Mosfellingur - 27.09.2012, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 27.09.2012, Blaðsíða 12
Hjóla- og göngustíga- kortið endurútgefið Í tilefni af Samgönguvikunni í Mosfellsbæ sem fram fór á dögun- um hefur verið endurútgefið nýtt og uppfært hjóla- og göngustígakort. Kortið sýnir samgöngu- og útivistar- stíga í Mosfellsbæ og tengingu þeirra við stígakerfi annarra sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu. Kortið var síðast gefið út árið 2010 og kláraðist upplagið fljótt þótt kortið væri ennþá aðgengilegt á heimasíðu bæjarins. Kortinu er dreift á helstu staði í bænum, svo sem á Bókasafn Mosfellsbæjar og íþróttamiðstöðvar bæjarins, ásamt því að liggja frammi í þjónustuveri Mosfellsbæjar. Stígakortið er einnig aðgengilegt á vef Mosfellsbæjar. Jafnframt er vakin athygli á korters- kortinu á heimasíðunni. Kortið sýnir 1,6 km radíus út frá miðbæ Mosfellsbæjar, en það er sú vegalengd sem tekur meðal- manninn einungis um 15 mínútur að ganga og 6 mínútur að hjóla. Tilgangurinn er að sýna hversu litlar vegalengdir er oftast um að ræða innanbæjar í Mosfellsbæ og hvetja þannig fólk til að ganga eða hjóla innanbæjar. MERKI MOSFELLSBÆJAR Höf. Kristín Þorkelsdóttir TÁKNA) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin. Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn sigursæli Englakonungur gaf honum. Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla. B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkjarna fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“. PANTONE 371PANTONE 371 2. útgáfa 2012 Hjóla- og göngustígakort Mosfellsbæjar Mosfellsbær ATH: Kortið er í stöðugri þróun og uppfærslu. Ekki er gerður greinarmunur á gangstéttum og stígum. Sem stendur er kortið einungis leiðbeinandi um mögulegar leiðir fyrir gangandi og hjólandi. í tilefni af Samgönguviku 2012 og er einungis tekin ábyrgð á upplýsingum - Fjárdráttur í Mosfellsdal12 STAFRÆN PRENTUN I STÓRLJÓSMYNDAPRENTUN I STAFRÆN HÖNNUN ARTPRO ehf. I Háholti 14, 2. hæð I 270 Mosfellsbæ I Sími: 566 7765 I www.artpro.is I artpro@artpro.is VERSLUM Í HEIMABYGGÐNafnspjöld I Bæklingar Auglýsingar I Dreimiðar Ljósmyndir I Bækur I KortLISTRÆN FAGMENNSKA ARTPRO WWW.ARTPRO.IS PRENTÞJÓNUSTA Sálarball í Hlégarði á laugardaginn Sálin ætlar að slá upp haustballi í Hlégarði laugardagskvöldið 29. september. Langt er nú um liðið frá því á Sálverjar léku þar, en Hlégarð- ur er eitt af fáum félagsheimilum landsins sem enn eru við lýði. Gamla sveitaballastemmning verður í öndvegi og gestir mega búast við látum, hita, svita og því, að þurfa að senda jakkafötin og kjólana í hreinsun á mánudeginum. Sálin mun að sjálfsögðu leika öll sín þekktustu lög, þar með talda nýjustu smelli bandsins sem ómað hafa í viðtækjum landsmanna þetta prýðilega sumar, sem flestir kveðja nú með töluverðum trega. M yn di r/ Ra gg iÓ la Fjárréttir í MosFellsdal Helgina 15.-16. september smöluðu bændur í Dalnum hátt í 1000 fjár að Hraðastöðum

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.