Mosfellingur - 21.08.2009, Page 10

Mosfellingur - 21.08.2009, Page 10
Reynivallakirkja verður 150 ára Sunnudaginn 30. ágúst verður þess minnst að 150 ár eru liðin frá byggingu Reynivallakirkju í Kjós. Séra Gísli Jóhannesson lét reisa kirkjuna en yfirsmiður var Bjarni Jónsson frá Brúarhrauni. Fyrr á öldum voru Reynivellir kirkjustaður í þjóðbraut þegar helsta hafskipahöfn landsins var Maríuhöfn í Hvalfirði og um hlaðið lá leiðin til Þingvalla og Skálholts. Hátíðarguðsþjónusta hefst kl. 14 og síðan verður dagskrá í Félags- garði. Sóknarpresturinn, séra Gunnar Kristjánsson prédikar. Endurfundir ‘63 árgangsins Á þessu ári eru liðin 30 ár síðan árgangur 1963 útskrifaðist úr Gagnfræða- skólanum í Mosfellsbæ, árið 1979. „Reuni- onið“ fer fram laugardaginn 29. ágúst og fléttast saman við bæjarhátíðina Í túninu heima. Skólinn verður heimsóttur kl. 15 og kvöldverður fer fram í Hlégarði kl. 20 sem endar að sjálfsögðu með balli í íþrótta- húsinu að Varmá. Hreyfing og ham- ingja að Lágafelli Anna Ólafsdóttir Björnsson heldur myndlistarsýningu í Íþróttamiðstöðinni Lágafelli í ágústmánuði. Sýningin verður opin á opnunartíma hússins frá 6:30 til 21:30 virka daga og 8-19 um helgar. Þema sýningarinnar er „Hreyfing og hamingja“ og eru myndirnar allar olíumálverk á striga. Myndefnið er sótt í hreyfingu fólks og dýra sem ýmist eru í formi eins konar hellamálverka, sem er viðfangs- efni sem Anna hefur glímt við undanfarin ár, eða í óræðu rými þar sem raunveruleikinn er afstæður. - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar10 Miðstöð fyrir íslenska hönnun, kaffihús og verslun hefur opnað í Völuteigi 6 Kaffihús og íslensk hönnun Glæsileg miðstöð hönnunar, Hraunhús, hefur opnað í stóru og skemmtilegu rými að Völuteigi 6 í Mosfellsbæ. Hraunhús er stað- sett við hlið Ístex í iðnaðarhverfinu ofan Teigahverfis. Um 40 hönnuðir eiga nú þegar verk í Hraunhúsum sem ætlað er að vera miðstöð fyrir íslenska hönnun. Hraunhús samanstendur af versl- un, kaffihúsi, sýninga/veislusal og vinnuaðstöðu fyrir hönnuði. Gott gengi er á milli þessara þátta því hver fær sinn sess í stórum sal og gangvegur í miðju rýminu tengir þá saman. Hraunhús munu þannig hafa beina tengingu á milli hönnuða og afurða þeirra. Gestir njóta þess að sjá, snerta og skynja það sem er að gerast í íslenskri hönnun - frumkraft og grasrót í góðu blandi við klassíska hönnun og kaffihús með tengingu við menningu og listir. Sköpunarkraftur og notagildi Hönnunarverslunin í Hraunhús- um nefnist Magmatika og hefur allt það að bjóða sem einkennir íslenska hönnun. Sköpunarkraftur, notagildi og óvæntir eiginleikar vöru, sem sprottin er af krafti íslenskra hönn- uða, eru sett fram á skemmtilegan hátt. Á vefsíðunni hraunhus.is má finna allar upplýsingar og einnig er þar hægt að kaupa og panta vörur. Öld með Halldóri Laxness Á kaffihúsinu stendur nú yfir sýn- ing þar sem þemað er Halldór Lax- ness. Sýningin heitir: Þar sem feg- urðin ríkir ein – Öld með Halldóri Laxness. Textinn er tekinn saman af sýningarstjóranum Emilíu Sig- marsdóttur og Ólafi Engilbertssyni sem hannaði sýninguna. Á spjöld- unum eru textar um verk Laxness eftir ýmsa þekkta rithöfunda og fræðimenn: Má Jónsson, Sjón, Jón Viðar Jónsson, Sigurð Gylfa Magnús- son, Matthías Johannessen, Árna Sig- urjónsson, Úlfhildi Dagsdóttur ofl. Uppbygging í Völuteigi Fyrir nokkru opnaði á sama stað Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar og V6 Sprotahús en einnig er stefnt að því á næstu vikum að opna á sama stað 500 fm veislusal. „Sókn er besta vörnin“ segir Steinarr Logi frá Northbygg aðspurður um aðstæður í þjóðfélaginu. Steinarr hvetur jafn- framt Mosfellinga og nærsveitunga til að kíkja í heimsókn og skoða sig um í Hraunhúsum. Sumaropnun Hraunhúsa er kl. 11-18 virka dag og 11-17 laugardaga auk fyrsta sunnudags í mánuði. Kolla Hjartar verslunarstjóri og Steinarr Logi frá Northbygg á kaffihúsinu. Íslensk hönnun verður í öndvegi höfð í Hraunhúsum að Völuteigi 6.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.