Mosfellingur - 21.08.2009, Page 17

Mosfellingur - 21.08.2009, Page 17
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST MOSFELLSBÆR SKREYTTUR Bæjarbúar skreyta bæinn í fjórum litum eftir hverfum. Mosfellsbæ er skipt upp í fjóra hluta og hefur hver hluti sinn sérstaka lit (gulur, rauður, bleikur og blár). Höfðar, Hlíðar, Tún og Mýrar – GULUR Tangar, Holt og Miðbær – RAUÐUR Teigar, Krikar, Lönd, Ásar, Tungur og Dalur – BLEIKUR Reykjahverfi – BLÁR BÆJARLEIKHÚSIÐ KL. 20.00 Leikfélag Mosfellssveitar sýnir söngleikinn Fúttlúz. Leikgleði, barna- og unglingaleikhús Mosfellsbæjar er í ár skipað yfir 30 unglingum sem hafa æft stíft í sumar og unnið þessa sýningu af einstökum áhuga og metnaði sem ætti að hrífa alla með sér. Leikstjóri: Agnes Þorkelsdóttir Wild, danshöfundur: Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm, tónlistarstjóri: Sigrún Harðardóttir. FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST LISTASALURINN Í KJARNA Spjöld – Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá Kristín hefur skrifað nöfn allra íbúa Mosfellssveitar árið 1944 og hluta íbúa Mosfellsbæjar árið 2004 á plexiglerplötur. Verkið var unnið fyrir sýninguna Lýðveldið Ísland í Þrúðvangi á 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins og hefur Kristín nú fært Mosfellsbæ verkið að gjöf og er sýningin afmælissýning bæjarins í ár. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafnsins. Allir velkomnir - aðgangur er ókeypis. VARMÁRVÖLLUR KL. 18.30 Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Afturelding - HK. MIÐBÆJARTORG KL. 20.00 Setning bæjarhátíðarinnar Í túninu heima Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri flytur setningarávarp, umhverfisviðurkenningar afhentar, bæjarlistamaður kynntur, karnivalskrúðganga í brekkusönginn þar sem bæjarbúar mæta í sínum hverfislitum og ganga saman í flokkum í Ullarnesbrekkur. Dagskrá í Ullarnesbrekkum: Hornsteinn lagður að Ævintýragarði, varðeldur tendraður, Karlakór Kjalnesinga hitar upp og Dúettinn Hljómur leiðir brekkusöng. Skátar úr Mosverjum selja heitt kakó. Kyndlar tendraðir í lok dagskrár sem lýkur kl. 23.00. LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST MIÐBÆJARTORG KL. 10.00 Regnbogahlaupið ATORKA-mannrækt & útivist skipuleggur hringhlaup á fellin umhverfis Mosfellsbæ. Hver þátttakandi er að keppast við eigið viðmið í hlaupinu. Þeir sem ljúka hringnum á innan við þremur klukkutímum eru t.a.m. ”fullfrískir”, með 100% atorku. Skráning er í síma 699-6684 eða í Íþróttamiðstöðinni að Varmá og í Álafosskvos samdægurs. (www.man.is) 09.00 Boot Camp keppni (skráning í síma 862-6294) 14.30 Hraðakeppni World Class í sippi og dekkjahlaupi ofl. (skráning á staðnum) 15.45 Verðlaunaafhending í Boot Camp keppninni. 16.00 Hópflug og karamellukast frá Flugklúbbi Mosfellsbæjar. 16.17 Ólympíuleikar Mosfellsbæjar Starfsmenn fyrirtækja keppa í ýmsum þrautum með ólympísku ívafi. ÍÞRÓTTAHÚSIÐ AÐ VARMÁ KL. 13.00 – 17.00 Kynningar- og sölubásar. Hoppukastalar fyrir börnin og ís meðan birgðir endast. Fyrirtæki, klúbbar, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar í Mosfellsbæ kynna starfsemi sína. Dagskrá á hátíðarsviði Íþróttahússins að Varmá 13.00 Skoppa og Skrítla skemmta 14.00 Dirty Dancing - Unnur Pálmarsdóttir frá World Class stjórnar kennslu í Dirty Dancing tíma þar sem allir aldurshópar eru velkomnir að dansa, svitna og skemmta sér saman. 14.30 Karate- og Taekwondo-sýning (í sal 3) 15.00 DWC Danssýning frá World Class. TUNGUBAKKAVÖLLUR KL. 10.00 – 16.00 Kjarnamót á Tungubökkum - Hraðmót UMFUS. FLUGVÖLLURINN Á TUNGUBÖKKUM KL. 11.00 Módel-flugáhugamenn setja vélar sínar á loft fram eftir degi ef veður leyfir. TORGIÐ Í KJARNA KL. 13.30 Kammerkór Mosfellsbæjar með opna æfingu. Stjórnandi Símon H. Ívarsson. LISTASALURINN Í KJARNA: Spjöld – Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá Sjá nánari lýsingu undir föstudegi. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafnsins. Allir velkomnir - aðgangur er ókeypis. HLÉGARÐUR KL. 14.00 Tónlistardagskrá: Nemendur frá Tónlistardeild Listaskóla Mosfellsbæjar Skólakór Varmárskóla Vorboðarnir, kór aldraðra Tríó Reynis Sigurðssonar Mosfellskórinn MOSSKÓGAR Í MOSFELLSDAL KL. 12.00 – 16.00 Útimarkaður Mosskóga. Grænmeti frá Mosskógum, silungur frá Heiðarbæ, rósir frá Dalsgarði o.fl. Kammerkór Mosfellsbæjar syngur kl. 14.30 ÁLAFOSSKVOS KL. 12.00 – 16.00 Útimarkaður Varmársamtakanna. Grænmeti, silungur, lax, harðfiskur, sultur og mauk, fatnaður, skartgripir, snyrtivörur, blóm, kompudót, kaffiveitingar o.fl.Félagsmiðstöðin Bólið efnir til tónleika með ungum rokkhljómsveitum. Fram koma hljómsveitirnar Furry Strangers, The Nellies, Sleeps like an angry bear ofl. GALLERÍ HVIRFILL Í MOSFELLSDAL kl. 14.00 – 18.00 Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona og Harpa Örvarsdóttir listmálari opna samsýningu á verkum sínum. Sýningin verður síðan opin alla daga til 6. september kl. 14.00 -18.00 Kammerkór Mosfellsbæjar syngur kl. 15.00 GÖTUGRILL Í MOSFELLSBÆ KL. 17.00 – 20.15 Íbúar Mosfellsbæjar halda götugrill í vel skreyttum götum bæjarins MIÐBÆJARTORG kl. 20.30 Stórtónleikar fyrir alla fjölskylduna Magnús Norðdal sýnir listflug við hátíðarsvæðið, úrslit tilkynn t í hverfislitasamkeppninni. Björgvin Franz og dvergurinn Dofri úr Stundinni okkar, Bubbi & Egó, Paparnir, Hreindís Ylva, Alan Jones. Kynnir: Steindi Jr. Í lokin verður Björgunarsveit in Kyndill með flugeldasýningu. ÍÞRÓTTAHÚSIÐ AÐ VARMÁ KL. 23.00 Stórdansleikur Dúettinn Hljómur hitar upp, Egó og Bubbi taka við og leika fyrir dansi ásamt Pöpunum sem slá botninn í kvöldið. Miðaverð kr. 3.000 (2.500 í forsölu). SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST LÁGAFELLSKIRKJA KL. 10.30 Göngumessa “timburleiðin” Sr. Skírnir Garðarsson heldur göngumessu. Hist er við Lágafellskirkju og ekið að Langatanga þar sem gengið er að Lágafellskirkju. Helgistund að lokinni göngu. LEIRVOGSTUNGUMELAR KL. 13.00 MotoMos heldur púkamót í motocrossi fyrir 13ára og yngri Allar nánari upplýsingar verða auglýstar á motomos.is . ÍÞRÓTTAHÚSIÐ AÐ VARMÁ KL. 13.00 – 17.00 Kynningar- og sölubásar. Hoppukastalar fyrir börnin og ís meðan birgðir endast. Fyrirtæki, klúbbar, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar kynna starfsemi sína. Dagskrá á hátíðarsviði: 13.00 Fimleika-, Karate- og Taekwondo-sýning (í sal 3) 13.30 Kirkjukór Lágafellssóknar syngur lög af efnisskrá ferðar til Canada s.l. vor 13.50 Reykjalundarkórinn flytur ABBA og Beatles lög. 14.10 Karlakórinn Stefnir 15.00 Stórsveit Reykjavíkur ásamt Ragga Bjarna og Kristjönu Stefánsdóttur. Fornbílar í Mosfellsbæ til sýnis. Allir sem eiga fornbíla í Mosfellsbæ eru hvattir til að koma með fáka sína að Varmá og sýna gripina. BAKKAKOTSVÖLLUR Í MOSFELLSDAL FRÁ KL 8.00 Golfveisla í samvinnu Golfklúbbs Bakkakots og bæjarhátíðar Mosfellsbæjar ”Í túninu heima”. Á Bakkakotsvelli 9 holu punktamót með forgjöf. Keppt í bæði karla og kvennaflokkum Ræst verður frá kl. 08.00, þátttökugjald einungis kr. 2000 per. spilaðan hring. Hver spilari getur spilað fleiri en einn hring. Stórglæsileg verðlaun. Skráning á www.golf.is Á Steinarsvelli kl. 12.00 6 holu barnamót þar sem leikinn er höggleikur í tveimur aldursflokkum, 6-8 ára og 9-12 ára. Ræst á öllum teigum kl: 12.00 (ef þátttaka leyfir). Mótsgjald á barnamótið er kr. 500 skráning í golfskála. Verðlaun og þátttökuviðurkenningar. Á æfingasvæðinu kl. 12:00-14:00 Einar Lyng PGA þjálfari GOB verður með létta tilsögn. Fríir æfingaboltar. BÆJARLEIKHÚSIÐ KL. 16.00 Leikfélag Mosfellssveitar sýnir söngleikinn Fúttlúz. Sjá nánari lýsingu undir fimmtudegi. GLJÚFRASTEINN kl. 16.00 Stofutónleikar Einar Jóhannesson, klarínetta og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó. Aðgangseyrir kr. 500. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. SJÁ NÁNAR Á WWW.MOS.IS Góða skem mtun! Bæjarhátíð Mosfellsbæjar Dagskrá dagana 27. - 30. ágúst 2009

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.