Mosfellingur - 27.09.2012, Blaðsíða 14
Dálítil gönguferð laugardaginn 6. október er góð fyrir bæði
sál og líkama. Vertu með, gakktu með okkur eða taktu vel á
móti göngufólki. Þinn stuðningur getur skipt sköpum.
HJÁLPUM BÖRNUM Í NEYÐ!
HVERNIG GET ÉG HJÁLPAÐ?
904 3000 904 5000
3.000 kr. framlag.
Fjölskylda á ham-
farasvæði fær efni
til skýlisgerðar
904 1500
1.500 kr. framlag.
Lífshættulega van-
nærðu barni hjúkrað
til heilbrigðis
5.000 kr. framlag.
Tvö hundruð máltíðir
á hungursvæði
í Afríku
Gefðu í söfnunarbauk Rauða krossins
Mættu á söfnunarstöð
Hringdu í söfnunarsíma Rauða krossins
Leggðu inn á söfnunarreikning Rauða krossins
(bankanúmer 342-26-12, kt. 530269-2649)
Þverholti 7
(Rauðakrosshúsið)
Skólahljómsveitin byrjar
vetrarstarfið af krafti
Helgina 21.-23. september héldu
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar og
Skólahljómsveit Grafarvogs sameiginlegar
æfingabúðir í Klébergsskóla á Kjalarnesi.
Alls voru mættir 57 hljóðfæraleikarar og
einvala lið foreldra. Á föstudagskvöldi var
æft fram til kl. 22 og þá voru flestir orðnir
lúnir eftir langan vinnudag. Laugardagur-
inn var tekinn snemma með samæfingu
og eftir hádegismat skellti hópurinn sér í
sund. Eftir langan æfingadag var pizza-
veisla og að henni lokinni var kvöldvaka
þar sem krakkarnir sáu um skemmtiatrið-
in. Á sunnudag fengu krakkarnir að sofa
lengi, voru vakin kl. 9 og æfingar hófust
kl. 10. Kl. 15 mættu foreldrar barnanna
og léku hljómsveitirnar saman verkefni
helgarinnar sem þau sáu fyrst á föstudegi.
Hljómsveitirnar vilja koma á þakklæti
til skólastjórnenda í Klébergsskóla fyrir
aðstöðuna og til foreldranna sem gáfu
sér tíma til að vera á staðnum og sjá um
frábæran mat handa svöngum hljóðfæra-
leikurum.
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað í 10 ár14
SkólahljómSveit moSfellSbæjar
og SkólahljómSveit grafarvogS
í æfingabúðum á kjalarneSi
Meistaraflokkur karla í handbolta leikur í N1 deildinni í vetur.
Með Mosfellingi í dag fylgir aukablað um leikmennina og tíma-
bilið framundan. Fyrsti leikurinn fór fram í vikunni gegn ÍR og í
kvöld er leikur í Kópavogi gegn HK. Aftureldingu er spáð 5. sæti í
N1 deildinni vetur og verður spennandi að fylgjast með öflugi lið
Aftureldingar í vetur.
Reynir Þór Reynisson þjálfari segir leikmenn vera dauðþreytta á botnbaráttu og stefni hærra
Gríðarlegur efniviður
Meistaraflokkur
aftureldinGar
í handknattleik
Jóhann Jóhannsson
sloppinn í gegn á móti ír
Hvernig hefur liðið breyst frá því
á síðasta tímabili?
Það hefur mikið breyst frá síðasta tíma-
bili en hugarfar leikmanna er orðið mun
metnaðarfyllra. Hópurinn tekur reglulega
aukaæfingar og eins sé ég mikinn mun á
matarræðinu, sem er jú grunnurinn að
árangri. Fyrir vikið er líkamlegt ástand
hópsins allt annað og betra sem gefur
okkur tækifæri til að stíga næsta skref.
Hvernig lýst þér á komandi tímabil?
Mjög vel en á mínum þjálfaraferli hef
ég sjaldan upplifað jafn mikinn slagkraft
í leikmönnum og hungri til að verða betri.
Ég hef orðið vitni að miklum framförum á
liðinu og haldi menn áfram að leggja hart
að sér er aldrei að vita nema skemmtilegur
vetur sé framundan.
Sefur þú með nátthúfu?
Í beinu framhaldi af síðustu spurning þá
er svarið nei. Ég veit aftur á móti um dreng
sem gerir slíkt en nafnið ku vera Hjörtur
Örn Arnarson, öðru nafni Hjössi mæjó.
Eru markmiðin gefin upp?
Nei nákvæm markmið eru ekki gefin upp
en Mosfellingar fá þó að vita að hópurinn
er orðinn dauðuppgefinn á botnbaráttunni
og endalausum umspilum.
Eru bjartir tímar framundan?
Það eru allar forsendur fyrir hendi en
velgengnin er undir Mosfellingum sjálfum
komin. Haldi leikmenn áfram að leggja á
sig botnlausa vinnu, fólkið í kringum liðið
haldi áfram að skapa góða umgjörð, fyrir-
tækin styðji myndarlega við liðið, og síðast
en ekki síst ef bæjarbúar koma á völlinn,
þá er ekki spurning að bjartir tímar eru
framundan. Ég efast um að mörg lið eigi
jafn mikinn efnivið og Afturelding og því
lífsnauðsynlegt að vel verði staðið að mál-
um.
Af hverju Prinsinn?
Þarna grefur blaðamaður upp gamalt
viðurnefni á þjálfarann á fyrstu árum
hans í meistaraflokki. Ég átti það til
að vera með ansi mikinn derring við
liðsfélaga mína og lét gjarnan eins og
gerspilltur unglingur, ég er hræddur
um að svona hegðun væri ekki liðin
inná æfingunum hjá mér í dag. Fyrir að
grafa þetta viðurnefni upp fær fyrirliðinn
ansi marga aukaspretti að launum.
Eitthvað að lokum?
Já, nú er að koma upp gríðarlegur efni-
viður sem nauðsynlegt er að halda vel
utanum. Í bland við þá eldri er
hægt að koma liðinu í
hóp þeirra bestu á
næstu árum en
það hefst ekki
nema bæjar-
búar leggist á
árarnar með
liðinu. Hver
hönd skipt-
ir máli!
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la
Að frjósemin í liðinu er
svo mikil að nú eiga fjórir
leikmenn meistaraflokks barn
undir eins árs aldri.
Varnarmurturinn Krummi
og Jenni sjúkraþjálfari
eru bræður.
Línutrukkurinn Einar
Héðins og miðjufantur-
inn Helgi Héðins eru ekki
tvíburara, bara bræður.
Elvar Magnússon og Örn
Ingi eru með systrum.
Hilmar er að fara spila sitt
14 tímabil með UMFA.
Hilmar er elsti leikmaður
liðsins og Kristinn
Hrannar er sá yngsti.
3 nýjir leikmenn gengu til
liðs við Aftureldingu fyrir
tímabilið ´12-13.
Aron Gylfa, Danni Jóns og
Hafþór hafa allir fært sig
um set og spila með Júmboys
í vetur.
Hjörtur aðstoðarþjálfari
er 22% fita, hann er
kominn í átak.
Áður en Jenni hætti að
spila og gerðist sjúkra-
þjálfari voru þeir bræðurnir
kallaðir Tsjernobyl-bræðurnir.
vissir þú
ferskleikinn í fyrirrúmi
Aukablað um meistaraflokk
karla í handbolta
Líf og fjör í Lágafellsskóla helgina 8. - 9. september
Heimsljós messa