Mosfellingur - 27.09.2012, Blaðsíða 8
Ungmennafélagið Afturelding hefur tekið í notkun nýja skrifstofu
á annarri hæð í íþróttahúsinu að Varmá. Þar starfa nú Jóhann Már
Helgason framkvæmdastjóri félagsins, Vilborg Jónsdóttir bókari og
Halldór Steingrímsson íþróttastjóri.
Einnig er í rýminu pláss til fundaraðstöðu fyrir félaga í Aftureld-
ingu og getur fólk nýtt sér plássið til skrafs og ráðagerða.
Bylting fyrir starfsemi félagsins
„Afturelding hefur þróast og stækkað ört síðustu ár og það hefur
verið gaman að fylgjast með félaginu vaxa og dafna. Þessi aðstaða
sem búið er að útbúa fyrir starfsemi Aftureldingar er ein leið bæj-
arins til að standa þétt við bakið á félaginu og mun hún vonandi
styrkja innviði þess og efla til frekari góðra verka,“ segir Haraldur
Sverrisson bæjarstjóri.
Að sögn Guðjóns Helgasonar formanns Aftureldingar verður
allt starfsumhverfi starfsfólks Aftureldingar mun betra með nýju
aðstöðunni. „Skrifstofuaðstaða Aftureldingar flyst nú úr 8 m2 í 85
fm2 og er þetta því bylting fyrir starfsemi félagsins. Afturelding vill
þakka bæjarstjórn og þeim sem að þessu komu og gerðu þetta að
veruleika,“ segir Guðjón Helgason.
Eldri borgarar
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Tilkynning frá félagsstarfinu
Vegna framkvæmdar á þjónustumiðstöð aldraða verður talsverð röskun á
félagstarfinu fram eftir hausti. Handavinnustofan verður opin 13:00-16:00
en færist tímabundið í annað rými á Eirhömrum, í setustofuna við hliðina á
matsalnum. Allir velkomnir með sína eigin handavinnu eða bara góða skapið.
Reynt verður að bjóða upp á handavinnu sem hæfir stund og stað, svo sem
kortagerð, skartgripagerð og annað minniháttar föndur. Vonum að allir taki
tillit til þessara breyttu aðstæðna sem munu standa um tíma. En vegna fram-
kvæmda í kjallara fellur gler, leir, þæfingarvinna og önnur stærri vinna öll niður
í óákveðin tíma. Leggjum upp úr samverunni til að rjúfa félagslega einangrun.
Nú er námskeiðatíminn runnin upp
og allt að fara á fullt. Námskeiðin
eru öll haldin í kjallaranum á Eir-
hömrum. Frábærir og þaulreyndir
kennarar á öllum námskeiðum.
Tréútskurður byrjar fimmtudaginn
4. okt kl. 12:30-15:30.
Postulínsnámskeið byrjar laugar-
daginn 13. okt kl. 11:00-14:00.
Silfursmíði námskeið byrjar um
miðjan október. Skartgripir og
annað gert úr silfri.
Gullsmiður kennir á námskeiðinu.
Línudans verður í vetur á mánu-
dögum og þriðjudögum. Kennarar
eru Bryndís og Kolla.
Hefst fyrsti tíminn 8. okt.
Bókband hefst þriðjudaginn 9. okt
kl.13:00 ef næg þáttaka næst.
Upplýsingar um námskeiðin
og skráning á námskeiðin er á
skrifstofutíma félagstarfinu milli kl.
13-16 virka daga í síma 586-8014
og í gsm 698-0090.
MenningarJafnréttisdagur
haldinn 1. október
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar
er haldinn ár hvert í kringum
fæðingardag Helgu Magnúsdóttur
sem er 18. september.
Að þessu sinni er dagurinn
tileinkaður jafnrétti meðal aldraðra
og nú er brugðið út af vananum
og dagurinn er haldinn hátíðlegur
þann 1. október. Dagurinn er hald-
inn í samráði við Félag aldraðra í
Mosfellsbæ og Félagsstarf aldraðra.
Tilefni þess er að í ár er Evrópuár
um virkni aldraðra og samstöðu
kynslóða. Haldið er upp á það um
allt land þann 1. október. Því fannst
bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ og
fulltrúum eldri borgara í bænum
tilvalið að slá þessu tvennu saman
og halda upp á þetta sameiginlega.
Íbúahreyfingin vill
opna píkusafn
Íbúahreyfingin hélt aðalfund sinn
á þriðjudagskvöld og hefur ákveðið
að beita sér fyrir opnun Píkusafns í
Mosfellsbæ. „Á sérstökum hátíðar-
fundi bæjarstjórnar, í tilefni 25 ára
afmælis bæjarins, kom bæjarstjórn-
armeirihlutinn í Mosfellsbæ fram
með þá hugmynd að í bænum yrði
opnað villidýrasafn. Íbúahreyfingin
hefur ákveðnar efasemdir um að
slíkt safn sé tímanna tákn“, segir
í ályktun frá fundinum. „Það er
margt sem Píkusafn hefur fram
yfir villidýrasafn að okkar mati.
Ofurkarlmennska, eins og veiðar á
dýrum í útrýmingarhættu, eru hins
vegar tákn fortíðarinnar og úreltra
hugmynda um mikilmennið sem
sigrast á náttúrunni. Mosfellsbær
hefur eytt miklu púðri í að skapa
bænum ímynd bæjarfélags sem
lifir í nánd og sátt við náttúruna og
telur Íbúahreyfingin að villidýrasafn
rími illa við þá ímyndarvinnu. Þá
teljum við að samhljóm við slagorð
Mosfellsbæjar, sem eru virðing,
jákvæðni, framsækni og umhyggja,
vanti í hugmyndina um villidýra-
safn. Stefnt er að því að eiga píkur
úr öllum íslensku húsdýrunum
þegar safnið opnar og að innan tíu
ára verði búið að fá píkur úr allri
fánunni til sýningar.“
Á Teigi hafa húsin öll verið máluð og líta miklu betur út. Á Teigi eru í dag
framleidd vistvæn egg, Brúnegg, en í yfir 60 ár hefur þar farið fram alifugla-
rækt með einum eða öðrum hætti.
Við Háholt 14 hafa miklar framkvæmdir farið fram í sumar. Bílaplan og
gangstétt umhverfis húsið er nú með miklu betra móti en áður. Í húsinu er
fjöldi fyrirtækja starfræktur og er Snæland þar stærst.
Fyrirtæki hafa notað sumarið til að fegra umhverfi sitt
Haraldur Sverrison bæjarstjóri afhentir Ungmennafélaginu Aftureldingu formlega skrifstofuaðstöðuna
ásamt fleiri gjöfum. Guðjón Helgason formaður Aftureldingar þakkar fyrir með handabandi.
Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri
Aftureldingar og Valdimar Leó formaður UMSK
en UMSK kom færandi hendi með lítt notuð
skrifstofuhúsgögn sem eiga eftir að nýtast vel.
Fimmtudaginn 20. september var ný skrifstofa félagsins tekin formlega í notkun
Ný skrifstofa aftureldingar
vilborg og eva
brostu hringinn
deildirnar eru þegar farnar
að nýta sér aðstöðuna
þorsteinn, ólafur, bjarni og haukur