, ásamt því að stjórn Sjálfstæðisfélags- ins stendur fyrir útilegu í sumar fyrir alla fjölskyld- una þar sem við ætlum að hittast, njóta útiverunar, grilla og gera okkar glað- an dag. Dagsetningin er ekki komin á hreint þegar þetta er ritað. Ekki má gleyma Viljanum sem er félag ungs sjálfstæðisfólks í Mosfells- bæ en innan þeirra vébanda fer fram áhugaverð umræða um margvísleg málefni sem varða ungmenni og stjórnmál almennt. Við í Sjálfstæð- isfélagi Mosfellinga viljum koma á framfæri að lykillinn að velsæld er að byggja upp félagsskap með jákvæð- um formerkjum sem miðar að því að koma Sjálfstæðisflokknum aftur til valda á landsvísu svo tryggja megi að atvinnulíf í landinu muni eflast og heimilin geti séð til sólar, aldraðir átt áhyggjulaust ævikvöld og ungt fólk fengið vinnu við sitt hæfi. Við hugsum jákvætt og viljum fá þig í lið með okkur að gera gott félag enn betra. Lifið heil. Kaf fihúsið á Álafossi Kaf fihúsið á Álafossi Góðir Menn ehf GSM: 820-5900 viðgerðir endurnýjun á raflögnum hönnun og uppsetning á öryggiskerfum síma og tölvulagnir Löggiltur rafverktaki Þverholti 2 • Mosfellsbæ Sími: 586 8080 www.fastmos.ishafðu s band E.BAC K M A N Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali Viltuselja... E .B A C K M A N Rúnar Bragi Guðlaugsson ritstj. Allir velkomnir í Sjálfstæðisflokkinn Ritstjórapistill Ungir geta líka haft áhrif á samfélagið Formaður Viljans Frá fundi um skipulagða glæpastarfsemi Frá fundi sem Sjálfstæðisfélagið í Mosfellsbæ hélt 26. apríl en þá fékk félagið Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglumann til að fjalla um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi og viðbrögð lögreglu við auknum fréttum úr undirheimum landsins. Varmá FRéttaRit SjálFStæðiSManna í MoSFellSBæ Útgefandi: Sjálfstæðisfélag Mosfellinga netfang: mos@xd.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Rúnar Bragi Guðlaugsson auglýsingar: Örn Johnson Ertu félagi en ert ekki að fá tölvupóst frá okkur? Sjálfstæðisfélagið í Mosfellsbæ stendur fyrir allskonar skemmtilegum fundum og mann- fögnuðum. Reynt er eftir fremsta magni að senda út auglýsingu á félagsmenn í tölvupósti. Ef þér berst ekki póstur, en vilt fá að að fylgjast með og fá sendar upplýsingar þá getur þú sent póst á mos@xd.is Erum á Facebook :) Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ Hugmyndabanki Sendu inn góða hugmynd á mos@xd.is og segðu okkur hvað þér finnst! Fréttarit sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ Varmá Bæjarfulltrúar í málaefnanefndir Á flokksráðsfundi Sjálfstæð- isflokksins 17. mars, buðu sig fram í málefnanefndir tvær konur úr Mosfellsbæ, Bryndís Haraldsdóttir og Herdís Sigurjónsdóttir. Þær fengu báðar glæsi- lega kosningu, Bryndís fékk flest atkvæði í atvinnu- veganefnd og er þar með formaður nefndarinnar og Herdís fékk einnig mjög góða kosningu í allsherjar- og menntamálanefnd. Ritstjórn Varmár óskar bæjarfulltrúum til hamingju með góða kosningu. Nánari upplýsingar um úrslit kosninganna má sjá á heimasíðunni www.xd.is Ístak að flytja skrifstofur sínar í Mosfellsbæ Ritstjórn Varmár vill nota tækifærið og bjóða starfsfólk Ístaks velkomið til starfa í Mosfellsbæ, en Ístak stendur í flutningum á skrifstofum sínum frá Engjavegi í Reykjavík á Tungumela í Mosfellsbæ (milli Kaldár og Leirvogsár). Ístak verður með flutningnum með stærri vinnustöðum í Mosfellsbæ og er það fagnaðarefni að stórfyrirtæki velja það að koma í Mosfellsbæ. Varmá hitti Svein Óskar Sigurðsson, nýjan formann Sjálfstæðisfélagsins og fékk að kynnast honum betur. Hver er maðurinn? „Maðurinn er fæddur 27. júlí (ljón) 1968 á Selfossi en alinn upp á Hellu á Rangárvöllum. Þar ól ég manninn þar til farið var í menntaskóla og útskrif- aður úr Menntaskólanum við Hamrahlíð í Reykjavík 1990 af eðlisfræðibraut. Fór svo í Háskóla Íslands og hef lokið þar mastersgráðu í viðskiptafræði. Á ég ættir að rekja til Biskupstungna og austur undir Eyjafjöll- in þar sem ég var skírður nafni afa míns undir jökli, Eyjafjallajökli. Er giftur Danith Chan lögfræðingi sem er frá Kambódíu en við kynntumst í Pekingháskóla í Kína þar sem hún stundaði lögfræðinám. Hún fluttist til Íslands árið 2000 og lauk meistaranámi í lögum frá Háskóla Íslands og MBA í viðskiptum frá Háskólan- um í Reykjavík. Við eigum tvær dætur, Sylvíu Gló (11 ára) og Ingridi Lín (9 ára).“ Hvað var til þess að þú fórst út í það að verða formaður Sjálfstæðisfélagsins í Mosfellsbæ? „Áhugi á stjórnmálum og félagsmálum. Hef verið „heimavinnandi“ eftir að konan hefur verið útivinnandi. Sjálfur rek ég eigið ráðgjafafyrirtæki og ferðast bæði heima og erlendis vegna vinnu. Held mig mikið heima við til að sinna dætrum okkar og heimili eins vel og kostur er. Vildi ná betri tengslum við fólkið í okkar fallega Mosfellsbæ. Var áður for- maður ungra í Rangárþingi og svo sat ég á sínum tíma bæði í aðal- og varastjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ég hef áhuga á að gleðja fólk, ræða mikil- væg hagsmunamál og koma til leiðar einhverju jákvæðu.“ Hvað gerir stjórn Sjálfstæðisfélags Mosfellinga og hvert er hlutverk félagsins? „Hlutverk félagsins, sem og allra að- ildarfélaga innan Sjálfstæðisflokksins, er í meginatriðum að miðla þekkingu og stefnu Sjálfstæðisflokksins til félags- manna og almennings í samræmi við skipulagsreglur flokksins, móta stefnu í málefnum nærsamfélagsins og tryggja málefnalega umræðu ásamt því að hlusta á skoðanir fólks og miðla þeim m.a. inná landsfund flokksins þar sem stefnumörk- un fer fram. Það er vegna félaga af þessum toga, sem finna má um land allt, sem gerir Sjálfstæðisflokkinn að öflugasta stjórnmálaafli á Íslandi.“ Getur hver sem er gerst meðlimur í félagi Sjálfstæðismanna? „Allir sem eru annars ekki í trúnaðarstöðum fyrir aðrar stjórnmálahreyfingar. Ekki fengi t.d. Stein- grímur J. Sigfússon inngöngu nema að hann gengi fyrst úr Vinstri grænum.“ Hvað hefur þú búið lengi í Mosfellsbæ? „Við hjónin fluttum til Mosfellsbæjar árið 2003. Við bjuggum áður í Árbænum í Reykjavík og flutt- umst þaðan í Smárann í Kópavogi áður en við kom- um í þennan fallega bæ, Mosfellsbæ.“ Eru félagsmál í stjórn stjórnmálafélags öðruvísi en að vera bara stjórnmálamaður? „Að vera stjórnmálamaður hefur breyst nokkuð síðustu áratugi. Nú virðast stjórnmálamenn líta á starfið sem hvert annað starf en hér áður fyrr voru menn meira í þessu af hugsjón að ég tel. Hugsjónin virðist hafa vikið fyrir embættismannablæ á stjórn- málamanninum sem er af sem áður var. Félagsmál og seta í stjórn félags, eins og Sjálfstæðisfélags Mosfellinga, á að vera aðhald grasrótarinnar og vett- vangur nýrra einstaklinga sem vilja og geta tekið að sér trúnaðarstörf síð- ar. Innan félagsins á að spyrja erfiðu spurninganna og karpa „innanhúss“ um öll málefni. Fulltrúar flokksins frá viðkomandi félagi, bæði á þingi og í bæjarmálum, bera virðingu fyrir félögum sínum og svara í trúnaði erf- iðum spurningum sem spurðar eru innan vébanda félagsskaparins. Ef það er ekki gert og þessu ekki sinnt vex viðkomandi trúnaðarmaður flokksins frá fólkinu. “ Hvað gerir þú þér til skemmtunar? „Ferðalög eru okkar mesta ánægja. Við förum í tennis, í veiði, á skíði, í sund og uppí sumarbústað fjöl- skyldunnar í Biskupstungum. Með félögum mínum og gömlum skólafélögum förum við oftast í laxveiði á sumrin og á haustin.“ Hvaða bók er á náttborðinu? „Bókin um Ingimar Hauk eftir Þorfinn Ómars- son.“ Hvað er það besta sem þú færð? „Karrýkjúklingurinn hennar Danithar.“ Hvað er næst á döfinni hjá ykkur í félaginu? „Sumarferð og gleði úti í náttúrunni í nálægð við Mosfellsbæ.“ Hefur þú alltaf verið Sjálfstæðismaður? „Já.“ Hver er maðurinn? Sveinn Óskar Sigurðsson Formaður Sjálfstæðisfélags Mosfellinga Hvenær ertu fæddur? 27. júlí 1968 Uppáhalds matur? Karrýkjúklingur í rauðu karrý Uppáhaldsstaður í heiminum utan Ís- lands? Prag í Tékklandi. Besta kvikmynd? Cinema Paradiso (1988) Besti bíllinn? Volks- wagen bjalla - gulur Æskuátrúnaðargoðið? John Lennon Sveinn ÓSkar á núLL einni Garðbæingar í heimsókn Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ kom í heimsókn og átti fund með stjórn félagsins í Mosfellsbæ. Farið var yfir málin og bækur bornar saman á milli félaga. Eftir fundinn hlýddu menn á Styrmi Gunnarsson sem hélt erindi fyrir sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ. Stjórnin bauð uppá pizzur og bjór í tilefni dagsins á fundinum.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.