Mosfellingur - 11.01.2008, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 11.01.2008, Blaðsíða 2
HÉÐAN OG ÞAÐAN www.isfugl.is Í Mosfellsbæ eru starfandi klúbbar og félög sem ganga fyrir styrkjum og fjáröfl unum eins og gengur og gerist. Nú um áramótin tók knattspyrnu deild Aftureldingar upp á því að hefja sölu á fl ugeldum fyrir einkaaðila úr Reykjavík. Sú ákvörðun hefur vægast sagt vakið hörð viðbrögð bæjar- búa. Hér höfum við björgunar- sveit sem hefur fl ugelda- sölu sem sína aðaltekjulind og þar eru sjálfboða- liðar sem alltaf eru í viðbragðsstöðu og tryggja öryggi okkar þegar á þarf að halda. Það eru einfaldlega nokkur prins- ipp sem eru á hreinu: björgunar- sveitin er með fl ugeldasöluna, skógræktarfélagið sér um jólatrén, kvennaboltinn selur klósettpapp- írinn og sunddeildin safnar dósum. Svona mætti telja áfram. Aftur elding og björgunarsveitin Kyndill eru bæði málefni sem vert er að leggja lið. Hins vegar fi nn ast fl eiri fínar leiðir til að styrkja sína starfsemi án þess að þurfa að varpa svona sprengjum út í loftið. Gleðilegt ár. Stríð eða virðingMOSFELLINGUR mosfellingur@mosfellingur.is www.mosfellingur.is Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Útgefandi: Mosfellingur ehf. Skeljatanga 39, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson Blaðamaður: Ruth Örnólfsdóttir Umbrot og hönnun: Mosfellingur Próförk: Hjördís Kvaran Einarsdóttir Ljósmyndari: Magnús Már Haraldsson Prentun: Prentmet, 3500 eintök Aðsendar greinar skulu ekki vera lengri en 500 orð. Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU... ...þegar Reykjalundur var í upp- byggingu. Árið 1944 keypti SÍBS land fyrir vinnuheimili af eigendum Syðri-Reykja í Mosfellssveit. Fljótlega eftir að landið var keypt var byrjað á að byggja smáhýsi fyrir vistmenn og 1. febrúar 1945 hófst rekstur vinnuheimilisins og mót- taka vistmanna. Þá fékk staðurinn nafnið Reykjalundur, síðan árið 1949 var aðalbyggingin tekin í notkun. Árið 1953 var plastiðnaði komið á fót að Reykjalundi og varð hann fl jótlega meginstoð iðnfram- leiðslunnar þar. Myndin er frá 1954 og á henni má sjá hermannabragga og verksmiðjuhús í byggingu á Reykjalundi. Næsta blað kemur út 1. febrúar KJARNA, ÞVERHOLTI 2, MOSFEL- - Leiðari og skemmtiefni2 FERSKT BLÓÐ Álafosskórinn vill bæta við sig fersku og áhugasömu söngfólki í allar raddir. Öfl ugt félagsstarf. Góður andi. Upplýsingar gefur Helgi R. Einarsson í síma 868-9790

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.