Mosfellingur - 27.09.2012, Blaðsíða 6
Bæjarblaðið Mosfelling-
ur kom fyrst út á haust-
mánuðum árið 2002 og
er því 10 ára um þessar
mundir. Stofnandi blaðs-
ins er Karl Tómasson og
ritstýrði hann blaðinu
fyrstu árin.
Hugmyndin var að
gefa út eitt öflugt, frjálst
og óháð bæjarblað með
reglulega útgáfu. Hefur það ætíð verið haft
að leiðarljósi þennan fyrsta áratug og mun
verða áfram um ókomna tíð.
Haustið 2005 settist Hilmar Gunnarsson
í ritstjórastólinn og hefur haldið utan um
útgáfuna síðan. Mosfellingur kemur út að
jafnaði á þriggja vikna fresti og er dreift frítt
inn á öll heimili og fyrirtæki í Mosfellsbæ, á
Kjalarnesi og í Kjós.
Mosfellingur er rekinn eingöngu af
auglýsingatekjum og hefur útgáfan vaxið
og dafnað síðustu árin. Til að mynda var
fyrsta blaðið var 8 blaðsíður en afmælis-
blaðið í dag er 40 blað-
síður. Allt frá upphafi
hefur verið kappsmál
að flytja jákvæðar og
skemmtilegar fréttir úr
Mosfellsbæ og nágrenni
sem og birta aðsendar
greinar.
„Án öflugra fyrirtækja
sem sjá hag sinn í því
auglýsa í blaðinu væri
þetta ekki hægt. Mörg fyrirtæki hafa minnt
á sig með reglubundnum hætti í fleiri ár
og lagt þannig útgáfunni lið og erum við
þeim afar þakklát fyrir. Án þeirra væri ekki
mögulegt að gefa út bæjarblað sem dreift
er frítt í öll hús.
Lesendur hafa tekið okkur opnum örm-
um og er ljóst að lesendahópur blaðsins er
orðinn afar tryggur. Bæjarbúar eru einnig
duglegir að senda okkur efni og ábendingar
um fréttir sem eiga heima í blaðinu.
Við hlökkum til að flytja ykkur skemmti-
legar fréttir úr bæjarfélaginu um ókomin
ár,“ segir Hilmar Gunnarsson ritstjóri Mos-
fellings.
Sunnudagur 30. september
17. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11:00
Prestur: Sr. Skírnir Garðarsson
Sunnudagur 7. október
18. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00
Prestur: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Sunnudagur 14. október
19. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Fjölskylduguðsþjónusta í Lágafellskirkju
kl. 11:00
Prestur: Sr. Skírnir Garðarsson
Safnaðarstarf vetrarins er hafið!
Sjá nánar á www.lagafellskirkja.is.
HelgiHald næStu vikna
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ6
RÉTT INGAVERKSTÆÐ IJóns B. ehfFlugumýri 2, MosfellsbæSímar: 566 7660 og 697 7685 jonrett@internet.isNý heiMaSíða - www.joNb.iS Þjónustuverkstæðiútvegum bílaleigubíla cabas
tjónaskoðun
Ný
Brattholt - einbýlishús
eign vikunnar www.fastmos.is
586 8080
selja...
11. tBl. 11. árg. fimmtudagur 6. septemBer 2012 Dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki í mosfellsbæ, á kjalarnesi og í kjós
Gleðileg jól
MOSFELLINGUR
4
Páll Helgason var sæmdur
nafnbótinni á bæjarhátíðinniÍ túninu heima.
Mynd/RaggiÓla
bæjarlistamaður mosfellsbæjar
Páll Helgason tónlistarmaður
Fyrsta tölublað Mosfellings kom út 13. september 2002
Mosfellingur 10 ára
2002 2012
Ritstjóraskipti haustið 2005. Hilmar Gunnarsson
núverandi ritstjóri tekur við af Karli Tómassyni
stofnanda Mosfellings.
Frítt, frjálst og óháð bæjarblað - mosfellingur@mosfellingur.is
Í tilefni 10 ára afmælis Mosfellings
fylgir blaðinu í dag segull til að
hengja á ísskápinn.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
12
-1
86
7
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Póstappið er stysta leiðin að margvíslegri þjónustu
Póstsins. Þú getur fundið pósthús og póstkassa,
keypt SMS frímerki og fylgst með sendingum. Ef
þú þarft frekari þjónustu gefur Póstappið þér beint
samband við þjónustuver.
HAFÐU PÓSTINN
Í HENDI ÞÉR!
www.postur.is
Fyrir Android og iPhone
„Þetta byrjaði þegar ég var í BS-námi í vélaverkfræði við Háskóla
Íslands. Þá fengum við það verkefni að hanna vindhraðamæli.
Mig langaði að gera eitthvað óhefðbundið þannig að hönnunin
er eiginlega fengin frá túrbínum bíla,“ segir Sæþór. Hugmyndin
að vindmyllunni kom hins vegar í umræðum innan fjölskyld-
unnar, foreldrar Sæþórs þau Ásgeir og Helga eiga sumarhús sem
hitað er upp með rafmagni.
„Kostnaður við það er mikill og vildu þau gjarnan skera hann
niður. Þá ákvað ég að láta reyna á þetta, að láta vindhraða-
mælinn framleiða rafmagn. Ég bjó til fyrstu vindmylluna 2007
en frá árinu 2009 hefur vindmylla staðið við sumarhúsið og í
stanslausri notkun. Hún sér bústaðnum fyrir allt að helmingi
alls rafmagns sem notað er, en það fer aðeins eftir vindi. Rafall-
inn hefur reyndar verið endurnýjaður,“ segir Sæþór en sjálfur
hannaði hann og smíðaði rafalinn.
Hönnuð fyrir íslenskar aðstæður
Sæþór hafði íslenskar aðstæður í huga við hönnun vind-
myllunnar. „Hún á að þola allar mögulegar aðstæður sem geta
komið upp hér á landi. Þá er ég að tala um vind upp á fimmtíu
metra á sekúndu. Auk þess á hún að duga í meira en tuttugu ár.
Hún er gerð fyrir staðvindasvæði, t.d. sumarbústaðasvæði þar
sem vindstyrkur er lítill. Hún er gerð til að grípa þann vind sem
fyrir hendi er og búa til eitthvað úr honum,“ útskýrir Sæþór og
bætir við að vindmyllan er algjörlega hljóðlaus.
Hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð
Sæþór kynnti vindmylluna á bæjarhátinni Í túninu heima og
var mjög ánægður með þau viðbrögð sem hann fékk. „Viðbrögð-
in voru ótrúleg, ég hef fengið fjölda símtala síðan á bæjarhá-
tíðinni bæði frá fólki hér innanlands og erlendis og er jafnvel
komin með endursöluaðila í þremur löndum. En ég er að klára
meistarnámið nú í janúar og ætla alfarið að sinna þessu. Við
pabbi höfum stofnað fyrirtækið Ice wind og ætlum að halda
áfram með framleiðslu og markaðssetningu. Þeim sem hafa
áhuga á að skoða þetta nánar er bent á heimasíðu okkar sem
fer senn í loftið www.icewind.is. Einnig er hægt að senda okkur
tölvupóst á info.icewind@gmail.com,“ segir Sæþór að lokum.
w w w. l a g a fe l l s k i r k j a . i s
Sæþór Ásgeirsson hannar vindmyllur sem koma á markað snemma á næsta ári
Ungur uppfinningamaður
hannar of smíðar vindmyllur
Sæþór kynnti
vindmylluna á
bæjarhátíðinni
Krásir í Kjósinni
á laugardaginn
Laugardaginn 29. september verður
haldin í Félagsgarði matarhátíðin
Krásir í Kjósinni. Kjósarstofa stend-
ur að hátíðinni sem nú er haldin í
annað sinn. Þar munu
matreiðslumeistararnir Ólöf Jakobs-
dóttir og Jakob H. Magnússon töfra
fram krásir úr hráefni beint frá
býlum í Kjós. Hátíðin tókst með
afbrigðum vel í fyrra og var húsfyllir
í Félagsgarði. Grjótkrabbinn var þá
sérstaklega kynntur og nú verður
sérstök kynning á fjörunytjum og
fleiru áhugaverðu. Húsið verður
opnað kl. 19, borðhald hefst kl.
20 og mun kvöldverðurinn kosta
kr. 6.500, án drykkja. Veislustjórn
verður í höndum Sigurlaugar M.
Jónasdóttur útvarpskonu.
Hjalti Þorkelsson úr Múgsefjun sér
um tónlistaratriði. Hægt verður að
panta sætaferðir frá Reykjavík og
til baka og kostar sætið 3.500 báðar
leiðir. Nánari upplýsingar eru á
vefnum www.kjosarstofa.is
Moskóvítar ljúka
leik í Listasalnum
Sýningin Fjórir Moskóvítar
hefur staðið yfir í Listasalnum frá
afmælisdegi Mosfellsbæjar þann
9. ágúst. Nú standa yfir síðustu
dagar sýningarinnar en henni lýkur
laugardaginn 29. september. Fjórir
fyrrum bæjarlistamenn Mosfells-
bæjar standa að sýningunni, þau
Inga Elín, Steinunn Marteinsdóttir,
Ólöf Oddgeirsdóttir og Sigurður Þ.
Þórólfsson.