Mosfellingur - 21.08.2009, Blaðsíða 6
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar6
ELDRI BORGARAR
Tréskurðarnámskeið!
Námskeiðið byrjar 10. sept-
ember kl. 12:30. Skráning í
síma 5868014 kl.13-16.
Uppl. um starfsemina veitir
forstöðumaður á skrifstofu
félagsstarfsins í kjallara
Hlaðhamra kl. 13-16.
s. 5868014
Lykilþjón usta í
innfl úensufaraldri
Sveitarfélögin
á höfuðborgar-
svæðinu og
stofnanir á
vegum þeirra
eru að leggja
lokahönd á
samræmd-
ar áætlanir
um hvernig tryggja má órofna
lykilþjónustu á meðan infl ú-
ensufaraldur gengur yfi r.
Viðbúnaðurinn snertir nær
alla þætti í starfsemi sveitar-
félaganna og er gert ráð fyrir
gagnkvæmri aðstoð við að ná
markmiðunum ef þörf krefur.
Til að ná markmiðum sveitar-
félaganna getur þurft að grípa til
ráðstafana sem hafa áhrif á dag-
leg störf starfsfólks þeirra. Mikil
áhersla verður lögð á að kynna
áætlanirnar fyrir starfsfólki og
íbúum þegar þær liggja fyrir.
Nöfn Mosfellinga
á plexiglerplötum
Sýning Kristínar Jónsdóttur frá
Munkaþverá, Spjöld, stendur
nú yfi r í Listasal Mosfellsbæjar.
Kristín hefur skrifað nöfn allra
íbúa Mosfellssveitar árið 1944
og hluta íbúa Mosfellsbæjar árið
2004 á plexiglerplötur. Verkið var
unnið fyrir sýninguna Lýðveldið
Ísland í Þrúðvangi á 60 ára
afmæli íslenska lýðveldisins og
hefur Kristín nú fært Mosfellsbæ
verkið að gjöf og er sýningin
afmælissýning bæjarins í ár.
Sýningin er opin á afgreiðslu-
tíma Bókasafnsins og stendur til
29. ágúst. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Kindur finnast dauðar í Seljadal á Mosfellsheiði og lömbin enn ófundin
Hundar leggjast á sauðfé
Sigvaldi Haraldsson á Brúarhóli kemur að einu hræjanna í Seljadal.
Iceland Express og í samstarfi við Rás 2 og Morgunblaðið kynna
ER TÍMINN
Tvær af stærstu hljómsveitum landsins EGÓ og PAPAR
halda áfram ferð sinni um landið.
Laugardagskvöldið 29. ágúst í Íþróttahúsinu Varmá
Dúettinn Hljómur hitar upp frá kl 23:00
Risadansleikur
í ÍþróttahúsinuVarmá
Forsala á www.midi.is - 18 ára aldurstakmark
Húsið opnar kl 22:30 - Miðaverð 3.000 kr.
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
PrimeHeilsidaVarma.ai 8/18/09 1:24:39 PM
Listasafn Árnesinga
og Kaffi Klettur!
Þriðjudaginn 1. sept. verður farið á Lista-
safn Árnesinga í Hveragerði, en þar stend-
ur yfi r sýning á verkum Gerðar Helgadótt-
ur og Nínu Tryggvadóttur. Aðgangur er
ókeypis. Síðan verður haldið í Biskupstung-
ur og farið í kaffi með hlaðborði á Kaffi
Kletti við Reykholt. Lagt verður af stað kl.
13 frá Hlaðhömrum. Verð þ.e. akstur og
kaffi hlaðborð er kr. 4.000.-
Skráning í síma 5868014 e.h. og 6920814
Handverksstofan á Hlaðhömrum
opnar aftur 24. ágúst og verður opin frá kl.
13-16 alla virka daga. Við tökum vel á móti nýju
fólki og vonum að ánægja verði með það sem
boðið verður uppá í vetur. Stefnt verður að því
eins og áður, að fara í skoðunarferðir, leikhús
og lengri ferðir.
Einnig verða haldin námskeið sem verða
auglýst í Mosfellingi nú í haust.
Eldri borgarar eru kvattir til þess að kynna
sér starfsemina og koma og sjá hvað almennt
handverk og góður félagsskapur getur gert
lífi ð skemmtilegt.
Mosfellsbær efndi á dögunum til
skuldabréfaútboðs til lífeyrissjóða á
verðtryggðum skuldabréfum og sá
Saga Capital Fjárfestingarbanki um
útboðið. Saga Capital mun jafnframt
sjá um skráningu bréfanna í Kaup-
höll Íslands. Boðnar voru út 1.000
milljónir króna á 5,0% vöxtum til tíu
ára. Þetta er með bestu lánskjörum
sem sveitarfélögum hef ur boðist á
árinu, segir í tilkynningu frá Mos-
fellsbæ
Lánsféð verður nýtt til endur-
fjármögnunar skulda og til þess að
ljúka þeim verkefnum sem eru í
gangi vegna uppbyggingar í Mos-
fellsbæ. Þar á
meðal er bygging
nýs, framsækins
skóla, Krikaskóla,
sem tekinn verður
í notkun snemma
á næsta ári.
Rekstur Mos-
fellsbæjar á árinu
2008 gekk vel – ekki
síst ef miðað er við
aðstæður í þjóðfélaginu. Rekstrar-
afgangur af A-hluta að undan-
skildum fjármagnsgjöldum var 414
milljónir króna. Fjármagnsgjöld
voru tæpar 439 milljónir og er því
rekstrarhalli á A-hluta sem nemur
rúmum 25 milljónum á árinu 2008.
Veltufé frá rekstri var 402 milljónir
og handbært fé frá rekstri var 541
milljón.
„Það er ánægjulegt að okkur hef-
ur tekist að fjármagna brýn verk-
efni með betri kjörum en almennt
bjóðast. Rekstrarniðurstaða síðasta
árs er mjög ásættanleg og í raun
afrakstur mikillar vinnu sem starfs-
fólk Mosfellsbæjar hefur lagt á sig
til þess að gæta aðhalds og vil ég
nota tækifærið og koma á framfæri
þakklæti til þeirra,“ segir Haraldur
Sverrisson bæjarstjóri að lokum.
„Viðurkenning á sterkri stöðu Mosellsbæjar,“ segir Haraldur bæjarstjóri
Vel heppnað skuldabréfaútboð
Haraldur Sverris-
son bæjarstjóri
Sex dauðar ær hafa fundist í Seljadal á
Mos fellsheiði. Kindahræin eru illa útleikin og
augljóslega drepnar af hundi að sögn fjáreig-
endanna. Seljadalur er afréttur Mosfellinga og
lágu hræin öll meðfram Seljadalsá eða út í henni
miðri. Ekkert hefur spurst til 10-12 lamba sem
fylgt hafa ánum og kemur það víst ekki í ljós fyrr
en í haust hvort þau séu á lífi .
Engir smáhundar hér á ferð
Bændurna grunar að ærnar hafi allar verið
drepnar á svipuðum tíma og jafnvel af sama hund-
inum. Líklegast þykir að annaðhvort göngu fólk
sem leið hafi átt um dalinn hafi misst stjórn á
hundi sínum eða að sumarbústaðaeigendur hafi
ekki haft nægar gætur á hundum sínum. „Það eru
engir smáhundar sem taka svona fullorðnar ær,
sex stykki, og drepa þær,“ segir Hreinn en atvikið
hefur verið kært til lögreglu
Lausaganga hunda verði bönnuð
„Hundar vaða hér uppi og það er staðreynd
að sumir kunna með þá að fara en aðrir ekki. Á
síðustu 6-7 árum hafa tugir kinda verið drepn ir á
svæðinu,“ segir Hreinn Ólafsson bóndi í Helga-
dal. Brýnt sé því að vekja athygli hundaeigenda
á hættunni af því að sleppa dýrunum lausum
á svæðum eins og í Seljadal þar sem mikið er af fé.
„Það er ósk okkar fjáreigenda að lausaganga sé
bönnuð á afrétti Mosfellinga,“ bætir Sigvaldi Har-
aldsson á Brúarhóli við en hann er einn eigenda
kindanna.